Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.2004, Page 8
8 LAUGARDAGUR 4 DESEMBER 2004
Helgarblað DV
Bandarískir verðir líta á fangana í Guantanamo eins og dýr. Það er enginn stórhættulegur hryðjuverka-
maður þar en samt beita hermenn pyntingum til að komast að upplýsingum sem engu máli skipta í
stríðinu gegn hryðjuverkum. David Rose, sem hefur rætt við fanga og fangaverði, segir margar aðferðir
vera notaðar til pyntinga.
Bandarískir verðir í Guantanamo-fangabúðunum á Kúbu pynta
fanga með háværri rokktdnlist Bruce Springsteens og Eminems,
þeir nota sterka birtu til að þeir geti ekki sofið, niðurlægja þá og
halda þeim vikum saman í einangrun. Enginn af hættulegustu
höfuðpaurum al Kaída-samtakanna er geymdur í Guantanamo,
heldur eru þetta upp til hópa minni spámenn og sakleysingjar
sem hafa verið seldir í hendur bandarískra leyniþjónustumanna
í Afganistan, Pakistan, Zambíu, Gambíu ogvíðar.
„Við vitum ekki hvaða aðferðum
þeir beita núna eftir hneykslið í Abu
Ghraib, en Donald Rumsfeld varnar-
málaráðherra hefur leyft þeim að
nota ýmis meðul til að ná upplýsing-
um út úr föngum," segir David Rose,
breskur blaðamaður sem hefur kynnt
sér ástandið í Guantanamo, talað við
fanga og fangaverði. Bók hans um
stríð Bandaríkjamanna gegn mann-
réttindum í Guantanamo-búðunum
er komin út á íslensku.
Rose segir að upplýsingamar sem
koma frá föngunum eftir að þeim er
lofað betri meðferð séu gagnslausar
og það hafi hann fengist staðfest frá
háttsettum mönnum í Washington.
Á meðan enginn árangur virðist
nást í Guantanamo halda pynting-
arnar áfram. „Þeir halda mönnum í
einangrun vikum saman, 30 daga í
einu, og framlengja ef þeim sýnist
svo,“ segir hann. „Þeir nota það að
láta menn sitja hlekkjaða í óþægileg-
um stellingum tímunum saman, þeir
vom skildir eftir liggjandi á jörðinni í
langan tíma í einu, sem getur verið
mjög sárt.“
Born in the USA
„Fyrrum fangar hafa sagt mér og
fangaverðir hafa sagt New York
Times frá því að þeir hafi notað há-
væra músfk með Bmce Springsteen
og Eminem til að hrella fangana og
þeir notuðu skæra birtu til að vekja
óþægindi með mönnum." Til dæmis
hefur lagið Bom in the USA með
Springsteen verið spilað í síbylju.
Rose segir að fangaverðir hafi viður-
kennt að hafa verið með hávaða á
nóttunni til að halda mönnum vak-
andi. „Þeir trufluðu svefri hjá föng-
um, sviptu þá svefni, þótt Donald
Rumsfeld hafi kallað það svefnaðlög-
un. “
Hann segir einna alvarlegast að
föngum hafi verið haldið í pínulitíum
klefum mánuðum saman. „Fangam-
ir hafa ekki hugmynd um hversu
lengi þeir eiga eftir að vera þarna eða
hvaða sönnunargögn valda því að
þeir séu geymdir þar, þeir em ein-
angraðir, enginn heimsækir þá og
þau litíu samskipti sem þeir mega
hafa við fjölskyldu sína em vandlega
ritskoðuð. Þetta er mjög, mjög erfið
aðstaða."
„Menn fá síðan umbun fýrir að
gefa einhverjar upplýsingar um sam-
fanga sína. Þeir fá til dæmis að
drekka vatn úr bollum en ekki að
bogra hlekkjaðir við krana. Þá byrja
þeir að bulla einhveija vitleysu og
það er ekkert varið í upplýsingarnar
sem þeir láta frá sér,“ segir David
Rose.
Heilaskaði fyrir lífstíð
Hann hefur upplýst það sem
kallað er ERF-liðið, sérþjálfaðar
sveitir fangavarða, „Extreme React-
ion Force". „Fangarnir hafa búið til
orð yfir að lenda í þeim köllum. Það
þýðir að vera dreginn út úr klefan-
um sínum, laminn, höfuð, skegg og
augabrúnir rökuð af og vera spraut-
aðir í andlitið með piparspreyi.
Þetta er gert meðal annars til að
mýkja menn upp fyrir yfirheyrslur,"
segir Rose sem vitnar meðal annars
til frásagna Tariks Degoul, eins af
bresku föngunum sem nú er laus,
þrátt fyrir að bandarísk yfirvöld hafi
aðeins sagt að í Guantanamo væm
hættulegir hryðjuverkamenn. Um
200 af þessum mönnum sem hefur
verið lýst sem stórhættulegum
hryðjuverkamönnum hefur verið
sleppt úr fangabúðunum en líklega
em um 600 enn í haldi, án þess að
unnt sé að fá nokkrar tryggar tölur
um það.
Bandaríkjamenn neituðu alltaf að
þessi sveit væri til en þá kom upp mál
bandaríska hermannsins Shauns
Baker. Rose hefur fjallað um mál
Bakers sem var þjálfaður hermaður
sem var fenginn tÚ að taka þátt í æf-
ingum með ERF-liðinu. Hann var
klæddur í appelsínugulan fangabún-
ing og kennt hvemig hann ætti að
stöðva atíöguna þegar hann vildi.
Hann átti að öskra upp yfir sig „Red“.
„ERF-mennirnir réðust á hann,
börðu hann og kæfðu, þannig að
súrefhisflæði til heilans stöðvaðist,"
segir David Rose. Hann féll í öngvit
og eftír langa vist á hersjúkrahúsi er
hann með varanlegan heilaskaða
Hann fær tíu flog á dag að meðaltali
ennþá og mun aldrei ná sér.
Rose segir að nýleg skýrsla Rauða
krossins um pyntingar í Guant-
anamo sé merkileg fyrir það að vitn-
isburðurinn er frá því eftír Abu
Ghraib. Hann segir að þegar hann fór
til Guantanamo, hafi honum verið
sýnd fagra hliðin á þessum fanga-
búðum. ,Allt það ógeðslega var falið.
Mér leið eins og það væri verið að
sýna manni pótemkintjöld, ekki hvað
þarna var raunverulega á ferðinni
eins og ég komst að eftir að ég kom
frá Guantanamo."
x$mfí
J.. '* m Q | ' J >
ERF-mennirnir réðust
á hann, börðu hann
og kæfðu, þannig að
súrefnisflæði til heil-
ans stöðvaðist.
Vannærðir og hlekkjaðir við
rúm
Hann sagði þó að ef menn hefðu
augu og eyru opin kæmust menn að
ýmsu. Hann heimsótti spítalann á
svæðinu. „Þar lá náungi sem var
hlekkjaður við rúmið. Hann var um
50 kJIó og það var verið að mata hann
í gegnum slöngu í nefið. Hann hafði
verið í hungurverkfalli í 50 daga. Ég
spurði lækninn af hverju hann væri
lilekkjaður við rúmið og læknirinn
sagði mér að hann vildi ekki að það
yrði ráðist á verðina. Ég sagði „Hvað
meinarðu? Þessi maður er 50 kíló
með slöngu í nefinu. Heldurðu í al-
vörunni að hann sé hættulegur? Hef-
ur nokkur af þínum mönnum orðið
fýrir árás? Nei, það hefur ekki verið
ráðist á neinn, sagði hann því menn-
irnir eru hlekkjaðir við rúmin, sagði
hann. Það er svona rökfræði sem
tröllríður öllu í Guantanamo.“
David Rose tók einnig eftir því að
margir voru á þunglyndislyfjum í búð-
unum. „Ég spurði af hverju svo margir
væm þunglyndir, gæti það verið vegna
þess að þeir væm svo einangraðir og
ekki í neinum tengslum við fjölskyld-
una og svo framvegis, en Steve Ed-
mundson yfirlæknir sagði: Nei,nei nei,
þeir hafa ömgglega verið veikir á geði
áður en þeir komu hingað."
Hann segir að fangaverðirnir hafi
neitað því að fangar hefðu reynt að
mikið að þeir muni aldrei mæta fyrir
rétt.
David Rose segir að það sem hafi
slegið hann mest hafi verið þegar
hann spurði yfirmann í búðunum út
í hagi fanganna og komst að því að
þeir litu ekki á fangana sem menn.
„Hann yppti bara öxlum. Ég áttaði
mig á því að verðimir litu ekki á fang-
ana sem fólk, þeim leið
eins og dýragarðs-
vörðum.“
kgb@dv.is
fyrirfara sér. Það væm hins vegar
dæmi um að menn hefðu viljandi
reynt að skaða sig til að fá betri með-
ferð. „Þaö var einn náirngi á spítalan-
um sem var búinn að vera í tveggja
mánaða ,dái eftir að hafa reynt að
hengja sig. Hann á aldrei eftir að
ganga aftur og var rétt að byrja að tala
aftur þegar ég var þar. Það er kjaftæði
að hann hafi gert það til að fá
betri umönnun, það er
bara búið að endur-
skilgreina sjálfsmorð-
stilraunir til að
þetta líti ekki eins
illa út," segir
Rose.
Enginn aðalkall
Nú er búið að koma
upp nýrri álmu í fang
elsinu í Guantanamo
sem köllluð er Camp
Echo sem er einhvers
konar öryggisfangelsi,
sem er með hærri öryggis-
kröfur en hinar álmurnar og
enn meiri hætta á að þar séu
menn pyntaðir. „Það er sagt að
þar eigi að geyma íraka og mér
hefur verið sagt að þangað hafi verið
fluttir menn úr CIA-fangelsi í írak. Ég
veit ekki hversu margir em geymdir
þar en þama er eitthvað nýtt að ger-
ast.
Einnig hafa verið uppi sögusagnir
um að í þessum búðum eigi
geyma hættulegusm yfirmenn al
Kaída sem em í haldi, Ramzi
al Shibh og Khalid Sheikh
Mohammed. Rose hefur
ekki trú á því enda telur
hann að þessir menn
hafi verið pyntaðir svo
að
bin