Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.2005, Qupperneq 39

Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.2005, Qupperneq 39
DV Síðast en ekki síst MIÐVIKUDAGUR 13. APRÍL 2005 39 * Hugsum út fyrir kassann Agnes Bragadóttir blaðamaður á Morgunblaðinu ritaði athyglisverða grein á dögunum. Henni er nokkuð niðri fyrir og er greinilega búin að sjá í gegnum ófyrirleitið plott sem mið- ar að því að færa einhverjum útvöld- um Símann á silfurfati. Hún kynnir hugmynd sína um að almenningur í landinu geri tilboð í 45% í Símanum. Þetta er sniðug hugmynd í fljótu bragði og allra góðra gjalda verð. í sjónvarpsfréttum um kvöldið sagði hún að ef 20.000 íslendingar hóuðu sig saman og hver og einn léti eina milljón af hendi rakna til kaupa á Símanum, þá væri hægt að ffam- kvæma þetta. 20.000 íslendingar. Jáhá. Hljómar ekki vel. Jafnvel þótt þeir séu hver og einn með milljón í rassvasanum. Mér fyndist það í raun jaðra við kraftaverk ef 20.000 íslend- ingar kæmu sér saman um einn og sama hlutinn. Skammist ykkar! Við erum sundurleit hjörð sem getum ekki komið okkur saman um eitt eða neitt. Við rífumst um ómerkilegustu mál með jafnmildum hita og þau sem skipta olckur öllu máh. Sjáiði bara Össur og Ingi- björgu. Þau eru í sama flokkinum og byrjuð að rífast. Eru reglulega dóna- leg hvort við annað. Hann sagði að hún væri eitthvað léleg og hún sagði að hann væri ósmekklegur. Hættiði þessu vitleysingamir ykkar! Svona rígur er engum tU góðs nema and- stæðingum ykkar. Stóru málin eiga að njóta krafta ykkar, ekki karp um hvort sé verra. Karpið frekar um það hvort sé betra. Það er kannski hégómlegt en aUa vega ekki ykkur til minnkunar. Viðskiptasiðferði Fyrir nokkrum mánuðum komst upp um ólöglegt verðsamráð oh'ufé- laganna. TaUð er að þetta samráð hafi kostað hvert mannsbarn á ís- landi u.þ.b. 70 þúsund krónur. ÖU félögin þrjú nema eitt skömmuðust sín og báðust afsökunar (ekki Oh's). Nú er augljóst að þessi þrjú félög eru að reyna að bola Atlantsolíu út af markaðinum með því að selja bens- ínið undir kostnaðarverði. Okkur ís- lendingum er í raun sama. Við erum búin að fá leið á þessu máli og nenn- um ekki að pæla frekar í þessu. Því miður. Ég vUdi óska að stjórnendur Reykjavíkurborgar hefðu þann karakter tfl að bera að taka þrjár söluhæstu bensínstöðvar samráðs- stöðvannna eignarnámi og afhenda Atlantsolíu tU afnota. Það er nefni- lega augljóst að samráðsstöðvunum er ekki treystandi tíl þess að reka Teitur Atlason brýnir fólk til góöra verka. Kjallari Hún kynnir til hug- myndsína um að al- menningur í landinu geri tilboð í 45% í Símanum. ÝÞetta er sniðug hugmynd í fljótu bragði og allra góðra gjalda verð. bensínstöðvar í Reykjavík. Við- skiptasiðferði er stórt mál. Ekki hvort Össur líti út eins og Monza bangsi. Umhverfismál Eftir að Álbræðslan á Austurlandi kemst í gagnið mun mengun af hennar völdum jaftigilda því að bíla- floti landsmanna tvöfaldast. Þetta gerist á sama tíma og færustu vísindamenn segja okkur að veruleg hætta sé á ferðinni varðandi áhrif mengunar og brýna nauðsyn beri til að stíga á hemlana. Skiptir þetta engu máli eða hvað, Ingibjörg og Össur? Ég veit að þessi mál eru hræðfleg og óþægUegt að hugsa tU þess að svartsýnustu spár vísinda- manna rætist en að afgreiða þau með þögninni einni saman er óábyrgt. Jafnvel enn óábyrgara en að brigsla hvort öðru um smekkleysu. Umhverfismál eru stórt mál sem verða ekki leyst með fundum og ráð- stefnum heldur aðgerðum. Merki- legra mál en hvort Ingibjörg skreyti sig með ljótri kvennalistanælu úr hrosshárum og höri. Útlendingamál Hérlendis eru þúsundir verka- manna af erlendum uppruna. Þetta fólk er í verstu störfunum og er með lægstu launin. Réttindi þeirra eru fyrir borð borin vegna þess að þau þora ekki að klaga vinnuveitenda sinn. Verkalýðsfélögin hafa brugð- ist þessum skjólstæðingum sín- um.Þau hafa ekki passað upp á þá sem mest þurfa á hjálp heldur ein- blínt á þá sem mest kaupið hafa. Allir vita að lægstu taxtar eru hugs- aðir fyrir útlendinga en ekki íslend- inga. Þessar aðstæður eru okkur sem þjóð til skammar og hryllilegt að vita til þess að það er gert upp á milli fólks launalega eftir því hvað- an það kemur úr veröldinni. Fyrir skömmu var eiginmanni vísað úr landi frá konu sinni og ungu barni. Þetta mál er þjóðarskömm og verð- ur að bæta og minnir um margt á dökka fortíð okkar íslendinga frá stríðsárunum þegar við vísuðum erlendu fólki út í dauðann. Útlend- ingamál er stórt mál, Ingibjörg og Össur. Hættið að rífast og reynið að ná til mín með málefnalegum hætti en ekki með því að níða hvort ann- að. Við eigum Símann Ég byrjaði þennan pistil á hug- leiðingum Agnesar Bragadóttur um yfirvofandi útsölu á Símanum og ætla að ljúka honum á hugmynd sem er góð. Fyrst við íslendingar eigum Símann (er það nokkuð um- deilt?) væri bara eldd sniðugt að við fengjum okkar eignarhlut til baka hvert og eitt? Eitt hlutabréf á mann sem við síðan getum selt þeim sem við viljum? Það er jú fáránlegt að kaupa það sem maður þegar á, ekki satt? Af hverju ekki að hugsa aðeins út fyrir kassann og reyna eitthvað nýtt? Landsímagengið stingur saman nefjum Ráðherra Símans, forstjóri Símans og stjórnarformaður Sfmans - Símans okkar allra. rqun iSSÍiB Nokkur vindur Besta veðrið i dag verður annars staðar en fyrir norðan, en forsetinn er einmitt á Akureyri. Þar verður kalt en annars má gera ráð fýrir sól og hægum vindi. Þvi er ijóst að forseti fær ekki atkvæði veðurguðanna í þetta sinn. Nokkur vindur Nokkur vindur Nokkur vindur Kaupmannahöfn 9 Oslo H Stokkhólmur Helsinki 9 London h Paris Berlín Frankfurt Madríd Barcelona 13 Torrevieja 18 Mílanó New York 21 San Francisco 18 Orlando/Flórída Sólarupprás Sólarlag I Árdegisflóð 09.08 í Reykjavík Reykjavík Siðdegisflóö 21.26 06.03 2056 Kristján Guy Burgess • MMlæúurðuáAl- þingi í gær þegar Helgi Hjörvar vildi spyrja út í meint tengsl Halldórs Ásgrímssonar forsætís- ráðherra og Framsókn- arflokksins við tilboðs- gjafa í Símann. Tileftii spumingarinnar er væntanlega tortryggni vegna aðildar manna sem tengjast Halldóri í fyrri einkavæðingu. Er riijað upp þegar fé- lagið Hesteyri var stofnað til að hafa forystu í S-hópnum sem undirbjó kaupin á Búnaðarbankanum. Helm- inginn í Hesteyri átti fjölskyldufyrirtæki Halldórs, Skinney-Þinganes á Homa- firði og bróðursonm hans var fram- kvæmdastjóri. Fullyrt var í Frjálsri verslun að daginn áður en rfldsstjómin ákvað að ganga til samninga til S-hóp- inn, hafi Hesteyri leyst inn 700 milljón króna hagnað af viðskiptum með bréf í Keri og VÍS sem ættí að þýða 350 millj- ónir inn í fjölskyldufyrirtækið... • Núna á Skinney- Þinganes 9 prósenta hlutíVÍSog situr Ingólfúr Ásgrftnsson bróðir Halldórs í stjóm fyrirtækisins í kraftí þeirrar stöðu. Forstjóri VÍS er fyrrum varaformaður og ráð- herra Framsóknarflokksins, Finnur Ingólfsson og í stjóm VÍS sitja nokkrir af helstu bakhjörlum Framsóknar- flokksins í viðskiptalífinu. VÍS er alvar- lega að skoða kaup í Símanum í félagi við fjátfestíngafélagið Meið. Halldór varð reiður við spumingar Helga Hjörvar á Alþingi og neitaði að tala um málið, sagði þingmanninn draga gróusögur inn í Álþingishúsið... • Halldór sagði að það hvarflaði ekki að sér að taka undir gróusögur um meint tengsl Samfylkingarinnar og Baugs. Er af því tílefni hér rifjað upp það sem kom fram í DV fyrir ári. Þar fúllyrtu stjómendur Baugs að þeir hefðu ekki greitt í sjóði SamfyUdngar- innar fyrir síðustu kosningar, en við- urkenndu að Framsóknarflokkurinn hefði verið í peningaáskrift hjá Baugi og þegið 100 þúsund krónur á mánuði inn á sína reikninga, allt í allt 2,4 millj- ónir... • Annað sem rifjað er upp í tilefni af einka- væðingú Símans er hvemig núverandi for- maður einkavæðingar- nefitdar Rfldsstjómar- innar, Jón Sveinsson hafi setið áfram sem stjómarformaður í íslenskum aðalverktökum eftír að fyrirtækið var einkavætt. Innan úr Landsbankanum hefur DV heyrt aö Jón hafi fyrir einkavæðingu hringt í bankann til að kvarta undan því að fyrirtækið væri of hátt metíð í plaggi frá greiningardeild bankans. Þetta þótti bankamönnum afar sérkennilegt þar sem þeir héldu að það væri hagur einkavæðingamefndarinnar að sem hæst verð fengist fyrir verktakana... • Óskar Magnússon í Tryggingamiðstöðinni situr nú stíft við og skrifar upp á starfsloka- samninga við fynurn toppstjómendur þar. Þremur var sagt upp og aðrir færðir niður í tígn þannig að greinilegt er að nýir siðir fylgja nýjum herrum. Til að mynda Jiringdi Óskar í Ágúst Ög- mundsson aðstoðarforstjóra til út- landa þar sem Ágúst var í golfferð og sagði honum að hann ættí ekki að vera í nýju sldpuriti Tryggingamið- stöðvarinnar... < > kz * * ■- Jt

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.