Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.2005, Page 4
4 MIÐVIKUDAGUR 13. APRlL 2005
Fréttir DV
Flutningabíll sat fastur í
Hæðarsteinsbrekku á
Holtavörðuheiði í fyrra-
kvöld. Að sögn lögreglu
kom annar flutningabíll að-
vífandi og ók utan í þann
sem sat fastur. Eignatjón
varð að sögn lögreglunnar í
Borgarnesi. Engin slys urðu
þó á fólki. Mikil hálka var á
veginum þegar atvikið átti
sér stað og var hún ástæð-
an fyrir því að fyrri flutn-
ingabíllinn stöðvaðist.
Unnið var fram á nótt við
að losa flutningabflana af
staðnum.
Sverrir Einarsson hjá Útfararstofu íslands gekkst undir aðgerð vegna gamalla
íþróttameiðsla fyrir skemmstu. Sverrir var orðinn svo hjólbeinóttur að það stóð
honum fyrir þrifum. Nú er hann orðinn teinréttur og verulega hærri en áður.
„Ég lengdist um fjóra sentí-
metra og er ánægður með,“ segir
Sverrir sem einnig er hestamaður
og hefur þurft að lengja um tvö göt
f ístöðunum í hnakknum sínum
eftir aðgerðina. „Ég lék lengi knatt-
spyrnu með Fram hér áður fyrr og í
raun var verið að lagfæra gömul
íþróttameiðsl. Hnén voru ónýt og
fyrir bragðið var ég orðinn mjög
hjólbeinóttur. Það var eins og ég
væri með tunnu í klofinu en nú er
búið að rétta úr öllu með þessum
árangri," segir Sverrir sem er enn
að venjast því að hafa stækkað
veruleg á efri árum en hann er nú
46 ára.
Flutningabíl-
ar í árekstri
Slitnir bremsuborðar
Vandamál Sverris var það að hné
hans voru orðin eins og slitnir
bremsuborðar; stál í stál. Þessu
fylgdu miklir verkir sem voru svo
gott sem að gera Sverri óstarfhæf-
an;
„Það var ekkert annað fyrir mig
að gera en fara í þessa aðgerð.
Vissulega var þetta sársaukafullt
fyrst en nú er ég allur að koma til.
Það var skipt um báða hnjáliði og
ég er mjög ánægður með útkom-
una. Ég er allur beinni og verulega
hærri,“ segir Sverrir útfararstjóri
sem loks er orðinn eins og hann á
að sér að vera eftir íþróttameiðslin
hjá Fram þegar sól hans skein
hvað skærast á knattspyrnuvellin-
um.
Teinréttur í útförum
Lengingin skilar sér einnig í
glæstari framgöngu Sverris við
útfarir þar sem hann gengur oft á
undan kistunni og syrgjandi
aðstandendum úr kirkju. Þar eiga
útfararstjórar að ganga teinréttir á
dyr og það gerir Sverrir nú eins og
ekkert hafi í skorist.
Idol-
stjarna gæú svo
leyst Egil Ólafsson af
hólmi sem aðalsöngvari
Stuðmanna enda er Egill
kominn í tungumálanám er-
lendis auk þess að þurfa að
sinna embættisskyldum sem
eiginmaður þjóðleikhússtjóra
en það mun vera ærinn starfi
þegar allt er talið.
Svarthöfði vonar bara að nýir
Stuðmenn eigi eftir að gleðja lands-
menn jafn mikið og lengi og þeir
hinir eldri sem staðið hafa vakt-
ina í þrjátíu ár og rúmlega það.
Tónleikarnir verða auglýstir
síðar.
Svaithöföi
Latibærá
spænsku
Framleiðendur sjón-
varpsþáttanna um Latabæ
hafa gert samning við
Discovery Kids og munu
sýningar á þáttunum hefjast
á Spáni, í Portúgal og lönd-
um Suður-Ameríku. Laúbær
hefúr þegar gert samninga
um sýningar í Norður-Am-
erflcu, Kanada og Þýskalandi
og heíjast sýningar þar nú í
aprilmánuði í samstarfi við
Discovery Kids. Þátturinn
hefur verið sýndur á Nick Jr
í Bandaríkjunum og á YTV í
Kanada. Ævintýrið um Lata-
bæ þekkja flestir en þættim-
ir skarta Glanna Glæp og
íþróttaálfinum svo einhveij-
ir séu nefndir.
Hvalfjarðar-
göngin lokuð
Hvalfjarðargöngin verða
lokuð á laugardaginn kem-
ur milli kl. 8 til 15 vegna
almannavamaæfingarinnar
„Hvalfjarðargöng 2005“.
Sett verður á svið hópslys
til að samhæfa viðbrögð
hlutaðeigandi aðila. Mark-
mið almannavarnaæfingar-
innar er að láta reyna á við-
bragðsáætlun Hvalfjarðar-
ganga sem tók gildi í maí
2004. Þátttakendur í æfing-
unni em meðal annarra
Neyðarlínan, slökkvilið og
lögregla beggja vegna Hval-
Qarðar og Spölur.
„Það var skipt
um báða hnjáliði
og ég er mjög
ánægður með
útkomuna. Ég er
allur beinni og
verulega hærri."
Endurnýjun Stuðmanna
Það voru óvænt tíðindi sem bár-
ust um landsbyggðina í gærmorgun
þegar tilkynnt var að Stuðmenn
hefðu ráðið sér nýja söngkonu í
stað þeirrar gömlu. Það er eins með
hljómsveitir og bfla; stundum þarf
að endurnýja. Ragnhildur Gísla-
dóttir var komin til ára sinna og
gott að slá í nýja og óharðnaða
skvísu. Þar er Hildur Vala úr Idol
ekki verri kostur en aðrir.
En það er í fleiri horn að líta hjá
Stuðmönnum. Þar eru fleiri hljóð-
færaleikarar við aldur sem kominn
er tími á ef Ragnhildur þurfti að
víkja fyrir ungu Idolstjörnunni.
Svarthöfði
Til dæmis Þórður gítarleikari
sem kominn er á sextugsaldur. Ráð
væri að láta Guðmund Pétursson
gítarleikara leysa hann af því þó
Guðmundur sé ekkert unglamb
lengur þá er hann tuttugu ámm
yngri en Þórður.
Og Tómas bassaleikari. Svart-
höfði er á því að Guðni Finnsson í
Ensími gæti vel tekið við bassanum
og haldið þeim hljómi ómenguðum
sem einkennt hefur bassaleik
Hvernig hefur þú það'
„Ég hefþað mjög fínt/'segir Krummi I Mínus.„Er á leið á hljómsveitaræfingu
að semja fyrir næstu plötu. Annars er ég að sjóöa mér egg sem ég læt á ristað
brauð. Það er uppáhaldsmorgunverðurinn minn áöur en ég fer út til móts við
daginn sem bíður."
Stuðmanna til þessa.
Ásgeir Óskarsson
trommuleikari er að kom-
ast á efúrlaun en Addi í
írafári er úl í slag-
inn; þéttari
trommuleik-
ari (
vand-
fundinn
í Reykja-
vík í dag. •
í stað
Jakobs Frí-
manns á
hljómborð mætti
hugsa sér Sigga
í Hjálmum sem
á það sameig-
inlegt með
stjórnanda
Stuðmanna að
stinga í stúf við
almenna
Utfoparstjópi lengist
um 4 sentímetpa
Sverrir Einarsson, útfararstjóri hjá Útfararstofu íslands,
lengdist verulega í aðgerð sem hann gekkst undir á Landspít-
alanum í Fossvogi fyrir skemmstu.