Bræðrabandið - 01.04.1979, Qupperneq 4
AFNÁM SYNDARINNAR -2
FULLKOMN
TRÚARBRÖGÐ OG
FULLKOMH) LIF
CARLYLE B. HYNES
Er við lítxm yfir jörðina virðist
svo sem tjaldið sé að falla fyrir menn-
ingu heimsins - hver fellingin á fætur
annarri. Ég á ekki við járntjaldið,
bambustjaldið eða purpuratjaldið. Ég á
við lokatjaldið, sem hefur hið geigvæn-
lega orð "endir" á sér. Ljósin eru
alls staðar að deyja. Dimma algers
myrkurs er að grúfa yfir alla menn.
Þeir fálma í myrkri og leitast við að
uppgötva þýðingu þess sem á sér stað á
meðal manna.
Menn þrá af einlægni að finna
orsök þessara hluta i þeim tilgangi að
afnema hana. Þeir vita ekki um orsök-
ina og ef þeir vissu hver hún væri,
gætu þeir ekki afnumið hana. Það er
orsök sem menn hugsa lítið um og sem
þeir neita að trúa. Það er orsök
sem er ekki greint frá í dagblöðunum
og ekki taka heldur stjórnmálamenn
heimsins hana með i reikninginn.
Hvað er það þá, sem hefur komið
heimimm i þessa voðalegu hættu? Til
eru þeir sem álita það vera afleiðingu
tveggja heimsstyrjalda. Þeir hafa á
röngu að standa. Þessar styrjaldir
skildu sannarlega eftir marga hörmulega
hluti, sem hafa haft i för með sér
ringulreið, umrót og vandræði. En
þessar styrjaldir voru ekki orsök,
fremur afleiðing. Þær má rekja til
hinna sömu afla og grundvallarorsaka,
sem i dag eru að setja heiminn fram á
hyldýpi glötunarinnar.
Aðrir álita orsök núverandi hættu-
ástands vera hið sláandi og stöðugt
vaxandi lögleysi, sem svo einkennandi
er fyrir okkar tima. En einnig þetta
er einungis minni háttar ástand, sem
aðeins hjálpar til. Aðrir álita vand-
4
ræðin, sem nú rikja i heimsmálunum,
vera árekstra og deilur á milli stefna
hinna ýmsu rikisstjórna, svo sem lýð-
ræði, fasismi, nasismi, kommúnismi. En
þetta er ekki satt.
Er sonur Guðs stóð á Oliufjallinu
fyrir nitján öldum og horfði i gegnum
myrkviði aldanna fram til okkar tima,
sem sá fyrir og sagði fyrir núverandi
ástand, gat hann orsakarinnar fyrir
þessu og einnig þess, sem gæti afnumið
hana. Eftir að hafa lýst hernaði og
hernaðartiðindum, voða, ótta og umróti
þessara daga, talaði frelsari mannanna
af sinni miklu innsýn i allt sem mann-
legt er um þær grundvallarástæður, sem
mundu leiða af sér þetta ástand. Hinn
mikli spádómur hans um okkar tima er i
24.kafla Matteusarguðspjalls. Taktu
þér tima til að lesa hann allan, orð
fyrir orð og af mikilli athygli.
Tak eftir að hann var að svara
spurningu lærisveina sinna varðandi
tima endurkomu hans og enda veraldar.
Og tak einkar vel eftir 4.5.11.12.24.
og 26.versi. "Gætið þess að enginn
leiði yður i villu". "Og margir fals-
spámenn munu risa upp og leiða i villu
marga,og....lögmálsbrotin magnast".
"Til þess að leiða i villu ef verða
mætti, jafnvel útvalda...Ef þeir þvi
segja við yður...hann er i herbergjun-
um,þá trúið þvi ekki."
Lögmálsbrot og blekking.
Falskristar, falsspámenn, falskar
kenningar, falskar kröfur - i stuttu
máli lögmálsbrot og blekking. Menn eru
dregnir frá hinum sanna Kristi til
falskrista og spámanna, svika, lyga,
lögmálsbrota - Drottinn vor talar um að
þetta leiði af sér ósamhljóðan og umrót
jarðarinnar.
Þessi staðreynd ein útskýrir at-
burði hins liðna og liðandi stundar og
varpar miklu ljósi á það sem ókomið er:
Vegna lögmálsbrota og blekkinga "þreyt-
ir Drottinn deilu við þjóðirnar".(Jer.
25,31). Það er deila milli hins ranga
og rétta. "Þvi að Drottinn hefur mál að
kæra gegn ibúum landsins þvi að i land-
inu er engin trúfesti, né kærleikur, né
þekking á Guði. Þeir sverja og ljúga,
myrða og stela og hafa fram hjá" (Hós.
4,1.2.).
Það er þá synd, sem er frumorsökin
að öllum vandræðunum á jörðinni. Það