Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2005, Blaðsíða 32
32 FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 2005
Menning DV
í dag er alþjóðlegur dagur dansins og af því tilefni efna listdansarar til vorblóts í
Iðnó. Framundan er annasamt sumar og Qöldi verkefna af ólíku tagi.
Dansá
Akureyri
Ævintýradansleikhús barna
sýnir í Ketilhúsinu I dag. Fram
koma Fjölllsta- og spunahópur
mtö verkið: Hver erég?, sam-
vlnnu barna og þelrra Önnu Rik-
harðsdóttur og örnu Valsdóttur
ásamt þeim Lindu GuOrúnardótt-
ur tónlistarmanni og AOalheiOi S.
Eysteinsdóttur listakonu en þ ær
eiga börn i hópnum. Þá sýna hóp-
ar undir stjórn Katrlnar M. Þor-
björnsdóttur, sem hefur kennt
ballett á Akureyri liOiO ár. Dans-
hópur kvenna undir stjórn Allýjar
Aldlsar Lárusdóttur dansar en
yngsti dansarinn er 5 ára og sá
elsti 82 ára.
Anna og Arna stofnuöu leik-
húsiO upp úr spunadanshópi sem
Anna starfrækti áöur. Þær hafa
staöið fyrir námskelöum þar sem
unnið er með dans I tengslum við
aðrar listir og sýnt meö börnum.
Tvær sýningar eru i dag kl. 16og
kl. 18 og er frítt inn fyrir börn.
fspan og Barnamenningarsjóður
styrkja sýninguna.
.________y _
Saga Alþjóðlega dansdagsins er
stutt: 1982 tilkynnti Alþjóðlega dans-
nefndin sem er hluti af leikhússtofnun
UNESCO, að hann skyldi haldinn há-
tíðlegur 29. apríl árlega. Þann dag
fæddist Jean-Georges Noverre 1727
sem er talinn einn af upphafsmönnum
nútímadansins. Marlóniðið með Al-
þjóðlega dansdeginum er að sameina
allan dans í þessu tilefni, að hylla þetta
listform og njóta algildis þess, að ryðja
burt pólitískum, menningarlegum og
þjóðemislegum hindrunum og sam-
eina fólk f friði og vináttu með tungu-
máli dansins.
Vorblót
Dansarar fagna þessum degi með
samkomu í Iðnó í eftirmiðdaginn í dag,
en þar fóm fyrstu opinberu sýning-
amar í listdansi fram. Þar sýndu nem-
endur Stefaníu Guðmundsdóttur og
Guðrúnar Indriðadóttur dans, þar var
Ásta Norðmann með sínar fyrstu sýn-
ingar og þangað sóttu Rigmor og Ása
Hansson, Helena Jónsson og Ellen Kid,
Sif Þórs, EllýÞorláksson og SigríðurÁr-
mann fyrstu áhorfendur sína. Þar vom
fyrstu íslensku ballettamir samdir og
sýndir. Þangað komu gestir frá Dan-
mörku og sýndu: Margarethe Brock
Nielsen 1928 og Friðbjöm Bjömsson
1947 sem með heimsóknum sínum
höfðu afgerandi áhrif á þróun íslenska
dansins. Betri stað geta íslenskir dans-
arar ekki fundið eftir viðburðarikan
vetur, til að gleðjast saman og halda
uppi heiðri listdansins í tilefni dagsins.
Hver er dansinn metinn...
í boðsbréfi til dansara segir Irma
Gunnarsdóttir danshöfundur, kennari
og formaður Félags íslenskra Listdans-
ara: „Listdansheimurinn hérlendis er
smár en öflugur og í stöðugri sókn.
Mikill metnaður og gróska einkennir
íslenskan listdans í dag og mjög hár
gæðastuðull er í greininni. Á undan-
i \
k
' Ah
'<: v
fomum þremur mánuðum hafa verið
frumsýnd átta verk hérlendis eftir ís-
lenska danshöfunda. Það er einsdæmi
í ísienskri listdanssögu að verða vitni af
svo mikilli sköpun og gerjun í listdansi
á svo skömmum tifna. Verkin hafa það
sameiginlegt að vera framúrstefnuleg
og frumleg, verkin em flutt af stórum
hópi listdansara en dansarar hafa
aldrei verið fleiri starfandi hér á landi
en einmitt nú.
Hvers vegna er dansheimurinn
svona líflegur einmitt núna? Eitt er
víst að góðir hlutir gerast ekki af sjálf-
um sér. Að baki þeim árangri sem nú
er sýnilegur liggur gífurlega mikið og
metnaðarfullt starf sem er að skila
sér.
Maður uppsker eins og maður sáir
segir máltækið. Spuming dagsins: Er
dansinn metin að verðleikum í heimi
listanna?"
Sumar og haust á fullu
Framundan em stórverkefni nú
þegar hrina vorsýninga skóla er að
baki: fyrsta maí em síðustu sýningar
Dansleikhússins á Augnabliki, fjórum
sjálfstæðum dönsum eftir íslenska höf-
unda. Open source Helenu Jónsdóttur
verður flutt í Dundee laugardaginn í
næstu viku.
í tengslum við Listahátíð koma
hingað þrír evrópskir flokkar og verða
með sýningar í Borgarleikhúsinu og
Sjálfstæðishúsinu - Nasa - 27. og 29.
maí. Um svipað leiti verður annað verk-
efni Danshöfundasmiðju ÍD frumflutt
eftir Karen Maríu Jónsdóttur. Lovísa
Gunnarsdóttir og Aðalheiður Halldórs-
dóttir dansa það. Dansleikhúskeppnin
verður í þriðja sinn í júní. Nýtt verkefni
verður svo á fjölunum í Reykjavík á veg-
um Dansflokksins í október.
Við erum öll...
We are all Marlene.. verður á ferða-
lagi í sumar og fram á haust: Prag og
Poznan í Póllandi í júní, Vín og Berlín í
águst og hugsanlega í Hollandi, en flyst
síðan til Bmssel. í október verður hún í
Árósum en síðan í Helsinki og Modena
á ftalíu. Stefnan er að sýningin komi
aftur til Reykjavíkur í maí að ári.
Þá er ógleymd sú danssýning sem
boðið verður uppá í kringum
Eurovision-lagið íslenska og sumar-
sýning Senunnar á Kabarett sem verð-
ur væntanlega með fríðum hóp ís-
lenskra dansara.
BORGARLEIKHUSIÐ
Leikfélag Reykjavíkur» Listabraut 3,103 Reykjavík
STÓRA SVIÐ
DRAUMLEIKUR
e. Strindberg. Samstarf: Leiklistardeild LHÍ.
Fö 6/5 kl 20
Fö 20/5 kl 20
Fö 27/5 kl 20
Siðustu sýningar
HIBYLI VINDANNA
leikgerð Bjarna Jónssonar eftir
Vesturfarasögu Böðvars Guðmundssonar
Lau 30/4 kl 20, Su 8/5 kl 20, Fö 13/5 kl 20
Su 22/5 kl 20, Fi 26/5 kl 20
-Siðustusýnmgar
HERI HERASON
e. Coline Serreau
Fö 29/4 kl 20, Lau 7/5 kl 20, Lau 21/5 kl 20
- Síðustu sýtmgar
KALLI A ÞAKINU
e. Astrid Lindgren
I samstarfi við Á þakinu
Su 1/5 kl 14-UPPSED
Su 1/5 kl 17 -UPPSEUT, Fi 5/5 kl 14,
Lau 7/5 kl 14, Su 8/5 kl 14, Uu 14/5 kl 14
Börn 12 ára og yngri fá frítt í
Borgarleikhúsið í fylgd
fullorðinna
- gildir ekki á bamasýningar
NÝJA SVID/LITLA SVIÐ/ÞRIÐJA HÆÐIN
TERRORISMI
e. Presnyakov bræður
Fi 5/5 kl 20, Fi 12/5 Id 20.
ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR
Einleikur Eddu Björgvinsdóttur.
I kvöld kl 20 - tm, Uu 30/4 kl 20
Su 1/5 kl 20 - UPPS, Mi 4/5 kl 20 - UPPl.
Fi 5/5 kl 20 - UPP&.FÖ 6/5 kl 20 - UPPi,
Uu 7/6 kl 20 - UPPS, Su 8/5 kl 20 - UPPS,
Fi 12/5 kl 20 - UPPS, Fö 13/5 kl 20
eftir Harold Pinter
Samstarf: A SENUNNI.SÖGN ehf. og LA
Fi 12/5 kl 20 -Aukasýmng
RIÐIÐ INN I SOLARLAGIÐ
e. Önnu Reynolds.
I samstarfi við leikhópinn KLÁUS.
Uu 30/4 kl 20, Fö 6/5 kl 20, Uu 7/5 kl 20
irari
AUGNABUKIÐ FANGAÐ
fjögur timabundin dansverk
Su 1/5 kl 19:09 S&astasýning
Miðasölusími 568 8000 • midasalagborgarleikhus.is
Miðasala a netinu www.borgarleikhus.is • Miðasalan i Borgarleíkhusinu er opin:
10-18 mánudaga og þriðjudaga, 10-20 miðviku-, fimmtu- og föstudaga
12-20 laugardaga og sunnudaga
Breaking the Ice er fjölþjóðlegt samstarfsverkefni sem efnt
verður til hér á landi í sumar. Þar koma saman listamenn frá
Norðurlöndum og Balkanþjóðum og blanda saman listgreinum.
ísinn brotinn
Um þessar mundir stendur yflr
tmdirbúningur fyrir þetta mikla
verkefni: í lok maf koma 50 lista-
menn saman í Reykjavík og setjast
á rökstóla. Þeir hafa verið valdir úr
stærri hópi umsækjanda og koma
víða að. Sá fundur er mest hugsað-
ur til að hrista hópinn saman, en
Qórir gestir heiðra verkefnið með
heimsókn: Ong Keng Sen, leikstjóri
frá Singapore, Sidi Larbi Cherka-
oui, flæmskur dansari og höfundur
frá Marokkó, Stelarc, performance
listamaður frá Ástralíu og Esther
Shalev-Gerz listffæðingur sem
starfar í París.
í þrjá daga mun hópurinn leiða
saman krafta sína, kynna verkefni
sfn og áhugamál, deila viðhorfum
og reynslu. Mögulega verður efnt
til lokaðrar sýningar fyrir þátttak-
endur á þessu stigi sem er það
fyrsta.
Tólf valdir listamenn verða síð-
an sendir út á land í pörum í fimm
daga ferð og fá til fararinnar nesti
og bíl. Við heimkomuna munu þeir
kynna vinnu sína eftir ferðina. Þeir
munu síðan þróa verk í sumar um
sérstaka vefgátt sem reist hefur
verið til þessa.
í ágúst koma hóparnir saman á
ný og fá þá tvær vikur til að æfa
verkin með íslenskum þátttakend-
um sem endar á sýningarhaldi á
opinberum stöðum.
Verkefriið er kostað af norræn-
um peningum og erbeinlínis ætlað
að opna gáttir milli Norðurlanda-
þjóðanna og Balkanlandanna. Það
er Iitið á slíkt samstarfsverk sem
frjóann akur þar sem lisgreinar
blandist og tengsl skapist í beinu
og virku samstarfi. Að svo stórum
hóp samstarfsfólks skuli þjappað
hér saman og hluti þeirra sendur
úr í guösgræna og vegina að ekki sé
talað um hraun og sanda ætti að
vekja þáttakanedum nýjar kenndir
og kalla á nýja sýn.
Meðal þeirra leiðbeinenda eða
fararstjómenda sem verða gestum
og úrvalshóp þeirra til leiðsagnar
má nefna Katrínu Hall, Aino Freyja,
Ingólf Amarson, Ásu Richardsdótt-
ir, Kristínu Eysteinsdótti, Guðjón
Pedersen, Guðrúnu Vilmundar-
dóttur, Helenu Jónsdóttur, Ragn-
heiði Skúladóttir, Þorvald Þor-
steinsson, Ólöfu Norðdal og Bjarna
Sigurbjörnsson sem mun gera
heimildarmynd um verkefnið.
Skipulagningu hér heima annast
þær Nína Magnúsdóttir myndlist-
armaður og framkvæmdastjóri
Klink og bank og Steinunn Knúts-
dóttir leikstjóri og stýra Lab Loki.