Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.2004, Qupperneq 44
44 LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 2004
HelgarblaB DV
Frægasti krimmi landsins situr á bak við lás og slá yfir hátíðarnar. Samt sem áður er hann að komast í
jólaskap. Hins vegar vantar hann penna og slíkt dót auk þess sem hann vildi svo gjarnan vera fínn um
jólin. Lalli Johns segist vera alheimspersóna sem hefur svo mikið að segja þjóðinni.
„Ég losna frá Litla-Hrauni 10. janúar. Og þá fer ég í meðferð á
Hlaðgerðarkoti í Mosfellssveit. Svo losna ég út 4. mars. Ha? Já, ég
er að afplána einhverja dóma fyrir fjögur veski sem ég á að hafa
stolið,” segir Lalli Johns.
Þessi frægasti krimmi íslands situr
nú bak við lás og slá og býr sig undir að
halda jólin hátíðleg á Litla-Hrauni.
Það er helst á Lalla að heyra að hann
hafi verið hafður fyrir rangri sök, í það
minnsta elti ólánið hann líkt og fyrri
daginn. „Ég átti að hafa læst fúllt af
fólki inni í World Class, svo álpaðist ég
inn í einhvem skóla þama við Tjöm-
ina. Ég átti að hafa farið þar inn en þar
var allt opið og ég var að ná í nemend-
ur. Þama var enginn inni og ég lét
veskið í póstkassann. Svo hitti ég dóm-
arann og sagði að hann skyldi dæmd-
ur til helvítis. Ég fékk tvo mánuði fyrir
það. Það má ekki tala við dómarann.
Og einhvem veginn svona hefur þetta
nú verið. Já, það er eins og þeir vilji
haldamérhéma."
Skartmennið Lalli
DV birti í vikunni litía frétt þar sem
segir að Lalli sé skítblankur og eigi ekki
fyrir jakkafötum en þeim myndi hatm
svo gjaman vilja klæðast um jólin. Lalli
er nefnilega pjattaður inn við beinið
þó svo að þeir sem þekkja hann af göt-
um borgarinnar myndu ekki draga þá
ályktun svona einn, tveir og þrír.
Sigmar Vilhjálmsson, eða Simmi í
Idolinu, man það vel þegar hann og
félagar hans í sjónvarpsþættinum 70
mínútur á Popptíví tóku sig til og
klæddu Lalla upp frá toppi til táar auk
Það væri elskulegt efhægt væri að hjálpa manni
með eitthvað, kannski buxur og jakka. Ég myndi
alveg geta á móti gefið ykkur og litlu börnunum
heilræði um jólin. Ég er vinur fslands. Ég hefsvo
mikið að segja þjóðinni og kann ekki að Ijúga.
Tau*ant
þess að fara með hann í klippingu og
rakstur. Simmi segir það alveg fyrir-
liggjandi að Lalli vissi nákvæmlega
hvað hann vildi í þeim efnum, ekki
þýddi að setja hann í hvað sem er, og
kostaði þessi aðgerð 100 þúsund krón-
ur.
Lalli dressaður upp Fyrirumþað biltveimurárum tókuþeirhjá 70 minútum sig tiiog
klæddu Lalla upp. Þeir komust að þviað ekki þýddi að setja Lalla ihvað sem er.
Lalli á kunnuglegum slóð-
um. Lalli segir ágætt aö vera
á Hrauninu yfir hátiðarnar
sætti menn sig vid það að
járnið þrengi að. Mórallinn
sé góður og gott að borða.
Lalli segir svo frá að þessum fötum
hafi meira og minna verið stolið af sér
þegar hann dvaldi á gistiheimili í Þing-
holtsstrætinu. Og enn snúast vopnin í
höndum hins ólánsama Lalla. „Það
var öllu stolið frá mér. Kallað var á lög-
reglu en þá átti ég að hafa stolið vesld í
búð. Málið var að ég sá mann stela
veskinu en benti ekld á hann. Þá var
sagt að ég vildi ekki vinna með lögregl-
unni. Svona er maður alltaf milli skers
og bám. Það er eins og þeir vilji bara
hafa mig héma. En Lalli Jones, al-
heimspersóna, er ekki mddi, nauðgari
eða ofbeldismaður. Og batnandi
mönnum er best að lifa.“
Lalli segist nú ætía að fara að
standa sína plikt. En vill vera fínn yfir
hátíðamar.
„Það væri elskulegt ef hægt væri að
hjálpa manni með eitthvað, kannski
buxur og jakka. Ég myndi alveg geta á
móti gefið ykkur og litíu börnunum
heilræði um jólin. Ég er vinur fslands.
Ég hef svo mikið að segja þjóðinni og
kann eldd að ljúga."
Litla-Hraun um jól
Lalli segir ágætt að vera á Litla-
Hrauni yfir jólin ef menn sætta sig við
það. „Jámið herðir alltaf að. En hér er
góður mórall og menn fá vel að borða.
Það verður að sjá jákvæðu hliðamar.
Ég er hér og nenni ekki að vera leiðin-
legur drengur. Er heill heilsu og ágæt-
lega góðum gáfum gæddur. Nú er ég
að handskrifa jólakort og er kominn
upp í 34 stykki. Já, það væri mjög gott
ef það væri hægt að gatika að mér
penna og slflcu dóti, jólaalmanök
myndi ég þiggja með þökíaim."
Kort frá Lalla fá ýmsir fangaverðir
sem hafa reynst honum vel, fjölskylda
og vinir. Aðsptrrður hvort þama innan
rirnla fljóti ekki allt í dópi segir Lalh:
„Það fylgir þessum fangelsismálum að
dreifa á sig allskonar efrium. Bæði frá
læknamafi'unrú og fleiri aðilum. Hér
em tveir læknar og annar er á móti og
hinn með. Morfín, heróín og meskalín
em hættulegustu eiturlyf heims. Sjálf-
ur hef ég aldrei sprautað mig. Kannski
deift mig aðeins með vægum lyfjum
og hassi. En ég er í góðu formi, orðinn
53 ára gamall. Var það 12. septem-
ber.“
jakob@dv.is
R0ADH0USE
§Æ < 'S i
ALLA DAGA í DESEMBER Á MILLI KL 18 0G 1 GETA GESTIR R0ADH0USE
GENGIÐAÐ FRIUM KRANABJÓR EINS 0G ÞÁ LYSTIR!
o
íLU
f -
iN i
■
‘ ' J **
R0ADH0USE • HAFNARSTRÆTI17 • SÍMI 868 6080