Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.2004, Síða 70
70 LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 2004
Fréttir DV
T
ALLAR DRAGTIR
FRÁ BRANDTEX
Á 30% AFSLÆTTI
Opnunartími frá kl. 10 - 22
alla daga fram að jólum.
24. des. frá kl. 10-12
Nýbýlavegi 12 • 200 Kópavogi • Sími 554 4433
Af hverju nýtur stjórnin ekki?
Af hverju er fólk svona reitt?
spurði staðfastur stuðningsmaður
ríkisstjómarinnar mig um daginn.
Hann skildi ekki hvers vegna svo
ágæt stjórn nytí ekki meiri stuðnings.
Bullandi uppgangur alls staðar, al-
menn velmegun. Nú kemur enn ein
skoðanakönnunin sem staðfestir
þessa tilhneigingu. Stjómarflokk-
arnir hafa minnihluta kjósenda á bak
við sig, Sjálfstæðisflokkur 35 prósent,
Framsóknarflokkur ekki nema 11
prósent. Á meðan em vinstri flokk-
amir nálægt hámarksfylgi. Samfylk-
ing yfir 30 prósentum og Vinstri
grænir með hátt í 20 prósent.
Önuglyndið gýs upp hvað eft-
ir annað
Já, hvers vegna er fólk svona reitt?
Við þessu em varla nein einföld svör
- við erum að ræða um hugarástand
sem hefur verið að þróast nokkuð
lengi. Það er náttúrlega í hæsta máta
óvenjulegt að flokkur sem nýtur ekki
nema 11 prósenta fylgis skuli hafa
forsætísráðherraembættíð - og að
það skuli ekki duga honum til meira
fylgis. Það er einhver þreyta í stjóm-
málunum. Önuglyndi sem gýs hvað
eftir annað upp - síðast í þinginu á
mánudaginn þegar rætt var um
stuðninginn við íraksstríðið. Tiltrúin
á stjómmálamenn er í algjöru lág-
marki. Mörgum finnst leiðinlegt að
heyra þá tjá sig.
Bankarnir búnir að stela
glæpnum
Samt er verið að efiia kosningalof-
orð, nokkuð nákvæmlega. Framsókn
á raunar ekki mikið inni vegna lof-
orðsins um 90 prósenta húsnæðis-
lánin; það var beinlínis erindi Áma
Magnússonar inn í félagsmálaráðu-
neytíð að koma því í kring. En þama
em bankamir búnir að stela glæpn-
um - það standa yfir harðvítug og
flókin átök mifli þeirra og íbúðarlána-
sjóðs. Núna um helgina reynir hann
að bjóða betur. En miðað við þróun í
viskiptum á undanfömum árum
mtm hinn opinberi sjóður tapa þess-
ari baráttu.
Ruglingsleg afstaða Samfylk-
ingar
Geir Haarde var sármóðgaður um
daginn vegna þess að skattalækkan-
imar hans höfðu verið þaggaðar nið-
ur og afbakaðar á allan hátt. Sagði
hann. Að sumu leytí getur hann sjálf-
um sér um kennt. Hann steig mjög
seint fram á sviðið tfl að gera sér mat
úr málinu - forystumenn ríkisstjóm-
arinnar em Svo sem ekki mjög
spenntir fyrir að gefa færi á viðtölum
- í staðinn fyrir að halda fund á fyrsta
degi tfl að boða stórkostlegar skatta-
lækkanir, má segja að stjómarand-
staðan hafi stolið glæpnum með
hrópum sínum um glapræði. Afstaða
Samfylkingarinnar var raunar svo
mglingsleg að það er ekkert ótrúlegt
að símastrákur hafi búið tfl stefriuna
- en Steingrímur J. fór víða og talaði
af miklum sannfæringarkraftí.
Verður Seðlabankinn einn um
að berjast gegn verðbólg-
unni?
Skattalækkanimar vekja náttúr-
lega ákveðinn fögnuð. Guðmundur
hjá Rafiðnaðarsambandinu var í
þættí hjá mér og lýstí því hversu mik-
ið ráðstöfunartekjur félagsmanna
sinna myndu hækka. En á sama tfrna
er verið að hækka alls konar gjöld.
Það h'tur allt annað en vel út - gerir
ekkert annað en að renna stoðum
undir þann málflutning að þetta
verði bara rukkað inn með öðm mótí.
Að við fáum að borga með einum eða
öðrum hættí. Ekki einu sinni Birgir
ísleifur í Seðlabankanum trúir því að
ekki fari af stað einhver óráðsía í fjár-
málum - verður bankinn látínn einn
um að berjast gegn verðbólgunni?
Tilþrifalitlir og talhlýðnir
Foringjaræðið er að sumu leyti
styrkur stjómarflokkanna; þeir em
óneitanlega miklir foringjar Davíð og
Halldór, þeir hafa sterka stjórn á öilu,
em lausir við vingulsháttinn sem vfll
einkenna Samfylkinguna. En um leið
er þetta veikleiki. Einkenni þessara
stjómarhátta er geðþóttaræði - það
gerist ekki neitt nema leiðtogamir
séu í stuði. Ákvarðanir em ekki rædd-
ar eða útskýrðar. Inni í ríkisstjóminni
er innri ríkisstjóm sem öllu ræður. í
þessu ástandi vaxa upp tflþrifalitlir
og talhlýðnir stjómmálamenn sem
kunna að ganga í takt og taka enga
áhættu með því að hafa sjálfstæðar
skoðanir. Þessi tegund af mannauðs-
stjómim boðar ekki gott fyrir ffam-
tíðina - ætti að vera áhyggjuefni fyrir
Sjálfstæðisflokkinn og Framsóknar-
flokkinn.
Samræðustjórn eru skammar-
yrði hér
í vikunni var frétt í útvarpinu um
Kjell Magne Bondevik, forsætísráð-
herra Noregs, og Evrópusambandið.
Bondevik segist ekki lengur vera ýkja
viss í afstöðu sinni tfl ESB - áður
barðist hann kröftuglega gegn því.
Nú er hann að hugsa málið - telur að
eitthvað afdrifaríkt muni gerast inn-
an þriggja ára. Svona tala leiðtogamir
ekki á lslandi - það væri tahð veik-
leikamerki. Líklega hlegið. Samræðu-
stjómmál er hálfgert skammaryrði.
Algeng viðbrögð við þjóðfélagsum-
ræðu er fuss og svei og tuð um hvað
þetta sé nú allt vitleysislegt.
Af hverju mátti Hjálmar ekki
hafa sína skoðun?
Ástandið í þinginu á mánudag bar
vott um þetta. Einn þingmaður í
stjómarliðinu - sem annars er vanur
að vera nokkuð staðfastur - hljóp út
undan sér og sagði að tfl greina kæmi
að hætta við stuðninginn við íraks-
sm'ðið. Það gekk allt af göflunum.
En kannski hefði verið allt í lagi að
láta bara kyrrt hggja. Að leyfa Hjálm-
ari Ámasyni að vera ffjálsum skoð-
ana sinna - segja tfl dæmis að þetta
megi hann nú alveg, flokkamir getí
vel rúmað svona skoðanamun, þótt
þetta sé kannski misskilningur hjá
honum. í Framsókn ti'ðkaðist það í
eina tíð að flokksmenn máttu hafa
ólíkar skoðanir á herstöðinni í Kefla-
vík. Það skaðaði flokkinn ekki vitund.
f Sjálfstæðisflokknum hefur mönn-
um leyfst að hafa ólíkar skoðanir á
sjávarútvegsmálum, þótt nokkuð
hafi verið að þrengjast um þær á síð-
ustu árum.
Afturhaldskommatitts-
flokkurinn
í staðinn var hin pfriulitla uppreisn
Hjálmars barin niður með látum. Það
ber fremur vott um að menn vití ekki
alveg hvað þeir eigi að gera við afl sitt
en alvöru styrk. Davíð sýndi gamal-
kunna talcta. Mönnum fannst þeir sjá
að hann væri ekkert sérstaklega
breyttur þótt hann hefði farið á sjúkra-
hús. Orðið „afturhaldskommatitts-
flokkur" verður sjálfsagt sígflt - það er
ekld oft núorðið sem menn hrópa að
andstæðingamir séu kommar. Næst-
Egill Helgason
Laugardagskj allari
um að maður fylhst fortíðarþrá. í þing-
fréttum Moggans í gamla daga var
alltaf lætt htlu (k)-i í sviga aftan við
nöfii þingmanna Alþýðubandalagsins
- les: kommúnistar.
Pólitískur flóttamaður í
Garðabæ
í Reykjavík er nýr borgarstjóri tek-
inn við. Það birtíst skoðanakönnun
um stöðu flokkanna í borginni. Þrátt
fyrir skuldasúpu, afleita ffammistöðu
í skipulagsmálum, kennaraverkfall
og ruglinginn með borgarstjórann,
var niðurstaðan næstum alveg sú
sama og í síðustu kosningum, 53-41
fyrir R-hstann. Öruggur meirihlutí.
Líklega er það satt sem ég hef sagt að
R-hstírm getí stfllt upp kókkassa og
samt unnið borgina. Borgarbúar
hneigjast einfaldlega meira tfl vinstri
en áður, íbúasamsetningin hefur
breyst - meirihluti þeirra getur seint
hugsað sér að kjósa Sjálfstæðisflokk-
inn. Mikið af hægri mönnum hefur
flutt í útborgimar hér í kring - einn
þekktur sjálfstæðismaður hefur lýst
því yfir að hann sé póhtískur flótta-
maður í Garðabæ. Þá nýtíst atkvæðið
hans ekki í borginni.
Enginn munur á Vilhjálmi og
R-listanum
Þetta hlýtur að vera hugraunfyrir
Sjálfstæðisflokkinn. Flokksmenn
dreymir enn um að endurheimta
borgina, gamla höfúðvígið, djásnið í
krúnunni. Það er varla hægt nema R-
hstínn splundrist í frumparta. Samt
er ekki víst að þá yrði flokkurinn neitt
sterkari en Samfylldngin í borginni.
Sjálfstæðismenn hafa oddvita í
Reykjavík sem þeir em að reyna að
hafa trú á; þetta er ágætlega traustur
maður, vel að sér um innviði kerfis-
ins, en ekkert sérlega spennandi.
Maður sér hann alveg eins fyrir sér
sem embættismann. Það veikir hann
í póhti'skri baráttu að hann er for-
maður Sambands íslenskra sveitarfé-
laga, talsmaður samtakanna út á við -
og getur því trauðla gagnrýnt R-hst-
ann nema að móðga marga aðra
sveitarstjómarmenn í leiðinni. í raun
myndi Vilhjálmur sóma sér ágætlega
í meirihlutanum með R-hsta hðinu -
maður sér nokkum veginn engan
mun.
Gömlum konum ekið á kjör-
stað í bílförmum
Maður horfir aftur tfl fortíðar þeg-
ar Sjálfstæðisflokkurinn hafði leið-
toga í borginni eins og Bjama Ben,
Gunnar Thoroddssen, Geir Hall-
grímsson og Davíð Oddsson. Þá
þurftu sjálfstæðismenn aldrei að ef-
ast um sigur. Gömlum konum var
ekið á kjörstað í bílförmum; flokkur-
inn útdefldi lóðum, leyfum og öhum
lífsins gæðum. Vinstri menn hröktust
í Kópavog tfl að koma sér upp hús-
næði. Þessi tfrni kemur ekki aftur,
enda má kannski segja að þetta hafi
haft ýmis merki frumbýlingssamfé-
lags. ítalir kalla fyrirbærið „chentehs-
mo .
R-listinn hefur þetta í hendi
sér
Eins og stendur virðist R-hstí hafa
þetta mestaht í hendi sér. Hann getur
náttúrlega eyðflagt sjálfan sig í innri
baráttu, flokkadráttum og öfund. Svo
er líka spuming um ýmis vafasöm
mál sem em stöðugt að gerjast kring-
um Orkuveitu Reykjavíkur og Alfreð
Þorsteinsson. Einhvem veginn kom-
ast þau ekki í hámæh. Kannski vegna
áhugaleysis fjölmiðla - eða kannski
vegna þess að þeir ná ekki alveg utan
um máhð. Það hlýtur að teljast af-
skaplega óeðlflegt að Alfreð vflji ekki
sýna gögn sem eiga að vera opinber.
Hann hefur bara sína hentisemi likt
og fyrri daginn. Og hinir borgarfrfll-
trúamir verða flóttalegir þegar
minnst er á þetta.