Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.2004, Síða 78

Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.2004, Síða 78
78 LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 2004 Síðast en ekki síst DV Útgáfufélag: Frétt ehf. Útgefandi: GunnarSmári Egilsson Ritstjóran lllugi Jökulsson MikaelTorfason Fréttastjóri: Kristján Guy Burgess DV: Skaftahlið 24, Rvík, sími: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 515 7599 - Ritstjórn: 550 5020 - Fréttaskot: 550 5090 Ritstjórn: ritstjorn@dv.is - Auglýslng- an auglysingar@dv.is. - Drelfing: dreifing@dv.is Setning og umbrot: Frétt ehf. Prentvinnsla: ísafoldarprentsmiðja DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagna- bönkum án endurgjalds. Hvað veist þú um píramída 1. í hvaða landi eru stærstu píramídamir? 2. Hvað kallast sá allra stærsti og hvað er hann hár? 3. Hvað kallast sú gerð af jfeamídum sem algengust var í Mesópótamíu sem nú er frak? 4. Hvar annars staðar í ver- öldinni byggðu menn líka píramída? 5. Fyrir framan hvaða lista- safn er nú píramídi úr gleri? Svör neðst á síðunni Sannlega segi ég... .. .yður: Allt verður mann- anna börnum fyrirgefið, all- ar syndir þeirra og lastmæl- in, hve mjög sem þeir f?hnna að lastmæla, en sá sem lastmælir gegn heilög- um anda, fær eigi fyrirgefn- ingu um aldur, hann er sekur um eih'fa synd Sörur Um þessar mundir er að hefjast smdkökubakstur fyrirjólin og meðal vinsælla sorta eru svo- nefndar Sörur sem þykja ein- stakt góðgæti. Þær heita eftir Hvönsku leikkonunni Söru Bern- hardtsem fæddist 1844 og hét réttu nafni Rosine Barnard. Hún varð áhrifamikii persóna I frönsku leikhúsllfi og lék titil- hlutverkið ( Hamiet þegar hún var 55 ára. Hún lést árið 1923. Málið Svörviö spurningum: 1. Egyptalandi - 2. Keóps-píramídinn, um 146 metrar (eins og tvöfaldur Hallgríms- kirkjuturn) - 3. Stalla-píramídar - 4. (Mið- fsferiku og Mexíkó fyrir daga Kólumbusar - 5. Louvre-safnið í París. Góðverkabisness Gdðverk eru orðin mikil atvinnugrein, þar sem sérfrdðir aðilar á ýmsum pdstum, svo sem söngvarar og skipu- leggjendur, svo og trúnaðarmenn minni- máttarhdpa, taka saman höndum um að búa til viðburð, sem fær almenning til að leggja fram fé, er rennur í meira mæli til að- standenda en til minnimáttarhópa. Aðferðin varð fræg, þegar DV sagði mn daginn frá fáránlegri 1,7 milljón króna greiðslu tii eins söngvara og annarri óskýr- anlegri meðferð fjármuna í síðasta viðburði af þessu tagi. Ruddaleg framkoma söngvar- ans í fjölmiðlum hefur síðan bætt gráu ofan á svart, þannig að siðleysið er öllum ljóst. Þar fór tvennt saman, óbeizlað dóm- greindarleysi og óbeizluð frekja, svo sem landsmenn hafa getað lesið í dagblöðum og horft á í sjónvarpi, þar sem dónaskapur hans fór hamförum. Þar fengu menn inn- sýn í hugarfar, sem aðrir málsaðilar hafa reynt að leyna með silkimjúku tali og helgi- slepjusvip. Rök málsaðila hafa verið einföld. Þeir segja efnislega: Við erum í góðverkum og haldiö þið kjafti, sveitalubbar. Að baki ligg- ur sú staðreynd, að skipuleggjandi atburð- arins getur enga máiefnaiega grein gert fýr- ir fjárstreymi hans. Ljóst er þó, að minni- hluti teknanna rann til minnimáttarhóps- ins. Enginn skyni borinn maður trúir skipu- leggjandanum, þegar hann setur upp helgi- slepjusvip og segist vera annálaður dýrling- •ur, sem menn eigi að treysta til góðra verka. Menn vUja bara skjölin a borðið, svo að ljóst verði, hvemig og hvert fjármunir runnu, hversu stórtæk græðgin var í raun. Verstur er hluti trúnaðarmanna minni- máttarhópsins, sem bera blak af atvinnu- mönnum peningadæmisins samkvæmt spakmælinu um að tilgangurinn helgi með- alið og neita um leið að taka þátt í að upp- lýsa fjárstreymið. Þeir hafa því miður lent í skrítnum félagsskap fagmanna og vilja ekki viðurkenna það. Erlendis hafa menn aldagamla reynslu af, að oft er ekki allt sem sýnist á góðverka- markaði. Sögur Charles Dickens frá London og Túskildingsóperan sýna okkur ýmislegt í aðferðum fyni alda og fyrri áratuga. Fyrr og síðar hafa fagmenn reynt að fela sig á bak við samúð við minnimáttarhópa. Ætli menn geti ekki verið sammála um, að hér eftir muni almenningur fá að vita um, hvemig sé í peningapottinn búið, þegar ætlazt er tll, að hann leggi fé af mörkum til góðra mála. Það dugir ekki til lengdar að fá fólk til að láta fé í ótilgreinda hít, þar sem atvinnumenn hrifsa mikinn hluta. Samfélagið verður að viðurkenna, að sjónhverfingar eru hluti af nútímabisness, og átta sig á, að oft er ekki allt sem sýnist, jafnvel þveröfugt. Krafan um gegnsæi gUdir hér. Jónas Kristjánsson Ikvöld ætla ég á tónleika með ensku rokkhljómsveitinni Stranglers. Ég hlakka töluvert til en verð líka að segja að ég kvíði örlítið fyrir. Því á þeim fyrri Stranglers-tón- leikum sem ég hef farið á fékk ég einhverja þá mögnuðustu gæsahúð sem ég hef upplifað um ævina. Og á einhvern veginn síður von á að það endurtaki sig nú, tuttugu og sex árum síðar. etta var vorkvöld árið 1978. Að sumu leyti er voðalega langt síð- an en að sumu leyti er eins og það hafi verið í gær. Tíminn og minnið eru endalaus yrkisefni listamanna en samt hef ég aldrei lesið bók né séð bíómynd eða leikrit sem gefur sannfærandi mynd af þessum fyrir- bærum; hvernig þau teygjast og tog- ast og skreppa saman og hverfa og endurlífgast einhvers staðar annars staðar löngu seinna eða var það núna sem það mun gerast í fjarlægri framtíð? Ég get alla vega kallað ná- kvæmlega fram í huganum tilfinn- lllugi Jökulsson ætiar á Stranglers f kvöld en kvíðirsvolítið fyrir. Fyrst og síðast inguna þegar ég stóð á gólfinu í kol- dimmri Laugardaishöllinni og beið eftir að Stranglers byrjuðu að spila, loftið beinlínis titraði, æsingur vax- andi í manneskjunum allt í kringum mig sem voru samt ekki annað en gjammandi eirðarlausar þústir í dimmunni ... ég man hverja hreyf- ingu í þessum tíma og þessu rúmi, ekki samt út af þessum andartökum heldur út af þeim sekúndum sem á eftir fylgdu. Þegar allt í einu heyrðust í niða- myrkrinu, án þess maður hefði haft minnsta grun um að Stranglers væru komnir á svið, en allt í einu heyrðust fyrstu tónarnir í laginu (Get a) Grip (On Yourself). Dave Greenfield á hljómborð: Dú ... dú ... dú ... dú ... Og á fimmta tóni hrikaleg bassa- nóta - rumm, rumm, rumm, rumm ... skriðdrekabassi af því tagi sem enginn hefur hvorki fyrr né síðar spilað á nema Jean Jacques Burnel. Um leið voru ljósin kveikt. Þarna voru þeir komnir allir fjórir og eins og löngu byrjaðir á laginu og hefðu alltaf verið þarna þegar mannfjöld- inn tók við sér á þessum örfáu sek- úndum; það skall á hverju brjósti flóðbylgja sem þrýsti manni í átt að sviðinu, nei, hún reis í hverju brjósti, undan þessum þunga bassatakti: taktu þér tak. Og tónleikarnir voru farnir af stað af fullum krafti. Næsta klukkutím- ann, eða tvo, var maður partur af drununum sem bárust af sviðinu. Og um leið hinum hinum einkenni- lega Ijóðrænu melódíum sem jafn- vel þá voru ekki síður einkennis- merki Stranglers en hráa rokkið. Allt þetta var eins og gerst hefði í gær. Eða jafhvel í einhverju óút- skýranlegu núi sem allar áhrifa- mestu minningar manns búa alltaf í. Og þó var hann um leið einhver allt annar maður en ég, þessi piltur sem beið þarna í myrkrinu og fann gæsahúðina hríslast svo um sig þeg- ar upphafstónarnir hljómuðu. Arin, skiljiði, árin. Eftir á að hyggja hef ég iðulega reynt að finna merkingu í því að þessa frábæru tónleika - þar sem ég upplifði hin þungu högg rokksins meir og betur og dýpra en í nokkurt annað sldpti, að minnsta kosti þang- að til ég fór löngu seinna á Ramm- stein, þar sem krafturinn var raunar ennþá meiri, en ég var sjálfur orðinn veraldarvanari og áhrifin þess vegna þrátt fyrir allt ekki jafn gagnger ... sem sagt, eftir á að hyggja hef ég alltaf reynt að finna merkingu í því að þessa tónleika fór ég á að kvöldi jarðarfarardags föður míns. Því hann hafði verið til moldar borinn undir sálmalögum fyrr um daginn. Hlýtur ekki - hef ég oft hugsað - að vera einhver merking í því að ég skuli hafa farið á pönktón- leika að kvöldi þessa dags? Sýnir það ekki kaldlyndi, jafnvel tilfinn- ingaleysi, sem ég þarf að horfast í augu við? Eða sýnir það æðruleysi? Þá vitneskju unglingsins að þrátt fyrir allt yrði lífið að halda áfram? Verð ég ekki að kafa til botns, brjóta sjálfan mig til mergjar, komast að sannleikanum. Ég veit það ekki. Satt að segja held ég helst að það sé engin sér- stök merking í þessu fólgin. Nema hvað, það var augljóslega sjaldgæf- ur stórviðburður að Stranglers kæmu til landsins og engin ástæða til að sleppa því að mæta, þótt svona stæði á. Eitt er þó kannski merkilegt við þessa staðreynd, nú þegar Stranglers eru komnir aftur. Þegar karl faðir minn dó og var jarðsettur þennan dag þegar Hugh Cornwell og strákarnir spiluðu um kvöldið - þá var hann nákvæmlega jafn gamall og ég er núna. Og núna þegar þeir taka væntanJega Get a Grip öðru sinni á íslandi, þá ætla ég að mæta ásamt dóttur minni sem er núna næstum jafn gömul og ég var þá. í þessu Jilýtur þó altént að vera fólgin einhver ljóðræn merking, er það ekki?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.