Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.2004, Page 20
20 LAUCARDAGUR 4. DESEMBER 2004
Helgarblaö PV
Tveir lögreglumenn eru enn frá vinnu vegna alvarlegrar reykeitrunar eftir brunann í Sunda-
höfn á dögunum. Annar þeirra er rannsóknarlöggan Árni Þór Sigmundsson sem nýverið var
skipaður aðalvarðstjóri í Lögreglunni í Reykjavík. Árni segist hafa þjáðst af höfuðverk og
svefnleysi en býst við að snúa aftur til vinnu á næstu dögum. Það er nóg að gera hjá Árna en
hann ritstýrði bókinni Norræn sakamál 2004 sem kom út á dögunum.
„Þetta var lúmskt," segir Árni Þór Sigmundsson, sem var á
dögunum skipaður aðalvarðstjóri hjá Lögreglunni í Reykjavík,
um eitraðan reykinn sem lagði yfir Reykjavíkurborg í kjölfar
brunans í Sundahöfn. Árni er einn tveggja lögreglumanna sem
hlutu snert af reykeitrun og hafa ekki getað snúið til vinnu.
Það var að kvöldi 22. nóvember sem
þykkan reyk lagði yfir Reykjavíkurborg.
Haugur af gúmmídekkjum stóð í
ljósum logum á svæði Hringrásar í
Sundahöfn. Ámi Þór hjálpaði fólki á
Kleppsveginum að komast í
skjól. Hann þurfti að
nota fjarskipta-
tæki og gat því
ekki sett á sig
gasgrímu.
„Reyk-
urinn sett-
ist ofan í
mann,“ segir
Ámi. „Dagana
eftir brunann olii
hann miklum
óþægindum; hósta,
ógleði, höfuðverk og
ruglingslegum hugs-
anagangi," segir Árni
Þór sem hefur enn ekki
snúið til vinnu eftír
kvöldið örlaga-
ríka.
Beint á slysadeild
„Ég gerði mér ekki grein fyrir
þessu fyrst. Kláraði bara mína vakt
og fór síðan á slysadeild. Síðan
ágerðust einkennin á næstu dögum.
Ég átti erfitt með svefn og þjáð-
ist af höfuðverk. Þá var
ljóst að ég hafði hlot-
ið snert af reykeitr-
un,“ segir Ámi
Þór. Hann tekur
þó fram að þetta
sé ekki alvarleg
reykeitrun. Hann sé
allur að braggast og
býst við að snúa til
vinnu á næstu dögum.
Einn annar lögreglu-
maður er frá vinnu
vegna reykeitrunar.
Aðgerðir lögregl-
unnar þann 23. nóvem-
ber þegar brann við
Sundahöfn kostuðu fórnir.
Geir Jón Þórisson yfir-
lögregluþjónn segir að sem
betur fer gerist svona
hlutir ekki oft.
„Okkar menn
fá þá
bestu
'SM
a IPAjiwwt*.
Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn
Okkar menn fá þá bestu meðhöndlun sem
til er og munu ekki snúa aftur til vinnu fyrr
I en þeir hafanáð sér að fullu."
meðhöndlun sem til er og munu
ekki snúa aftur til vinnu fyrr en þeir
hafa náð sér að fullu," segir Geir Jón.
„í tilfelli Árna stjómaði hann rým-
ingunni og gat elcki verið með grímu
vegna stjómun fjarskipta. Vanalega
sér slökkviliðið um þessa hluti en
vegna stærðar aðgerðinnar þurfti að
grípa til þessa."
Ekkert nema sannleikurinn
Árni Þór er ritstjóri bókaraðar-
innar Norræn sakamál 2004. Nýjasta
bókin í flokknum kom út fýrir þessi
jól. Þar er fjallað um fjögur íslensk
sakamál og skrifar Árni Þór um tvö
þeirra - annað er Skeljungsránið
fræga sem var upplýst átta ámm
eftir að það var framið í kjölfar
sjónvarpsþáttarins Sönn íslensk
sakamál.
„Þetta er þriðja bókin í þessum
flokki sem ég ritstýri. Markmiðið er
að greina frá hlutunum eins og þeir
eru. Frásögnin verður að vera sann-
leikanum samkvæm og ekki má
halla á neinn," segir Árni Þór og
vitnar í fræga setningu úr bandarísk-
um löggumyndum. We say nothing
but the truth.
Það má færa rök fyrir því að saka-
málasögur og reyfarar hafi aldrei
verið jafn vinsælir og nú hér á Jandi.
Árni Þór samþykkir það og segir
þetta endalausa flæði af sakamála-
sögum afar áhugavert. Sumar bæk-
urnar séu afburðavel skrifaðar en
aðrar ekki á réttri braut. Fyrir lög-
reglumann sé gaman að lesa þessar
bækur og leita að vísbendingum.
Persónulegar frásagnir
Að sögn Arna er ekki aðalatriðið
að byggja upp spennu og óvænta
atburðarás með skrifum Norrænna
sakamála eins og í sakamálasögun-
um. Hlutverk þeirra sé frekar að
greina frá rannsókninni en einnig að
gefa innsýn í líf lögreglumannsins.
f frásögn rannsóknarlögreglu-
mannsins Kristjáns Inga Þorvalds-
sonar um rannsóknina á máli þekkts
bamaníðings segir Kristján: „Rann-
sókn þessa máls vakti óhug, jafht
þeirra sem vom nýliðar í slíkum
rannsóknum og þeirra sem töldust
reyndari."
Árni Þór segir sjálfur í frásögn
sinni af Skeljungsráninu að málið
hafi verið minnisstætt af ástæðum
Héraðsdómur dæmdi í á dögunum?
„Það er aldrei að vita en ég lofa
engu,“ segir Árni Þór. „Ég er þegar
byrjaður að safna efhi í næstu bók
en það er ekki hlaupið að því að fá
lögreglumenn til að setjast niður og
skrifa. Það þarf lfka að vera tilgangur
með frásögninni. Valið á efin skiptir
miklu máli.“
sem ekki sé hægt að tilgreina að öllu
leyti. „Þar á ég við persónulegan
harmleik sem gerðist á meðan á
rannsókninni stóð. Ég hefði sjálfur
kosið að þau mál hefðu farið á ann-
an og betri veg.“
Neskaupstaðarmálið
„Allir sem lenda í þeirri ógæfu að
fremja glæp eiga stóran hóp af
aðstandendum á bak við sig,“ segir
Árni Þór. „Því verður að skrifa um
þessi mál af sanngirni. Við birtum
ekki rétt nöfn nema í algjörum und-
antekningartilfellum. Ekki nema
málin hafi hlotið það mikla umfjöll-
un að það þjóni ekki tilgangi að
leyna þeirn."
Það liggur því beint við að spyrja
um efni næstu bókar. Fá lesendur að
kynnast hlið lögreglunnar á
Neskaupstaðarmálinu fræga sem
Hættulegt starf
Það er því nóg að gera hjá Árna
sem hefur verið frá vinnu síðan £
nóvember vegna reykeitrunar.
Stöðuhækkun hans frá rannsóknar-
lögreglumanni til aðalvarðstjóra
breytir einnig ýmsu. Mun Árni sakna
þess að vera rannsóknarlögga?
„Nei, þetta nýja starf snýst mikið
um að stýra verkefnum inni á stöð-
inni. Manni er samt alltaf í sjálfsvald
sett hvað maður gerir. Eins og þegar
bruninn kom upp. Þá fór maður bara
þangað sem maður áleit að maður
gerði mest gagn. Ég vil lfka taka það
fram að félagar mínir í lögreglunni
stóðu sig ótrúlega vel. Allir sem einn
gerðu þetta mögulegt. Þetta er það
sem lögreglustarfið snýst um. Þú velt-
ir ekki fyrir þér hættunni," segir Árni
Þór, „heldur sinnir þínu starfi".
simon&dv.is