Bræðrabandið - 01.04.1979, Síða 5
er synd sem er orsökin að þessari deilu
milli manns og Guðs. Það var syndin
sem i fyrstu truflaði samræmið sem var
á milli skaparans og sköpunarinnar. Það
var synd sem kom með bölvun í kjölfar
sitt yfir þennan uppreisnargjarna kyn-
stofn og gerði þennan heim að byltingar-
héraði í alheimi Guðs. Synd hefur verið
orsök alls böls bæði þjóða og manna.
Það er sú bölvun, sem hefur leitt af
sér öll núverandi vandkvæði heimsins.
Og það er sú bölvun, sem að lokum mun
kollvarpa heiminum.
Og nú nálgast menningin endalok
sín. Á liðnum öldum hafa fyrirtæki
mannsins þráfaldlega mistekist. Mann-
legar vonir hafa reynst vera reykur,
mannleg loforð fals. Allt það sem
viska, snilligáfur, menntun, þjálfun,
menning og mannúð hafa framkvæmt gera
allt höfuðið sjúkt og allt hjartað
veikt og hin tíu þúsund kynjalyf manna
hafa ekki veitt neina bót.
Menn risu upp gegn Guði og brutu
lög hans. Guð gerði menn ábyrga fyrir
lögum réttlætisins og þeir vildu ekki
hlýða. Þeir hurfu frá hollustu sinni
við konung alheimsins. Þeir virtu að
engu hið háa vald hans og þar af leiðir
að hann er í deilu við þjóðirnar og
synd er orsökin.
Og það er synd sem hefur orsakað
allt böl mannkynsins, sem loðir við
líf Guðs ástkæru barna svo að slegið er
á frest að vera viðbúin að mæta Guði
og þar með verða þau óhæf fyrir riki
himinsins og seinka þannig komu Drott-
ins síns,
Þau ykkar, sem lesið þessar línur
eruð fólk Guðs á jörðunni. Hann elskar
ykkur. Hann dó fyrir ykkur til þess að
frelsa ykkur. Hann hefur kallað ykkur.
Hann hefur gert ykkur sinn blessaða
sannleika kunnan. Það sem ég vil biðja
ykkur um að íhuga nú er það hvort
trúarbrögð ykkar séu frelsandi kraftur
og sigur yfir synd - fyrir ykkur. Við
höldum því fram að boðskapur okkar sé
hin eina lausn og lyf við öllu því sem
rangt er í heiminum. Ef sú krafa okkar
er sönn, ef við í sannleika höfum full-
komin trúarbrögð, munu þau trúarbrögð
opinbera sig og sýna yfirburði sina á
einn afar þýðingarmikinn hátt ^ með
því að leiða af sér fullkomið líf. Ef
þau gera það ekki, eru þau annað hvort
ekki þau fullkomnu trúarbrögð, sem við
höldvim fram að þau séu, eða við leyfum
þeim ekki frjálsan aðgang að lífi okkar.
Með þetta í huga legg ég þetta fram
fyrir ykkur í allri þeirri einlægni sem
ég á til. Hvað hefur þessi boðskapur
gert, hvað er hann að gera fyrir ykkur
og í ykkur?
Við erum ekki röng í þeirri trú
okkar, að boðskapurinn, sem við höfum,
hafi verið gefinn til að mæta ástandi
því sem heimurinn er í í dag. Hann
inniheldur sannarlega hina einu sönnu
útskýringu á núverandi ástandi heims-
ins. Hann veitir hina einu hjálp ör-
vilnuðum, föllnum heimi. En hefur hann
frelsað ykkur?
Við höfum réttilega mikinn áhuga
á því að færa öðrum sannleikann - ná-
grönnum okkar, vinum og ættingjum. Við
viljum láta allan heiminn þekkja "sann-
leikann". Ég spyr ykkur hvers vegna?
Viljið þið láta þá líkjast ykkur?
Viljið þið umbreyta þeim svo að þeir
lifi, tali, starfi, borði, lesi og
hagi sér eins og þið?
Á hvaða hátt er lunderni ykkar
fullkomnara lunderni nágranna ykkar?
Lesið þið það sem þeir lesa, sjáið þið
það sem þeir sjá, heyrið þið það sem
þeir heyra, talið þið eins og þeir tala,
farið þið á sömu staði og þeir fara,
klæðið þið ykkur á sama hátt og þeir,
borðið þið sams konar mat og þeir,
athafnið þið ykkur á lxkan hátt og þeir?
Lífið í Kristi
Boðskapurinn, sem þið trúið og
elskið er meira en safn kennisetninga,
meira en kennikerfi, meira en yfirlýs-
ing, meira en lagasetning, meira en
uppfylling spádóma, meira en kerfi
ytri helgisiða.
Hann kallar eftir sérstöku lífi.
Það er það sérstaka líf, fremur en
allt annað, sem mun vitna kröftugast
fyrir sannleika þessa boðskapar. Það
er lífið í Kristi.
Jesaja segir okkur að Guðs fólk
verði til tákns,. (Jes.8,18) . Við
munum auðvitað halda áfram að kenna
um tákn tímanna í hinum náttúrlega,
trúarlega, viðskipta-, félagslega og
pólitíska heimi. En í þessum heimi
er hið mesta tákn þeirra tíma, sem við
lifum á, hið áhrifamesta tákn, hin
mest sannfærandi tákn, Guðs fólk og
það líf sem það lifir. Slíkt líf í
15 +
5