Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2005, Blaðsíða 20
I
20 LAUGARDAGUR 9. APRlL 2005
Helgarblað DV
Cavalierdeilin fagnar tíu ára afmæli sínu
um þessar mundir en Cavalier er ein
vinsælasa hundategundin á landinu og
ekkert lát er þar á. María Tómasdóttir,
formaður deildarinnar frá upphafi, hefur
haldið vel utan um stofninn en fáir eru
kunnugri tegundinni en einmitt María.
ffM tmtm mHui
ijiftwipi <■
Mana og GuÖríður Vestars Þa
„Ástæðan fyrir því að ég fór í
hundana var sú að ég var búin að
eiga kisur í mörg ár, en þegar ég
missti þær tvær sem ég átti undir
bfla með stuttu millibili, ákvað fjöl-
skyldan að fara frekar í hundana,"
segir María Tómasdóttir formaður
Cavalierdeildarinnar á íslandi sem
um þessar mundir fagnar tíu ára af-
mæli sínu.
Fjórtán ár eru síðan María eign-
aðist sinn fyrsta Cavaiierhund en
hún segist hafa keypt sér Stóru
hundabók Fjölva og lesið hana upp
til agna. „Innflutningur á hundum
var ekki leyfður hér á landi á þess-
um tíma og ekki um auðugan garð
að gresja. Mig langaði ekki i neinn
þeirra hunda sem hér voru fyrir en
þegar ég sá myndina af Cavalier-
hundunum og var búin að kynna
mér þá féll ég allgjörlega fyrir þeim
og aðrar hundategundir komu ekki
til greina," segir María hlæjandi og
bætir við að hún hafi þá þegar haf-
ið undirbúning að því að flytja inn
Cavalierhund.
Eignaðist tvær tíkur 1991
Um svipað leyti var opnað fyrir
innflutning á hundum til landsins
og einangrunarstöðin í Hrísey tók
til starfa. „Guðrún Guðjohnsen var
þá formaður Hundaræktarfélags-
ins og benti hún mér á Sperring-
gardens-ræktunina í Svíþjóð, en sú
ræktun var á þeim
tíma talin sú
besta í Sví-
þjóð, enda
marg-
verð-
laun-
uð.
Ræktendurnir vildu ekki senda
einn hund í einangrun og þess
vegna urðu tíkurnar tvær." María
segir að eftir að hún kynntist þess-
um tíkum hafi hún fengið ræktun-
arfiðringinn og langað til að aðrir
fengju lflca að njóta þessara yndis-
legu hunda. „Þess vegna flutti ég
inn hann Gorba minn og með hon-
um kom til landsins hann Icy
hennar Elsu Haralds hjá Saloon.
Veh. Gorbi er enn á lífi, að verða
þrettán ára gamall," segir hún og
bætir við að síðan hafi mikið vatn
til sjávar runnið. „Ég er búin að
flytja inn marga hunda og tíkur
bæði frá Svíþjóð og Englandi, suma
rakkana hef ég reyndar bara fengið
lánaða og sent þá út aftur, þegar
þeir hafa gert skyldu sína hér! Ég er
samt ósköp róleg i ræktuninni sjálf
núorðið, er kannski með svona eitt
got á ári, en aðrir hafa tekið við og
nú eru vel yfir 20 virkir Cavalier-
ræktendur á landinu," segir hún.
Fyrstu hvolparnir árið 1993
María hefúr haldið vel utan um
rekstur deildarinnar og er mál
manna að fáir hafi eins mikla þekk-
ingu á þessari tegund hunda. Hún
segir að til að fagna þessum áfanga
efni deildin til alþjóðlegrar sýningar
í Reiðhöll Gusts í Kópavogi í byrjun
maí. Þar gefst Cavaliereigendum
tækifæri til að sýna hunda sína en
dómarar eru sérfræð-
ingar í tegimdinni.
Hún segir að
fyrstu hvolpamir
sem fæddust á
fslandi hafi
komið í
heiminn
árið
1993 en
f byrjun
voru hér
aðeins
hund-
ar af
litaaf-
brigð-
Hundar og menn ganga saman Deildin stendur fyrir sameiginlegum gönguferðum og þá koma eigendur saman með hunda slna sem hafa
afargaman afað hittast.
inu blenheim sem eru hvítir og
rauðir en enn í dag em þeir algeng-
astir. Síðan hafa hundar af öðmm
litaafbrigðum bæst við. Nú em
Cavalierhundar á landinu komnir
yfir Qögur hundmð og María bendir
á að vinsældir þeirra hafi alltaf verið
að aukast enda einkar skemmtilegir
og þægilegir heimilishundar. „Aðall
þeirra er hve ljúfir og blíðir þeir em
en þeir hafa einnig þann kost að
vera kátir og sérlega glaðir svo ekki
sé talað um hve fallegir þeir em.
Cavalierinn er lfldega ein vinsælasta
hundategund landsins og það er
alltaf bið eftir þeim og fá færri en
vilja," segir hún.
Skrá sig fyrir hádegi á mánu-
dag
María væntir mikils af sýning-
unni en hundum í teg-
undahópi 9 hefur
einnig verið boð-
in þátttaka.
Hægt verð-
ur að skrá
hundana
á skrif-
stofu
HRFÍ fram
til hádegis
á mánu-
daginn,
11. aprfl,
en einnig
er hægt
að skrá
sig á netinu inni á heimasíðu HRFÍ.
Sýningin fer síðan fram dagana 8,-
9. maí næstkomandi en það er
skemmtilegt tækifæri fyrir eig-
endur Cavalierhunda að
taka þátt í sýningunni
og fá mat sérfróðra
dómara I tegund-
inni. Það tækifæri
gefst ekki alltaf á
venjulegum
a\ sýningum. Auk
þess er hægt að
sýna báða dag-
ana en sami
hundurinn, ef
hann er góður,
á þá möguleika
á að fá tvö meist-
arastig á sömu
sýningunni.
bergijot@dv.is
mm
.