Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2005, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2005, Blaðsíða 3
DV Fyrst og fremst FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 2005 3 Skyndimyndin Maður á hjóli í Kringlunni Hjólaö í Krinnliinni Vorið er komið og grundirnar gróa. Ekki þarf að fjölyrða um það að margir hafa tekið út reiðhjólin sín og eru byrjaðir að hjóla í góða veðrinu. Þessi mynd er tekin í Kringlunni, innan- dyra. Á henni má sjá að greinilega eru það ekki allir sem nýta sér góða veðrið. Ástæðan gæti hugsanlega verið sú að Útilíf í Kringlunni selur reiðhjól og gæti þessi einstaklingur verið að prófa vöruna áður en hann kaupir. Rut Arnardóttir, aðstoðarverslunarstjóri í Útilífi, kannaðist ekki nægilega við þetta einstaka mál en sagði það koma sér á óvart. „Fólk á ekki að fá að prófa hjólin inni í Kringlunni, það er bannað. Ég veit ekki hvað þetta var eða hvort þetta hafi ver- ið frá okkur,“ segir Rut. Hjólasölutímabilið er nú í hámarki og að að sögn Rutar hef- ur verið gríðarleg sala í verslunum þeirra. Sjálf er hún mjög hlynnt því að fólk nýti góða veðrið til hjóheiða. „Það að hjóla er gott og hressandi," segir Rut í Útilífi. Spurning dagsins Á að breyta sýningartíma Strákanna á Stöð 2? „Foreldrar bera ábyrgðina" „Nei, alls ekki. Þetta er frábær þáttur og for- eldrar bera ábyrgðina á því hvort börnin þeirra horfi eða ekki." Erna Rut Halldórsdóttir nemi. „Ég veit það ekki. Ég er ekki með Stöð 2 svo ég hefenga skoðun áþví." Steinunn Þórðardóttir verslunarkona. „Já, mér finnst það. Það ætti að breyta þessu svo að börnin séu ekki að horfa og herma." María Jonný Sæmundsdóttir nemi. •„Nei, ég held að foreldrar ættu frekar að banna börnum að horfa." Ásgeir Erlendsson nemi. „Já, mér finnst það. Litlu börn- in eru svo áhrifagjörn." Berglind Þorfinssdóttir, starfsmaður Morgun- blaðsins. Kröfur hafa verið settar fram um að sjónvarpsþátturinn Strákarnir á Stöð 2 verði færður á dagskrá síðar á kvöldin en nú er.Ástæðan eru meint slæmt áhrif þáttanna á yngstu kynslóðina. Las DV frá þriggja ára aldri Gamla myndin í dag er frá árinu 1993 af þriggja ára stelpu sem las DV iyrir blaðamann. „Mig rámar nú í þetta en ég vissi náttúrulega ekkert hvað var að ger- ast,“ segir María Björk Einarsdóttir sem nú er í 10. bekk á Egilsstöðum. „Ég byrjaði að læra að lesa tveggja ára, foreldrar mínir eru kennarar og pabbi er nú aðstoðarskólastjóri.“ María segist nú einungis hafa lesið Dagblaðið en blaðamaðurinn hafi ekki trúað því að hún kynni að lesa. „DV kom svo bara inn um lúguna og ég byrjaði að lesa fyrir hann,“ segir María sem undirbýr sig af krafti fyrir samræmdu prófin. „Þau leggjast nú bara nokkuð vel í mig og ég reyni að vera dugleg. Ætli ég fari ekki bara í ME til að byrja með en svo veit ég ekki." María segist ekki æda að verða kennari eins og foreldrar hennar en er ekki viss hvað hún ætli að gera í fram- tíðinni. „Ég hef alltaf lesið mjög mikið, bæði bókmenntir og blöð. Ég byrjaði líka að lesa snemma það sem er á net- „Ástandið á Siglufiröi veröur enn verra eftir göng, afþviþá hafa þeir veriö sviptirþeirri trú aö það séu göngin sem vantar." Guðmundur Ólafsson hagfræðingur sýnir á stundum fágæt tilþrif á kommentakerfi á síðu Egils Helgasonar. Bytta er nú til dags sagt um drykkjusjúk- linga en upphaflega yfsaði orðið til íláts- ins sem drykkjuraftar supu áfengið úr. Orðið er reyndar náskylt „bottle" á ensku, sem merkir flaska. I enskuna barst það úr frönsku, bouteille, þaðan sem það kom úrlatlnu, butticula.„Bottle" barst til Islands sem bottla, en er lítið notað. Málið Það er staðreynd að Lög urinn er sjötta dýpsta stöðuvatn landsins, 112 metra djúpt og nær um 90 m niður fyrir sjávarmál. ÞÆR ERU MÆÐGUR Söngkonan & athafnakonan Kristin Á. Ólafsdóttir, ieikkona, söngkona og kennari, og Melkorka Óskarsdóttir bókmenntafræöingur eru mæðgur. Melkorka hefur meðal annars veriö viö- riðin Stúdentaieikhúsiö i mörg ár og unnið við myndir Sigurjóns Sighvatsson- ar sem teknar hafa verið hérá landi. Pabbi Melkorku og eiginmaður Kristinar er Óskar Guðmundsson, sagnfræöingur og rithöfundur. Vorhátíð hestamanna '05 í ReiðhöHinni Víðidal I Landsmótssigurvegarar / Knapi ársins / Glæsihryssur / Glæsistóðhestar / Ræktunarbússýningar / Suðri frá Holtsmúla með afkvæmum / Tumi frá Stóra Hofi / Sæli frá Skálakoti / íslandsmeistarar i fimmgangi I Kröftugar skrautsýningar / Hvað getur islenski hesturinn ekki sem önnur hestakyn g / Dagskrá helgarinnar: I Föstudagur: Sýning kl. 21:00 / Laugardagur: Sýning kl. 21:00 / Laugardagur: Kennslusýning FT og Hólaskóla kl. 9:00 I Sunnudagur: Kennslusýning FT og Hólaskóla kl. 9:00 I Miðasalan fer fram i Reiðhöllinni i Viðidal og í sima 5670100 fimmtudaginn 28/4 frá kl. 15:00 - 18:00 föstudagínn 29/4 frá kl. 15:00 - laugardaginn 30/4 frá kl. 14:00 - Miðaverð: 1500 kr. fös. og 2500 kr. lau. 29, 30 apríl og 1 maí / Fagmennska til framtiðar. / KcnnsJusýning og endurmenntunar- / namskcid FT og Hóiaskoia I sam- / starfi vid hostamannatclagiA FAk og j I Ástund hcfst laugard. kt. 9:00 og I j sunnud. kl. 9:00. Komið og fytgist / j nieð okkar færustu kennurum. / / Allir velkomriir / / Miðar sddir við inrtganginn. / //

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.