Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2005, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2005, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 2005 Fréttir DV Stendur með Grétari Hæstiréttur staðfesti dóm héraðsdóms yfir lík- fundarmönnunum þremur; Grétari Sigurðssyni, Jónasi Inga Ragneurssyni og Tom- asi Malakauskas. Allir fá þeir tveggja og hálfs árs dóma; þyngstu refsingu mögulega fyrir illa meðferð sína á liki Vaidasar. Heið- veig Þráinsdóttir, kærasta Grétars, segir dóminn ekki hafa áhrif á samband hennar og Grétars sem starfað hefur síðustu mán- uði sem dyravörður á De Palace. „Við erum enn saman og munum verða það áfram," segir Heiðveig. Litla-Hraun stækkað Dómsmálaráðuneyti hefur mælst til þess við Fangelsismálastofnun að viðræður hefjist um land í kringum fangelsið á Lida- Hrauni. Fyrirhuguð er stækkun á Litla-Hrauni en landið í kring er að hluta til í eigu ríkisins og að hluta í eigu Árborgar. Viðræðurnar munu miða að því að kom- ast að samkomulagi um hvernig landið verður nýtt. Vill svör frá Davíð Ragnar Aðalsteinsson hæstaréttarlögmaður óskar í bréfi eftir svari Davíðs Oddssonar við því hvemig þeim fjórum milljónum sem utanríkisráðherra átti að út- hluta til mannréttindamála hafi verið úthlutað og með hvaða hætti hafi verið stað- ið að úthlutuninni. „Ég sendi þetta bréf bara sem borgari í þessu landi og vil fá að vita hvemig staðið var að úthlutun þessa fjár," seg- ir Ragnar. „Ég vil fá að vita hvaða reglur hafi verið sett- ar um úthlutunina, hvar hafi verið auglýst, hverjum hafi verið úthlutað og á hvaða forsendu." Kalla þurfti til aukafundar í Lögmannafélagi íslands vegna tveggja milljón króna peningagjafar sem Bónus færði félaginu á árshátíð þess. Jakob Möller, fyrrverandi formaður félagsins, vildi ekki þiggja en Örn Clausen sagði að menn ættu að halda kjafti og þakka fyrir sig. Lögmenn í hár snmnn út nf peningagjnf Bónuss Jakob Möller Vitdi ekki pen- inga frdBónus. Kalla þurfti til sérstakan aukafund í Lögmannafélagi íslands vegna peningagjafar sem Bónus færði félaginu á árshátíð sem lögmenn héldu á Hótel Sögu um miðjan mars. Á árshátíðinni til- kynnti Kristín Jóhannesdóttir, dóttir Jóhannesar í Bónus, um gjöf frá fyrirtæki fjölskyldunnar til Lögmannafélagsins upp á tvær milljónir króna sem renna skyldu í námssjóð félagsins. Kristín er lögfræðingur að mennt og fyrir bragðið félagi í Lögmannafé- lagi fslands. Brá mörgum lögffæð- ingum í brún þegar tilkynnt var um milljónirnar tvær frá Bónus og kröfðust í framhaldinu aukafundar vegna málsins. „Ég vil aðeins að félagið taka af- stöðu til þess hvaða styrki eða gjafir félagið getur þegið,“ sagði Jakob Möller, hæstaréttarlögmaður og fýrrverandi formaður Lögmannafé- lagsins, skömmu áður en hann gekk til fundar síðdegis í gær. Að öðru leyti vildi Jakob ekki tjá sig um málið eða svara spurningu um hvort máli skipti hvaðan peningarnir kæmu. „Hreint hneyksli" Helgi Jóhannesson, formaður Lögmannafélagsins, var lilynntur því að þiggja gjöfina en lét undan þrýstingi um að fundur skyldi hald- inn. Var Helgi vel studdur af Erni Clausen hæstaréttarlögmanni sem sparaði ekki stóru orðin áður en hann gekk til fundar við félaga sína: „Það er hreint hneyksli að þiggja ekki gjöfina þótt hún komi frá Bón- us. Ég held að þessir menn eigi bara að hafa vit á því að halda kjafti og þakka fyrir sig,“ sagði örn Clausen. Fundi lögmannanna lauk skömmu fyrir kvöldmat í gærkvöldi og þá var bjartara yfir Erni Clausen en áður: Takk með . einuat- k kvæði Bk „Þetta H var ágætur B fundur þar I sem tillaga I um að skila ■ gjöfinni var Ijjf felld með yfirgnæf- % andi meiri- f hluta at- W kvæða. Þá var jí samþykkt til- ! laga um að fela stjórninni að skipa nefnd til k að setja regl- ur um gjafir og annað sem til félagsins bærist. En það gleðilegasta var að einnig var samþykkt tillaga um að þakka Bónus fyrir milljónirnar tvær en sú tillaga var aðeins samþykkt með eins atkvæðis mun,“ sagði Örn Clausen eftir fundinn í gærkvöldi. Helgi Jóhannesson Formaðurinn lét undan þrýstingi og boðaði aukafund vegna peningagjafar frá Bónus. Örn Clausen Hvatti féiaga slna til aðhaida kjafti og þakka fyrir sig. Kristín Jóhannesdóttir Ætiaði að gleðja kollega sína á árshátið Lög- mannafélagsins en tvær milljónir féllu í grýttan jarðveg hjá sumum. Við dánarbeð karlmannsins karlmenni hlaupa nú um eins og kjánar, gantast, flissa og slá sér á lær. Gagnkynhneigðir menn bera á sig krem til þess að verða ennþá mýkri, lita á sér hárið og punta sig eins og dúkkur. Svarthöfði situr við dánarbeð karlmennisins og berst við að gráta ekki. Hann heldur í hönd þess og bíður hins óumflýjanlega: Að hann missi út fýrsta tárið - á sama augna- bliki verður karlmennið dautt. Svarthöfði anlegu æðruleysi, líkt og Hitler í neðanjarðarbyrginu. Fyrirmyndimar hafa stökkbreyst og heil kynslóð með. Þessi kynslóð er kölluð krúttkynslóðin. f stað þess að fínt sé fýrir karla að vera hraustir og staðfastir er best að vera krúttíeg- ur og fyndinn. Karlmaðurinn fór úr því að vera stríðsmaður í hirðfífl. Umbreytingin er að eiga sér stað í þessum töluðu orðum í grunnskól- um, leikskólum, menntaskólum, vinnustöðum og inni á heimilum. „Ég hefþaö frábært," segir Jón Tryggvi Unnarsson, verslunarmaöur og fyrirsæta. „Ég var að fá lán samþykkt í bankanum mínum og er því á leiðinni út I búð að kaupa mér draumagræjuna mína, Macintosh-fartölvu. Tölvuna ætla ég að nota I tónlistarupptökursem ég hefverið að vinna að ílangan tíma." Karlmennið er deyjandi. Þegar Svarthöfði ólst upp hafði hann sínar fyrirmyndir sem mótuðu form utanum hugarfar hans og fas. Faðir hans var heljarmenni að hold- um og í huga. Stjórnaði dým fleyi, sótti afla í haf og lyfti þungum byrð- um, bara til þess að gera það. Nú þykja slík þrekvirki léttvæg. Éinnig hefur Svarthöfði haft vel- þóknun á þeim mönnum í sjónvarpi sem drepa aðra menn, illa menn. Fyrir tíu árum var það líka svo að börnin hrifust með ofurhetjum og litu upp til sterkra manna. Ofureflið var dyggð. Arnold Schwarzenegger var dáður, Sylvester Stallone mark- aði spor í huga ungmenna bæði sem Rambo og sem Rocky. Bubbi söng um slægingar, drukknun og hörð fíkniefni. Svo byrjaði Sylvester Stallone að leika í grínmyndum, Schwarzen- egger varð mjúkur maður og Bubbi sönglaði um lífið og ástina, og var síðan svikinn af ástinni. Niðurlæg- ing karlmennskunnar er orðin og eftir standa karlmenni steinrunnin á stangli, bíðandi dauða síns í óskilj- Hvernig hefur þú það?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.