Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2005, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2005, Blaðsíða 13
DV Fréttir FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 2005 13 Undarlegur aðdragandi banaslyss 52 ára gömul kona lést að kvöldi þriðjudags þegar hún ók stolnum bíl út af Upp- héraðsvegi skammt frá Eg- ilsstöðum. Ekki er vitað hvað konunni gekk til þegar hún yf- irgaf skemmti- staðinn Café Nielsen án þess að borga reikninginn og tók síðan bifreið ungs pilts í bænum án leyfis. Samkvæmt heim- ildum DV átti konan í deilu við mann inni á staðnum um hálftíma áður en hún fór. Grunur er um ölvunar- akstur. Konan bjó í Möðru- felli 11 í Reykjavík. Hún hét Guðrún Sigurbjörg Sigurð- ardóttir og skilur eftir sig þrjú börn og sex barna- börn. Átökaf hinu góða Jón Baldvin Hannibals- son sendiherra er ósam- mála starfsfé- laga sínum, Sig- hvati Björgvins- syni, um átök um formanns- stól Samfylking- arinnar. Sig- hvatur reifar áhyggjur um klofning flokksins á heima- síðu Össurs en Jón Baldvin svara honum á heimasíðu Ingbjargar Sólrúnar. Jón Baldvin bendir á aðeins geti flokkurinn skaðast ef sá sem tapar kann ekki að sh'ðra sverðin og vinna með sigurvegaranum. Hvort sem gerist sé gott fyrir flokkinn. Gallar þess er tap- ar séu þá komnir í ljós áður en hann hugsanlega kemst í stjórnarráðið. Eldur ífjöl- býlishúsi Eldur kom upp í íbúð í Álfholti í Hafnarfirði um klukkan eitt í gær. Að sögn lögreglu kvikn- aði í út frá pappír sem lá á heitri hellu. Lögregla rýmdi húsið. Talið er að um tíu til fimmtán manns hafi verið staddir í húsinu, þar á meðal dagmamma með nokk- ur börn. Eldurinn var lítill og tók örfáar mín- útur að slökkva hann. Eldhúsinnrétting skemmdist og miklar reyk- og sótskemmdir urðu. Palestína til sölu Safndiskurinn Frjáls Palestína verður til sölu í 1. maí-göngunni í Reykjavík á sérstöku tilboðsverði; að- eins 1.500 krónur. Félag- ar í Félaginu Ísland-Palest- ína annast söl- una. Félagið verður einnig með neyðarsöftnm fyrir Palestínu á staðnum. Safh- ast verður saman við Hall- grímskirkju hálftvö og fer diskasala og söfnun fram bæði fyrir og eftir gönguna. Diskurinn heldur síðan áfram að fást í öllum helstu hlj ómplötuverslunum landsins, völdum bóka- verslunum og í gegnum netverslun Skífunnar. Viðskiptavinir Sparisjóðs Hafnarfjarðar reiðir vegna óvinveittrar yfirtöku á bankanum „Þetta er bara æðibunugangur sem enginn skilur," segir Sveinn Sig- urbergsson, verslunarstjóri Fjarðar- kaupa í Hafnarfirði. Eftir óvinveitta yfirtöku Páls Páls- sonar og félaga á Sparisjóði Hafnar- fjarðar í síðustu viku, þar sem Mathiesen-ættinni var bolað út, íhuga fjölmargir viðskiptavinir að hætta að skipta við bankann. Fjarðarkaup er einn stærsti við- skiptaaðili Sparisjóðs Hafnarfjarðar og hefur staðið með bankanum, líkt og meirihluti bæjarbúa, síðustu ára- tugi. Nú eru þau viðskipti í upp- námi, bæði hjá Fjarðarkaupum og fjölda bæjarbúa sem ofbýður sú harka sem notuð var til að ná ákvarðanir verða teknar." DV hefur einnig heim- ildir fyrir því að millj- arðaviðskipti Hafnar- fjaröarbæjar við Spari- sjóðinn séu í hættu. Bærinn hefur þegar boðið út fjármálastarf- semi sína og hafa tveir bankar auk Sparisjóðsins gert tilboð. Líkur eru á því að yfirtakan nú minnki enn líkurnar á að Sparisjóð- urinn hreppi hnossið. Spurningin sem brennur samt á bæjarbúum er sú af hverju Páll völdum í bankanum. „Engin spurning. Það eru allir við- skiptavinir í óvissu,“ segir Sveinn sem tek- ur þó fram að engar ákvarðanir haii verið teknar. „Eigandi Fjarðarkaupa er sem stendur erlendis og við munum hinkra og sjá hvað þessi nýja stjórn ætíar sér. Þegar hann kemur heim munu í hættu Pálsson, núverandi stjórnarformað- ur bankans, og félagar ýttu Mathie- sen ættínni út úr bankanum, ráku sparisjóðsstjórann og fleiri starfs- menn og komu sínum mönnum að. Matthías Á. Mathiesen, fyrrum stjórnarmaður hjá SPRON, segist hafa tekið þá ákvörðun að ræða það mál ekki í fjölmiðlum. Svarið eru þó líklega peningar því 13 sæti eru laus í hópi stofnfjáreig- enda bankans. Þeir stofnfjáreigend- ur sem eru fyrir munu hagnast um tugi miUjóna ef bankinn verður seld- ur. Nú þegar hafa heyrst raddir um að KB banki vilji kaupa Sparisjóð- inn. Þá verður hagnaður þeirra sem standa í brúnni gríðarlegur. MÁLNING WBBM VTEKNOS afsláttur af öllum málningarvörum v TEKNOS Innimálning kr. 2980.- 10 L Innimálning kr. 1290.- 3 L BIORA INNIMÁLNING FRÁTEKNOS Vteknos ®D(o. V Ný tegund almattrar veggjamáln- ingar sem hefur mikla þvottheldni •/ Þolir yfir 10000 burstastrokur skv. SFS 3755 staðlinum v'' Gæðastöðluð vara á góðu verði v'' Ábyrgð tekin á öllum vörum ÍSLANDSMÁLNING • Sími 517 1500 • Vöruhús / verslun Sætúni 4 IfffÍH®|l#it >; e4 ,' u — •11

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.