Bræðrabandið - 01.04.1979, Qupperneq 15
Þegar hann mælti fram fyrirheitið
var hið dimma ský sem virtist umlykja
krossinn rofið af björtu, lifandi ljósi.
Hinum iðrandi ræningja veittist full-
kominn friður þess sem sáttur er við
Guð. Kristur varð dýrlegur í niðurlæg-
ingu sinni. Hann, sem í allra augum
virtist vera sigraður, var sigurvegari.
Hann var viðurkenndur sem syndaberi.
Menn geta haft vald yfir mannlegum
líkama hans. Þeir geta gegnum stungið
hin heilögu gagnaugu með þyrnikórónu.
Þeir geta flett hann klæðum og bitist
um skiptingu þeirra. En þeir geta ekki
rænt hann valdinu til að fyrirgefa
syndir. í dauða sínum ber hann vitni
um eigin guðdóm sinn og dýrð föðurins.
Eyra hans er ekki svo íþyngt að hann
heyri ekki, armur hans heldur ekki svo
skammur að hann nái ekki til að frelsa.
Það er konunglegur réttur hans að
frelsa til fulls alla sem koma til Guðs
fyrir hann.
1 dag segi ég þér: þú skalt vera
með mér í Paradís. Kristur sagði ekki
að þjófurinn skyldi vera með honum í
Paradís þann dag. Hann fór ekki
sjálfur til Paradísar á þeim degi.
Hann svaf í gröfinni og á upprisumorgn-
in\im sagði hann: "Ennþá er ég ekki upp-
stiginn til föður míns." Jóh.20,17. En
á krossfestingardaginn, þegar hann
virtist sigraður og myrkri hulinn, gaf
hann fyrirheitið. "í dag," meðan
Kristur var að gefa upp öndina á kross-
inum eins og illvirki, fullvissar hann
hinn aiamkunarverða syndara að hann
skuli vera með honum í Paradís.
Illvirkjana sem krossfestir voru
með Jesú festu þeir upp "sinn til
hvorrar handa, en Jesúm í miðið." Það
var gert að undirlagi prestanna og
höfðingjanna. Að Kristur var festur
upp á milli ræningjanna skyldi sýna að
hann væri versti illvirkinn þeirra
þriggja. Þannig rættist ritningin:
Hann "var með illræðismönnum talinn."
Jes.53,12. En prestarnir skildu ekki
til fulls merkingu athafnar sinnar.
Alveg eins og Jesús var krossfestur
"í miðið" var kross hans settur í miðj-
an heim sem sokkinn var í synd. Og
fyrirgefningarorðin sem beint var til
hins iðrandi ræningja tendruðu ljós sem
skína mun til hinna ystu endimarka jarð-
arinnar.
Englarnir undruðust hinn óendan-
BAKSÍÐA^
Kristi mun hafa hin mestu áhrif og
bera hinn kröftugasta vitnisburð um
það, að Guð sé um það bil að fullna
verk sitt á jörðunni.
Og Guð er reiðubúinn að laða fram
slíkt sérstakt líf í ykkur. Hann er
bæði fús þess og fær um að afnema
synd úr reynslu þinni - alla synd.
Eruð þið reiðubúin að láta hann gera
það? Vissulega er afnám syndar
úr lifi ykkar hið þýðingarmesta verk
sem hver einasti safnaðarmeðlimur
stendur andspænis í dag.
*9
Tafla IV:Byggt á upplýsingum frá land'
búnaðardeild Bandaríkjanna
National Food Situation (NFS-
158),nóvember 1976,bls.30.
Þýðandi: Snorri Ólafsson
aðstoðarlceknir.
BRÆÐRABANDÐ
Ritstjóri og ábyrgdarm.:
SIGURÐUR BJARNASON
Útgefendur
S.D. AÐVENTISTAR Á ÍSLANDI
15