Bræðrabandið - 01.04.1979, Side 1
BRÆÐRABANPIP
42 ÁRGANGUR APRÍL 4. TÖLUBLAÐ1979
MANNKYNIÐ ÁTTI AÐ EIGA FRELSAR-
ANN EKKI AÐEINS A MEÐAN A HOLD-
TEKJUNNI STÓÐ; HANN MUN UM EI
EILlFÐ HALDA MANNLEGU EÐLI SlNU.
Þegar ég bjó í Englandi hafði það
alltaf mikil áhrif á mig þegar ég söng
sálm Jean Ingelow's. í fyrsta versinu
er spurt þannig:"Elskaðir þú það fólk
sem elskaði þig ekki? FÓrst þú með
mannlegt yfirbragð þitt með þér til
himna? Talar þú enn máli mannanna?
Ert þú stóri bróðir þeirra núna? "
Svarið við öllum þessum fjórum
spurningum er ákveðið já.' Jesús er
okkar, fæddur meðal manna, okkur gefinn.
Meðalgöngumaðurinn frammi fyrir hinu
eilífa hásæti er"maðurinn Jesús Kristur"
(1.TÍm.2,5).
En hversu mannlegur er Jesús ef
hann er einnig guðlegur? Við erum
ekki í þessari grein að leitast við að
rýna inn í þann leyndardóm sem er ofar
mannlegum skilningi. Tilgangur okkar
hér er fremur að dvelja við það hversu
Drottinn er samsamaður okkur. Hversu
nálægur hann er okkur, ræða um samúð
hans og innilegt hjartalag hans og
kærleiksríkan skilning hans á okkur og
hlutskipti okkar.
Fyrst skulum við minna okkur sjálf
á að hann varði þremur og hálfu ári til
starfs síns en hann varði þrjátíu árum
af þrjátíu og þrem í borginni Nazaret.
Miklu af þeim tíma hlýtur að hafa verið
varið við hefilbekkinn með ónærgætnum
"bræðrum" sínum, sonum Jóseps sem voru
eldri en hann. Hann varð að búa með
þeim og vinna sér inn fyrir framfærslu
sem verkamaður og hjálpa til við það að
vinna fyrir heimilishaldinu. Hann var