Bræðrabandið - 01.04.1979, Blaðsíða 8
HLUTFALLSLEG ÁHÆTTA Á BRJÓSTAKRABBAMEINI
(mataræðisþættir)
TAFLA 5
Minna en einu sinni
í viku Minna en einu sinni Kjöt Egg Smjör/ ostur
í viku Tvisvar til fjórum 1.00 1.00 1.00
sinnum í viku 2.25 1.91 3.23
Næstum daglega 3.83 2.86 2.10
þær sem fengu blæðingar eftir 17 ára
aldur.
2. Offita
Sýnt hefur verið fram á að offita
eykur hættu á krabbameini í brjóstum,
legbol og nýrum hjá konvim. Konu sem er
23 kg of feit er 10 sinnum hættara við
krabbameini í legbol. Of feitt fólk
fær frekar sykursýki af fullorðinsgerð
sem eykur einnig hættu á krabbameini
í legbol. TÍðni krabbameins í brjóstum
tvöfaldast í konum eftir tíðahvörf ef
þær eru of feitar. (Sjá töflu III).
Skýrslur líftryggingafélaga sýna
jákvæða fylgni milli tíðni krabbameins
af öllum tegundum og aukins líkamsþunga.
Þetta á sérstaklega við um krabbamein
í þörmum, lifur, gallblöðru og þvag-
og kynfærum.
3. Trefjaefni:
Verulegar upplýsingar liggja nú
fyrir um það að 8-15 sinnum meira er um
ristilkrabbamein í Bandarikjunum en í
löndum þar sem almenningur lifir á
óunnum mat. Það tekur óunninn mat 30
klst að fara í gegnum meltingarfærin en
fínunnin matur er 77 klst á leiðinni.
Mormónar og Sjöunda dags aðventistar
hafa lægri tíðni ristilkrabbameins.
Sennilega er meira af trefjaefnum í
mataræði þeirra þar sem þeir nota meira
af grófu kornmeti en aörir. í mat
Sjöunda dags aðventista er im 50% meira
af trefjaefnum en hjá vestrænu fólki
yfirleitt. Um 89% af hitaeiningum í
Bandaríkjunum koma úr matvælum sem
innihalda lítið af trefjaefnum. (Sjá
töflu IV).
Fituríkt mataræði leiðir til þess
að meira myndast af gallsýrum og loft-
fælnum bakteríum í þörmunum. Bakterí-
urnar breyta gallsýrum í methylcholan-
threne og önnur krabbameinsvaldandi
efni. Trefjaefni festast á gallsýrur
og kolesterol og önnur forstig krabba-
meinsvalda og bera þau hratt út úr
meltingarveginum.
Það er hugsanlegt fræðilega séð að
aukið trefjamagn í matnumvaldi minni
snertingu krabbameinsvaldandi efna við
veggi meltingavegarins.
4. Ráðleggingar um fyrirbyggjandi að-
gerðir:
Er nokkur furða á því að "öldungar-
deildarþingnefndin um mataræði og mann-
legar þarfir" ráðleggur að Bandaríkja-
menn minnki neyslu á rauðu kjöti, fitu-
ríkum mat, smjörfitu og eggjum; að þeir
noti fitusnauða mjólk fremur en nýmjólk;
að þeir noti meira af heilkorni, ávöxt-
um og grænmeti?
S\imir telja að tengsl séu milli
mataræðis og 60% krabbameins í konum og
40% krabbameins í körlum.
Hvernig getur mataræði aukið lík-
urnar á krabbameini?
HLUTFALLSLEG ÁHÆTTA Á BRJÓSTAKRABBAMEINI HUNDRAÐSHLUTI HITAEININGA ÚR MATVÆLUM
(miðað við þunga kvenna) • SEM INNIHALDA LÍTIÐ AF TREFJAEFNI.
TAFLA 6 TAFLA 7
Kjöt 20%
Fínunnið korn 18%
Þungi Fyrir Eftir Sýnileg fita 18%
tíðahvörf tíðahvörf. Sykur 17%
Grönn 1.00 1.00 Mjólk,smjör 12%
Eðlileg 1.29 4,76 Egg 2%
Svolítið of feit 2.10 4.51 Áfengi 2%
Of feit 2,98 12.38 Samtals: 89%
8