Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2005, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2005, Blaðsíða 3
DV Fyrst og fremst MIÐVIKUDAGUR ll.MAl2005 3 Æíingar á miðjum Laugavegi Magnús Páll væntan- legur lögregluþjónn Tók sig vel út á æfíngum nemenda Lögregluskólans I umferðarstjórnun í gær. ■ Þessa dagana eru nemendur í Lögregluskólanum í verklegri þjálfun á götum borgarinnar. Þegar blaðamann bar að var hópur þeirra við æfingar í Skyndimyndin umferðarstjómun á þungum gatnamótum á Laugavegin- um. Magnús Páll lögreglunemi var virðulegur við bendingar sínar og áttu ökumenn ekki í vandræðrun með að skilja þær. „Við emm búin að vera að síðustu tvær vikur og nú emm við að stjóma umferð," segir Börkur lögreglunemi sem næstur var í röðinni á eftir Magnúsi Páli inn á gatnamótin. „Fyrsta önnin er að klárast núna, svo er sumarið sem er starfsþjálfun og næsti vetur er svo lokaönnin og útskrift um jólin," segir Magnús Páll eftir að hafa skipt um hlutverk við fé- laga sinn Börk. Spurning dagsins Hefurðu hitt einhver frægan á djamminu? Eið Smára og Audda saman en Sveppi var ekki með „Já, EiðurSmári var á djamminu einu sinni þegar ég var þar oghann var með Audda í Strákunum en Sveppi var ekki með þeim. Enég var ekkert að djamma með þeim, ég bara rakst á þá." ívar Unnsteinsson matreiðslunemi. „Eg er búin að vera í prófum svo ég hefekki verið neitt á djamminu að undanförnu en auðvitað hefur maður séð frægt fólk á djamm- inu þó maður sé ekkert að rekast á það. Ég læt duga að vera með vinum mínum." Árnný Guðjónsdóttir nemi. „Ég man ekki eftir að hafa rekistáneinn frægan á djamminu en ég djamma mest á Nelly's og Gauknum." Sigrún Ýr Egilsdóttir nemi. „Nei, ég ersvo lítið á djamm- inu og þegar ég fer er ég lík- lega svo öflug á dansgólfinu að ég tek ekk- ert eftir því hvort einhverjir frægirséu á djamminu líka." Margrét Pálsdóttir kennari og Daníel Ingvar. „Nei, ég hef ekki rekist á neina fræga ennþá þótt ég djammi aðal- lega niðri í bæ." Hjalti Gíslason, er án atvinnu. Fræga fólkið tekur þátt í skemmtanalífi landsins eins og aðrir og mikið hefur farið fýrir því upp á síðkastið. Frægasti (slendingur allra tíma, Bobby Fischer, var til dæmis á Ölstofunni um daginn og drakk mjöð af bestu lyst og borgarstjórinn sjálfur,Steinunn Valdís Óskarsdóttir, dansaði makalaus fram undir morgun á skemmti- staðnum á Laugavegi 22. Meiriháttar að spila á móti þessum stjörnum Gamla myndin Valur spilaði gegn stjörn- um prýddu liði itölsku meistaranna í Juventus í Evrópukeppni meist- araliða í fótbolta á Laugardalsvelli 7. októ- ber 1986. Lið Juventus skartaði stjörnum eins og Frakkanum Michel Plat- ini og Dananum Michael Laudrup og var eitt besta félagslið heims á þessum tíma. Valur tapaði leiknum, 4-0. Hafði Guðmundur Hreiðarsson, markvörður Vals, í mörg horn að líta í leiknum. Á mynd- inni hér að ofan sést hann horfa á eftir boltanum eftir að Mich- ael Laudrup hafði skorað eitt af tveimur mörkum sínum í leiknum. „Ég man vel eftir þess- um leik sem var minn fyrsti Evrópuleikur. Ég varði víti í leiknum. Það er minnisstætt. Það var meiri- háttar að spila á móti þessum stjörnum, sérstaklega í Laugardaln- um þvíþað var mikill kuldi og bolt- inn var ísaður. Leikmönnum Juvent- us var kalt í leiknum og en þeir voru einfaldlega miklu betri en við," sagði Guðmundur Hreiðarsson. Bronsa Að bronsa eitthvað hefurlengi vel merkt að setja bronshúð á einhvern nrWTfl hlut. Bronshúðaður blómavasi hefur til dæmis verið bronsaður. Önnur merking orðsins er hins vegar tengd knattspyrnu og virðist ekki vera mikið notuð nema þá helst á Suður- nesjum. Þar tala menn um að bronsa og eiga þá við að halda bolta á lofti. Sú list er oft tengd góðri boltatækni og metast menn oft um hversu lengi þeirgeta haldið boltanum á lofti. ÞÆR ERU SYSTUR Leikkonan & Ijósmyndarinn Elma Lísa Gunnarsdóttir er leikkona og hefur leikið i Hafnarfjarðarleikhúsinu f vetur i leikritinu Brotið eftir Þórdísi Elvu Þorvaldsdóttur. Elma Lísa er einmitt systir hennar Nínu Bjarkar Gunnars- dóttur, fyrrverandi fyrirsætu, sem nú um stundir erstilisti og Ijósmyndari. 1S-3Q% AFSLÁT^" Frábær sumartilboð á: Rúmum, springdýnum, latexdýnum, svampdýnum, yfirdýnum, eggjabakkadýnum, koddum og sérsniðnum svampi. _ Reykjavík: Mörkin 4, sími: 533 3500 Akureyri: Hofsbót 4, sími: 462 3504 Oplft vlrka daga: 10-18 & laug: 11-15 Egilsstaðir: Miðvangur 1, sími: 471 2954

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.