Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2005, Blaðsíða 39

Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2005, Blaðsíða 39
DV Síðast en ekki síst FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 2005 39 Gömul plága Kjallari Þorsteinn Guðmundsson fékk þriggja metra hán jólasvein í heimsókn. Ég kom heim úr vinnunni og ég vissi að ég væri einn heima sem reyndar er sjaldgæft. Maður á mín- um aldri er sjaldnast einn. Ég smeygði mér úr sveittum skónum og hristi fætuma aðeins til þess að loft- þurrka þá og fá blóðrásina í gang. Ég hallaði mér upp að útihurðinni og slakaði á. Þetta geri ég oft þegar ég kem heim, sérstaklega þegar ég veit að ég er einn. En ég var ekki einn þennan dag. Úr stofunni barst greinilega jólatónlist, einhvers kon- ar bjölluspil og Helgu Möllerlegt lag. Ég sperrti eyrun og gekk svo varlega inn. Ég átti von á hverju sem er og vildi fara varlega, hlutfall mglaðra íslendinga hefur farið ört vaxandi á síðustu árum, ENGAR SNÖGGAR HREYFINGAR, er eiginlega orðið að boðorði dagsins, hvort sem er úti í matvöruverslun eða í sturtunni í sundlaugunum, VARÚÐ FULLT AF KLIKKUÐU LIÐI, er skilti sem væri hægt að setja upp hvar sem er. Grenjandi sveinn í hægindastólnum mínum í stof- unni sat jólasveinn, eldri maður með skegg og í rauðum búningi, það lagði af honum sterkan keim af tá- fylu og Old Spice. Get ég aðstoðað? spurði ég slepjulega eins og af- greiðslumaður í skóverslun og sá um leið eftir því að sýna óþarfa kurt- eisi. Ég kannaðist ekki við að hafa boðið þessum manni inn, hvað þá að hafa boðið honum að setjast í stólinn minn. Hann leit hægt upp og ég sá samstundis að hann var drukk- inn, hversu drukkinn, var erfitt að segja en hann var alveg örugglega undir áhrifum áfengis. Ha? spurði hann svo. Ég er jólasveinninn. Já, ég sé það, svaraði ég kuldalega og tókst betur að vera hranalegur. Ég er kom- inn til þín, sagði jólasveinninn. Ég er kominn til þín Þorsteinn vegna þess að þú ert einn gáfaðasti maður landsins. Aha, umlaðaði ég. Ekki al- veg svarið sem hafði átt von á en svar að mínu skapi engu að síður. Kvartandi sveinn Ég gaf honum te og rúsínur. Hann hakkaði þær í sig eins og hann hefði aldrei fengið matarbita. Ég er Þú ert svona trúður fyrir kapítalista, það vita allir. En af hverju ætti fólk að hlusta á þig? Hvað hefur þú að segja? orðinn úreltur, sagði hann. Ég er tímaskekkja, fokking tímaskekkja, tautaði hann fyrir munni sér. Tja, svaraði ég, þú mátt ekki dæma þig of hart. Ég trúi reyndar ekki á þig en það er fullt af fólki um allan bæ sem tekur þig trúanlegan. Margir sem hafa gaman af þér og svona. Já, ég veit, svaraði hann, en það er allt á yfirborðinu. Þannig var það ekki einu sinni. Þá var ég djúpur, jafn- djúpur og hver annar. Nú er litið á mig sem einhvers konar fi'fl fyrir börn. Fólk notar mig, það hlustar ekki á mig, notar mig bara til þess að selja jólagjafir og allt það ... og hann sökkti sér ofan í rúsínupakkann. Já, sagði ég yfirvegað og gáfulega. Þetta eru ekki nýjar fféttir. Þú ert svona trúður fyrir kapítalista, það vita allir. En af hverju ætti fólk að hlusta á þig? Hvað hefur þú að segja? Ógnandi brjál Ég hef margt að segja, svaraði hann og starði á mig. Ég starði aftur á móti á rúsínu sem sat föst í skegg- inu á honum. Ég hlusta. Hann reis á fætur og nú tók ég eftir því að hann var a.m.k. þrír metrar á hæð. Ég for- dæmi fóstureyðingar, ég fordæmi samkynhneigða, ég fordæmi rokk- tónlist. Hann var ógnandi og ógeðs- legur. Ég vil að konur séu heima að hugsa um börnin og ég fordæmi getnaðarvarnir. Ég held hlífiskildi yfir bamapervertum. Ég er fokking tímaskekkja og ekki ennþá búinn að ná síðustu öld, ég veit ekki hvern fjandann ég á að gera þessa öldina. Hvað gerir maður sem missir af einni öld? Ég veit það ekki, sagði ég eins lágt og ég gat. Ég vildi ekki reita hann til reiði, hann var ógnandi og ógurlegur, hefði auðveldlega getað kastað mér alla leið til helvítis. Engir töfrar Böm hafa gaman af þér, benti ég kurteislega á. Já! öskraði hann á móti, það er vegna þess að þau halda að það sé eitthvað á mér að græða. Þau halda að ég geti reddað þeim einu og öðm. Leikföngum og betra Kfi og nú var hann farinn að öskra á mig. Ég kinkaði kolli, tók rús- ínumar og tebollann af borðinu, fór með það fram í eldhús og kallaði svo inn í stofuna: Farðu út. Þú ert ekki velkominn hingað. Farðu! Ég veit ekki á hverju ég átti von, kannski átti ég í raun von á því að hann léti sig hverfa og þá meina ég hverfa í sömu merkingu og Skari skrípó lætur sig hverfa. En hann gerði það ekki. Þeg- ar ég kom aftur inn í stofuna sat hann þar enn úti í homi, kjökrandi, fullur og angandi af táfýlu og rak- spíranum sem ég á svo erfitt með að þola... Old Spice. morguni frr1 / Nú segja 1 spekingarað j það sé að ' bresta á með " nettu kuldakasti sem ná muni hámarki um helgina. I dag verður til dæmis þokkalega hryssingslegt um allt norðanvert landið þótt það stefni í notalegheit á suðvesturhorninu. X Strekkingur eí Gv CV é * v Nokkur vindur f ( Strekkingur ~ S é é Nokkur vindur Nokkur vindur S/ 2 * * Strekkingur 10 Nokkur- vindur Nokkur vindur C2>y Nokkur vindur ? Strekkingur é é Allhvasst Kaupmannahöfn 9 Paris 20 Alicante 23 Oslo 10 Berltn 17 Milanó 24 Stokkhólmur 15 Amsterdam 16 New York 16 Helsinki 10 Madrid 26 San Francisco 18 London 18 Barcelona 21 Orlando/Flórida 31 : Q S £2> ( -iQ sQ * * j Sólarupprás Sólarlag í Ardegisfióð 09.43 I Reykjavík Reykjavlk siðdegisfióð 22.14 05.06 21.46 Jakob Bjarnar Grétarsson • Bítlakynslóðin í Keflavík, ‘51 ár- gangurinn, ætlar að fagna 40 ára fermingarafmæli sínu í Golfskálanum á Leiru eftir rúman hálfan mánuð og stendur nú yfir mik- ill undirbúningur. Eru menn til dæmis að dusta ryk af hljóðfæmm. Þessi hópur telur með- al annarra Magnús Kjartansson, Helga Jóhannsson hjá Sumarferðum, Þorstein Ólafsson fyrrv. landsliðsmark- vörð og Stefán Ólafsson prófessor svo einhverjir séu nefndir. Samkvæmt upplýsingum úr innsta hring er viðbúnaður hjá lög- reglu vegna þessa en hinn glaði hóp- ur reiknar þó með skilningi þar á bæ því Karl Hermannsson fyrrum söngvari Hljóma er nú orðinn yfirlögregluþjónn og rntrn væntanlega horfa í gegnum fingur sér keyri allt um þverbak og launa þannig stuöninginn frá árinu 1962... • Ólafur B. Guðna- son stendur fyrir æsispennandi spurningakeppni á Talstöðinni og em nú þrjú gáfumenni komin í úrvalshóp eftir þrjá sigra og munu þau takast á síðar í úrslitum. Þetta em þau Egill Helgason, Kristján B. Jónasson og Krístrún Heimis- dóttir. Á miðviku- daginn kepptu gamlir samherjar úr Spurningakeppni framhaldsskóla og lagði spurninga- ljónið Stefán Pálsson Svein Guð- marsson og stefnir ótrauður í ofur- heilahóp Ólafs... • Bjöm Ingi Hrafnsson, aðstoðar- maður Halldórs, gerir æsta smölun í Samfylkinguna vegna formanns- kjörs að umtalsefrii í nýjum pistli á bjorn- ingi.is. Hann bendir á að einn þeirra sem fékk atkvæðaseðil í vikunni og áróðurs- póst frá „æstum stuðningsmönnum frambjóðenda til formanns" sé Steingrímur S. Ólafeson, blaðafull- trúi Halldórs. Hann hefur aldrei verið í Samfylkingunni segir Björn Ingi og spyr sár hvers vegna hann hafi ekki fengið atkvæðaseðil í pósti eins og Steingrímur... • Framsóknarmenn em reyndar óhemju atkvæðamiklir netverjar og þannig telur Krist- inn H. Gunnarsson á sinni síðu Sigmjóni Þórðarsyni sýnd ótrúleg óvirðing af sínum flokksmönn- um með að hann hafi verið látinn víkja fyrir Magnúsi Þór Hafsteins- syni í menntamála- nefnd. Hann segir standa skýrum stöf- um á vef Frjálslynda flokksins að vegna áherslu á að setja viðunandi löggjöf um Ríkisútvarpið sé Sigurjón settur út. Kristinn bendir Frjálslyndum á Einræður Starkaðar eftir Einar Benediktsson þar sem segir að aðgát skuli höfð í nærvem sálar... * *

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.