Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.2004, Side 75
DV Helgarblað
LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 2004 75'
Bannað að
Ijúga
Samkeppnisráð hefur
úrskurðað að Bensín-
orkunni sé óheimilt að aug-
lýsa fyrirtækið og þjónustu
þess sem þá ódýrustu á
markaði þegar slík er ekki
raunin. Höfðu samkeppnis-
aðilar Orkunnar kvartað
vegna auglýsinga þar sem
fullyrðingar um ódýrasta
verð á markaði er haldið
fram með orðunum „Alltaf
ódýrast" og Miklu ódýrara".
Nýtækni fyrir
lygamælingar
Segulómtækni sem not-
uð er við leit að heilaæxlum
hefur reynst
nothæf sem
lygamælir,
að því er
bandarísk-
ir vísinda-
menn hafa
uppgötvað.
Þegar maður segir satt eru
ekki sömu heilastöðvar
virkar og þegar maður lýg-
ur, segja vísindamennirnir.
Þeir segja segulómtækin
geta orðið áreiðanlegri
lygamæla en mælana sem
nú er notast við.
Bréf kom 286
árumof seint
Þýska póstþjónustan
hefur sett nýtt met eftir
að bréf sem sett var í póst
fyrir 286 árum barst loks
á rétt heimilisfang á mið-
vikudag. Bréflð var sent
frá yfirmanni Lútersku
kirkjunnar í Eisenach til
safnaðarnefndarinnar í
Ostheim árið 1718 og
innihélt samþykki kirkju-
yfirvalda íyrir því að
neflidin gæti ráðið sér
annan prest eftir andlát
þess er hafði þjónað
söfnuðinum. Fyrir mistök
var bréflð sent í annað
þorp með sama nafni og
endaði á skjalasafninu
þar. Þegar sagnfræðingur
frá Ostheim-vor-der-
Rhoen hitti kollega sinn
frá hinu þorpinu og þeir
grúskuðu saman í skjala-
safninu komu mistöídn í
ljós.
Seðlabanki
bremsar
Verðbólgan á næstu
tveimur árum verður um-
talsvert meiri en tveggja og
hálfs prósentu verðbólgu-
markmið samkvæmt spá
Seðlabankans og stefnir í
4,3% innan
ársins árið
2006 miðað
við endur-
metnar
horfur í
efnahags-
málum. Við-
brögð bankans eru hækkun
stýrivaxta um 1% sem er
töluvert meiri hækkun en
markaðsaðilar höfðu reikn-
að með, en greiningardeild
Landsbankans spáði 0,5-
0,75% hækkun stýrivaxta.
Auk þess að hækka stýri-
vexti hefur Seðlabankinn
ákveðið að hætta gjaldeyr-
iskaupum til styrkingar
gjaldeyrisforða bankans.
Greining Landsbankans
segir frá.
Veitingamaðurinn Jón Fanndal á ísafirði segist mundu brenna geisladiska sína
með Kristjáni Jóhannssyni ef konan hans ætti ekki helminginn í þeim. Hallgríms-
kirkja hefði átt að gefa eftir hálfrar milljónar húsaleigu. Jón gagnrýnir söngvarana
harðlega fyrir að ganga út af tónleikunum með vasana fulla af peningum.
Ifill brenna geisladiska
Kristjáns Jáhannssonar
Jón Fanndal á ísafirði er reiður söngvurum og Hallgrímskirkju
fyrir að maka krókinn á styrktartónleikum fyrir krabbameins-
sjúk börn.
„Fólk sem er að fara á styrktar-
tónleika fer til að styrkja krabba-
meinssjúk börn. Það ætíast ekki til
þess að stór hluti peninganna fari í
þessa söngvara. Og að ég tali nú ekki
um í rekstur á kirkjunni," segir Jón
Fanndal, veitingamaður á ísafirði,
sem er reiður vegna þess hversu stór
hluti aðgangseyris á styrktartónleika
fyrir krabbameinssjúk börn fór í að
greiða þóknun söngvara og gjald
fyrir afnot af Hallgrímskirkju.
Lágkúra að fylla eigin vasa
„Ég kalla það hreinustu lágkúru
og ekkert annað að taka svona stóra
peninga fyrir styrktartónleika," segir
Jón. „Það er ekki hægt að líkja því
saman að halda svona styrktartón-
leika eða venjulega tónleika. Fólk
vildi miklu heldur fá einhverja
minna fræga til þess að skemmta
heldur en einhverja súperfræga sem
ganga út með fjárfúlgur í vösunum
af þeim peningum sem koma inn.“
Jón segir það ekki síður vera sér
áfall að HaÖgrímskirkja hafi inn-
heimt yfir hálfa milljón króna í húsa-
leigu vegna tónleikanna.
Fer ekki í kirkju um jólin
„Ég hlusta ekki á þetta serri prest-
urinn er að segja. Um síðustu helgi
var biskupinn sjálfur að biðja fólk að
setja pening í söfnunarbauka fyrir
munaðarlaus börn í Úganda. í sömu
kirkju eru svo styrktartónleikar og
þá þarf kirkjan 500 þúsund krónur í
einhvern rekstrarkostnað. Þetta er
„Ég hlusta mikið á
tónlist og hef haft
mikið dálæti á þeim -
þar til núna. Þá missti
ég það. Þetta var bara
kjaftshögg fyrir mig."
alltof mikið. Kirkjan átti hreint og
klárt að gefa krabbameinssjúkum
börnum leiguna," segir Jón, öldung-
is gáttaður á staðreyndum málsins.
„Þetta á nú að vera hlutverk kirkj-
unnar," bætir hann við.
Jón segist orðinn algjörlega af-
huga því að sækja kirkju um þessi
jól. „Þegar svona kemur upp þá
dýrka ég bara minn guð hér heima,"
segir hann.
Kjaftshögg frá átrúnaðar-
goðum
Um listamennina sem
gjald fýrir söng sinn segir Jón
„Ég hlusta mikið á tónlist og hef
haft mikið dálætí á þeim - þar
til núna. Þá missti ég það.
Þetta var bara kjaftshögg fyr-
ir mig.“
Að sögn Jóns á hann tals-
vert af geisladiskum með
söng Kristjáns Jóhannsson-
ar. „Helst vildi ég brenna
þá alla en það er spurn-
ing hvort ég fæ það fyrir
konunni - hún á helm-
inginn í þeim," segir
hann og hlær. „Ég á jóla-
' diskinn hans Kristjáns og
ég mun örugglega ekki
hlusta á hann yfir þessi
jól."
Segir ekki nei við veik
börn
í starfi sínu sem veitingamað
ur hittir Jón marga. „Ég heyri reið
ina í fólki. Það er reitt yfir þessu
sama og ég: Að svona stór hluti inn-
komunnar skuli ekki fara til krabba-
meinssjúku barnanna. Það sættir sig
ekki við það og ekki ég heldur," seg-
ir hann.
Sjálfur segist Jón hafa svo mikla
samúð með langveikum börnum að
hann hafi aldrei fengið af sér að
segja nei þegar hann hafi verið beð-
inn um að styrkja þau. „Það hef ég
snertir hjarta
mitt þegar
verið er að
safna fyrir
þessum litíu
veiku börn-
um.
sem
um
þessa
peninga væri dáð af þjóðinni ef það
hefði gert þetta fyrir lítið eða ekki
neitt."
gar@dv.is
Jón Fanndal „Égájóla-
diskinn hans Kristjáns og ég
mun örugglega ekki hlusta
á hann yfir þessi jól,“ segir
Jón Fanndal á Isafirði.
Samfylkingin í Hafnarfirði gerir 25 milljóna króna samning
við skátafélagið Hraunbúa
Bærinn bjargar fjársveltri skátahreyfingu
.Ástandið var orðið mjög alvar-
legt," segir Örn Tryggvi Johnsen,
stjómarmaður í skátafélaginu
Hraunbúum í Hafnarfirði. Árið 1997
var ráðist í byggingu glæsilegs skáta-
heimihs við Víðistaðatún. Bærinn
keypti gamla húsið og lagði firam fé til
uppbyggingar. Síðustu ár hefúr hins
vegar syrt í álinn fýrir
skátana. Fjár-
hagskröggur hafa
lamað félagið og
þurfti að segja
Gunnar Svavars-
son forseti bæjar-
stjórnar Segir
stefnu bæjarins að
styðja við bakið á
æsktjlýðsstarfi.
Skátaheimili Hraunbúa Bærinn kemur
fjársveltum skátum til bjargar.
starfsmanni upp fyrir síðustu ára-
mót.
„Við hefðum ekki getað ráðið við
að halda áfram starfsemi í þessu
glæsilega húsi hefði bærinn ekki að-
stoðað," segir örn Tryggvi en frá því
nýja skátahúsið var byggt hefur
hreyfingin þjáðst af alvarlegum
fjárskorti. „Það er mun erfiðara fyrir
okkur að fá fjármagn en til dæmis
íþróttafélögin," segir Örn Tryggvi en
neitar því að fjármálaóreiða hafi ver-
ið ástæða þess hve skátahreyfingin í
Firðinum var illa stödd. „Við einfald-
lega stóðum ekki undir lánum af nýja
húsinu," segir hann.
Gunnar Svavarsson, forsetí bæjar-
stjómar í Hafnarfirði, segir það rétt
að bærinn muni hlaupa undir bagga
með skátunum. „í fjárlagafmmvarp-
inu fá þeir tuttugu milljónir og við
afnotarétt af skátaheimilinu. Það
verður einnig endumýjaður við þá
rekstrarsamningur upp á um fimm
milljónir," segir Gunnar og bætír við:
„Skátarnir em einn af mörgum
burðarásum í æskulýðsstarfi í
bænum og það hefur verið leiðarljós
okkar að styðja við bakið á því."
Stífla í stálpípum
Reykjanesbær hefur fellt úr
gildi lóðaleigusamning við fyrir-
tækið IPT vegna 2. áfanga að stál-
röraverksmiðju í Helguvík. Fyrir-
tækið hafði ætlað að kaupa not-
aða stálröraverksmiðju í Kanada
og flytja til Helguvikur. Ekki varð
af ffamkvæmdum fyrir 20. nóv-
ember eins og lóðarsamningur
kvað á um. Á hinn bóginn hefur
verið samþykkt að framlengja
lóðarsamningi vegna 1. áfanga
fram undir lok febrúar „þar sem
upplýsingar frá IPT benda til að
árangur hafi orðið í fjármögnun
verkefnisins". Framkvæmdir eigi
að hefjast í apríl/maí 2005. ‘H: