Bræðrabandið - 01.04.1979, Side 2
ekki verndaður og varinn. Hann varð að
horfast í augu við lífið eins og það var,
fást við viðskiptavini - suma gagnrýn-
andi, súma ófúsa að greiða gjöld sín.
Hann var stöðugt að læra og hann skilur
af reynslu hvernig fólk lifði þá og
hvernig það lifir núna. Nazaret er
kölluð borg (Gríska polis) ekki þorp.
Við vitum ekki um ibúafjölda hennar en
hann kynni að hafa verið töluverður.
Hún var nálægt vegamótum á fjölfarinni
aðalbraut sem lá frá norðri til suðurs
og austri til vesturs. Þar fóru um
kaupmenn, opinberir starfsmenn, róm-
verskar hersveitir og fjöldi annarra.
Nazaret var ekki óþekktur staður og
Jesús hefur án efa komist í kynni við
fólk frá mörgum löndum í þeim annríka
heimi sem hann bjó í.
Við verðum líka að minna okkur á
það að Drottinn lifði á þeirri kynslóð
þegar uppreisnir og byltingar lágu í
loftinu.
Við slíkar aðstæður var rómverskur
réttur harður og ásamt öðrum hlýtur
hann í þessari borg að hafa sem drengur
verið vottur að margs konar sjórnarað-
gerðum Rómverja, jafnvel séð krossfest-
ingu. Hann þekkti beiskju þá og kúgun
sem samfara var erlendu hernámi og
þekkti þær pólitísku deilur og sterku
tilfinningaöldur sem flæða um mannleg
hjörtu vegna alls þessa. Svo að hann
skilur tilfinningar og andsvör þeirra
sem búa við ofríki. Hann þekkir
baráttu og þrár, ótta og kvíða allra
þeirra sem búa við svipaðar aðstæður.
í Hebreabréfinu er okkur sagt að
"hans var freistað á allan hátt eins
og vor án syndar" (Hebr.4,15). Það
var ekki "eðli engla" sem hann tók á
sig heldur var hann "sæði Abrahams."
Hann var gerður "líkur bræðrunum svo
hann gæti orðið miskunnsamur og trúr
æðstiprestur" (2.kap.16.17.vers.).
Hafði hann eðli sem var nákvæmlega eins
og okkar eðli? Varð hann fyrir freist-
ingu eins og við að innan jafnt sem að
utan? Ef ekki hvernig var þá hægt að
freista hans "á allan hátt eins og vor"?
Ef svo er hvernig gat þá blóð fórnar
hans verið sem"lýtalausts og óflekkaðs
lambs" og hvernig gat hann verið æðsti-
prestur sem er "heilagur og lýtalaus
Duncan Eva er varaforseti heimssam-
bandsins.
Grein úr Review 4.janúar 1979
2
og aðskilinn frá syndurum"? (4.kap.l5;
1.Pét.1,19;Heb.7,26). Ellen White skr
skrifar: "Hans var freistað á allan há
hátt eins og manna er freistað samt
var hann kallaður heilagur." Segir:
"Það er leyndardómur sem ekki er skýrð-
ur fyrir dauðlegum mönnum að Krists var
kallað á allan hátt eins og vor án syn
syndar. Holdtekja Krists hefur ávallt
verið og mun ávallt vera leyndardómur."
Biblíuskýringar S.D.A. bls. 1128.1129.
"HVERNIG" SKIPTIR EKKI MÁLI
Það skiptir því ekki máli þó ég
geti ekki skýrt hvernig þetta var.
Biblían segir að það hafi verið svo,
sendiboði Guðs staðfestir það og öldum
saman hafa sannkristnir menn trúað því.
Þess vegna teiga ég af þessari sann-
leikslind sem ég get ekki fyllilega
skilið alla þá von og huggun sem ég get
fengið. Þegar freistingin með nær
ómótstæðilegu afli kemur til min á
einu leiftrandi augnabliki eða þegar
hún aftur og aftur dag eftir dag situr
við dyr mínar veit ég að Drottinn skil-
\ir baráttu mína og þar sem "hann sjálfs
var freistað," getur hann og til fulls
frelsað þá sem fyrir hann ganga fram
fyrir Guð þar sem hann ávallt lifir til
þess að biðja fyrir þeim" (2.Kap.l8;
7.kap.25.).
En eins og við höfum þegar minnt
okkur á er Drottinn algjörlega mann-
legur á annan hátt. Hann "lærð hlýðni
af því sem hann leið (5,8). Höfuð-
einkennið á lífi hans var algjör hlýðni
við vilja Guðs. Hann var eina mannver-
ann sem hefur verið og mun vera ávallt
fullkomnlega hlýðin vilja Guðs. Hlýðni
hans var ekki eitthvað sem logaði upp
eitt augnablik og varð sem skar og
næstum því logaði út á því næsta. Hann
gerði ávallt það sem faðir hans vildi
ekki aðeins í hlýðni við lögmálið og
hið rétta og sanna en einnig hvað
snertir þá sjálfsfórn sem þeir sameig-
inlega höfðu valið honxim fyrir grund-
völl veraldarinnar. Þeim vilja var
hann hlýðinn allt til dauða já dauða á
krossi" (Fil.2,8). Vilji hans sem
manns var algjörlega eitt með föðurnum.
Þegar hann gaf líf sitt gerði hann það
vegna þess að eins og hann sagði:
"Þetta boðorð hef ég meðtekið af föður
mxnum." En hann gat líka sagt: "Ég
legg líf mitt í sölurnar" af því að