Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.2004, Blaðsíða 32
Grafíska smiðjan ehf. 11-04
Helgarblaö DV
solo
Litir: Dökk og Ijóst áklæði
3+1 +1:199.800TILBOÐ: 159.800. - 3ja sæta: 89.800 TILBOÐ: 74.800.
Litir: Cream, hvítt,
svart og dökkbrúnt
f) n
Leðurborðstofustóll: 22.800 TILBOÐ: 15.800.
Litir á stólfótum: Dökkbrúnn, Ijóst Natur og kirsuberja.
LitirVCreám og rústrautt leðúr.
3+1 +1: 299.800 TILBOÐ: 199.800. - 3+2+1: 319.800 TILBOÐ: 219.800.
/
Litir: Cream og koníaksbrúnt leður.
ítalskur hvíldarstóll, alklæddur leðri: 99.800 TILBOÐ: 69.800.
Litir:Dökkbrúnt og koníaksbrúnt leður.
toronto
3+1+1: 229.800 - 3+2+1: 259.800.
Opið: Virka daga kl. 10-18, laugardaga kl. 11-16,
sunnudaga kl. 13-16.
HÚSGAGNAVERSLUN
SÍÐUMÚLA 20
sími 568 8799 I www.ondvegi.is I ondvegi@ondvegi.is
Danir hafa tekið ástfóstri við svokallaðar vatnspípur og reykja
nú ávaxtatóbak í gríð og erg á sérstökum vatnspípukaffihúsum.
Líbönsku bræðurnir Ali og Ahmad Dakhualah opnuðu Café Ali
Baba og de 40 vandpiber á Norrebro fyrir hálfu ári síðan og
bjóða íslendinga velkomna til sín i arabískt te og eplasmók.
sameina menningarheima
Endalausar raðir af litríkum
vatnspípum, málverk af sjálfri Mónu
Lísu með vatnspípu í hendi, bananar
og epli í risastórri skál, tveir reykspú-
andi Danir að tefla, arabískir bekkir
meðfram löngum gangi og áttræð,
tannlaus kona með vatnspípu
lafandi úr munnvikinu er aðeins
brotabrot af því sem ber fyrir augu
gesta á kaffihúsi þeirra bræðra Alis
ogAhmeds.
Það er ekki auðsótt mál að fá við-
tal við þá bræður og fá að taka
myndir á staðnum. Eftir að hafa
sannfært þá um að blaðamaður sé í
raun og veru sá sem hann segist vera
samþykkir Ali að koma í spjall þrátt
fyrir að hafa ekki fengið að sjá um-
beðin skilríki. Hann kemur meira að
segja færandi hendi með arabískt
myntute og stærðarinnar sykurkar.
„Það hafa komið blaðamenn hingað
en ég hef yfirleitt neitað þeim um
viðtal," segfr hann alvarlegur. „En þú
ert frá íslandi segirðu? Þá er þetta í
lagi."
Er sjáifur kallaður Ali Baba
Það er hálft ár síðan Café Ali Baba
og de 40 vandpiber var opnað og þar
er stöðugur gestagangur. „Danir eru
nýjungagjarnfr. Þeim finnst gaman
að prófa eitthvað nýtt og flykkjast
þess vegna hingað til að tékka á píp-
unum. Eplabragð er vinsælasta
bragðið," segir hann og kinkar kolli
en einnig er hægt að fá tóbakið með
til að mynda appelsínu-, cappu-
ccino- eða vínberjabragði.
„Við ákváðum að kalla staðinn
þessu nafni því ég er oft kallaður Ali
Baba í gríni. Við þurftum samt að
skeyta einhverju aftan við það því
bara hér í næsta nágrenni eru 5-6
staðir sem heita Ali Baba.“
„Hollara" en sígarettur
Tóbakið sem notað er í vatnspíp-
urnar er venjulegt tóbak blandað
ávaxtabragðefnum og ýmist hunangi
eða sírópi. Tóbakið er lagt í „höfuð"
pípunnar, álpappír breiddur ofan á
og glóandi kol loks lögð yfir allt sam-
an. Sá misskilningur er mjög út-
breiddur að vamspípureykingar séu
skaðlausar.
„Engar reykingar eru hollar,
punktur," segir Ali. „En það er hins
Ali samþykkir að sýna mér hvernig
maður útbýr pípuna. Fyrst er að velia
tóbakið og eplatóbak verður fyrir
valinu, enda er það vinsælast.
Pf V
Vatnspípukóngarnir BræðurnirAli og Ahmed innan viö afgreiðsluborðið á arabíska kaffi-
húsinuslnu.
vegar hollara, ef svo má að orði kom-
ast, að reykja vatnspípu en til að
mynda sígarettur. í reyknum er að-
eins 0,5% nikótín og engin tjara. Það
er heldur ekki ávanabindandi að
reykja vatnspípu þar sem fæstir
komast yfir að reykja það mikið að
nikótínið hafi eitthvað að segja enda
er maður um það bil klukkustund að
reykja eina pípu. Það geta allir reykt
vatnspípu, m.a.s. þeir sem reykja
ekki sígarettur. Reykurinn kælist
niður og ertir ekki hálsinn eins og
annar reykur."
Ali segir að ekki megi heldur van-
meta félagslegt gildi vamspípa. „Píp-
an táknar ró, frið og félagsskap. Kon-
ur og menn, ungir og gamlir geta
reykt. Hingað kom Dani um daginn
sem sagði við mig: „Ali þetta er eini
staðurinn þar sem ég sé öll þjóðar-
brot Kaupmannahafnar sitja saman í
sátt og samlyndi. Egyptar, Danir,
Tyrkir, Pakistanar og Arabar.""
Reykja fyrir svefninn
Annatíminn á kaffihúsi Ali hefst
um kl. 22.30. „Dönum finnst gott að
reykja fyrir svefninn. Koma hingað
til mín, reykja pípu og fara svo heim
að sofa. Ég var alltaf með opið til kl. 2
en konan hér á efri hæðinni kvartaði
og sendi lögregluna á mig. Eftir það
er ég bara með opið til miðnættis."
Allt í einu uppgötvar blaðamaður
að hann er ekki enn búinn að fá fullt
nafn hjá Ali og biður hann að skrifa
það á blað fyrir sig. Þegar hann verð-
ur við beiðninni kemur þéttvaxinn
Líbani með rússahúfu og þykkt yfir-
varaskegg arkandi og romsar upp úr
sér einhverju sem virðist
Vatnspfpur Ali selur egypskar vatnspípur á
kaffihúsinu sínu. Þær kosta frá 150 dönskum
krónum og upp f500.
vera vandlega samantvinnuð blóts-
yrði. Ali svarar honum stuttaralega
og snýr sér að mér: „Þetta er pabbi.
Hann er ekki hrifinn af því að ég sé
að gefa þér upp eftirnafn fjölskyld-
unnar. Hann heldur að þú getir verið
einhvers konar njósnari."
Það borgar sig greinilega að vera
var um sig þegar maður er í vatns-
pípubransanum. Þéttvaxni maður-
inn arkar rakleiðis í átt að gömlu kon-
unni sem er búin að reykja sem mest
hún má í meira en klukkutíma. „Þetta
er mamma," segir Ah til útskýringar.
„Og yngri bróðir minn," segir hann
og nikkar höfðinu í átt að síðhærðum
unglingi sem situr við hhð gömlu
hjónanna. En það er ekki nokkur leið
að fá að taka mynd af fjölskyldunni
og skyldi engan undra þar sem ég er
grunuð um njósnir. íslendingar sem
eiga leið um Kaupmannahöfn mega
th með að heimsækja Ah og félaga tíl
að sjá herlegheitin með eigin augum
- og kannski reykja vamspípu í leið-
inni.
sigrunosk@dv.is