Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2005, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2005, Blaðsíða 18
18 MIÐVIKUDAGUR ll.MAl2005 Sálin DV Snýst jörðin í kringum þig - eða þú um hana? 1. Þú kemur heim eftir langan vinnu- dag. Eiginmaður og börn bíða eftir matnum.Þú: 1. Stekkur til og hefst strax handa við að útbúa matinn. 3. Ert óviss um hvernig þú forgangsraðar hlutunum. 2. Skiptir um föt og frfskar að eins upp á þig. Hugmyndir fjölskyldunnar um sjón- varpsefni kvöldsins stangast á við lang- anir þínar. Þú: 1. Horfir á það sem þau langar að horfa á. 2. Ferð eftir því hversu mikið þig langar að sjá sjónvarpsefnið sem þau vilja ekki. 3. Horfirá það sem þig langar.jafnvel í öðru herbergi. 3. Barnið þitt er veikt á vinnudegi. Þú: 1. Ert alltaf heima þegar börnin veikjast. 2. Athugar hvernig dagskrá annarra fjöl- skyldumeðlima er. 3. Reddar pössun og ferð í vinnuna. 4. Það er laugardagseftirmiðdagur og þú hefur ákveðið að Ijúka við að lesa bók. Skyndiiega kemur upp hugmynd meðal annarra í fjölskyldunni. Þú: 1. Leggur bókina frá þér og tekur þátt í því sem þau eru að gera. 2. Metur hvað kemur best út fyrir heildina. 3. Segir þeim að þú hafir gert aðrar ráðstaf- anir svo þau skuli ekki gera ráð fyrir þér. Bernard Gerritsma, deildarstjóri á geðdeild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri, segir hreyfingu mikilvægan þátt í meðferð þeirra sem haldnir eru geðsjúkdómum. Bernard er þess fullviss að hreyfing og líkamsrækt geti gert kraftaverk fyrir alla og sérstaklega þá sem haldnir eru þunglyndi eða eru langt niðri. Hálftíma hreyfing á hverjum degi hjálpar líkamanum að berjast við sjúkdóma Reyndu á líkamann á hveijum degi Hægt er að koma í veg fyrir marga alvar- lega sjúkdóma með því að hreyfa sig regluiega. Hreyfingin þarf ekki að vera flókin, hálftíma göngutúr á hverjum degi gerir gæfumuninn. Borðaðu hollan mat Borðaðu meira af ávöxtum og grænmeti og reyndu að minnka skammtana sem þú borðar í matartímum. Hollt mataræði getur minnkað líkumar á hjartasjúkdóm- um, slagi og krabbameini. Fylgstu með heilsunni Láttu mæla kólesteróUð í blóðinu og blóðþrýstinginn reglulega. Með þvíveistu hver staða þín er og hvað þú þarft að gera til að bæta heUsu þína. Veldu heUbrigða valkosti Haltu þig frá tóbaki og fíkniefnum sem og ofnotk- un áfengis. Veldu gáfulega og njóttu lífsins á hverjum degi aUa ævi. 'w____ Stress lenqir lífið í mótsögn við það sem áður hefur verið haldið fram segir dr. Marios Kyriazis í London að stress hjálpi okkur að Ufa lengur. Prófessorinn mæUr meö að fóUc haldi inni ákveðnum streitu- völdum í stað þess aö reyna að sneiða hjá stressi. „Rannsóknir okkar hafa sýnt að þær frumur sem tengjast álagi endurnýi sig sjálfar. Eftir því sem árin Uða veikist þessi eiginleiki og þvf er best að þjálfa hann upp.“ Marios mælir með að fólk þjálfi frumurnar með því að pakka niður í ferðatösku í flýti, versU fyrir matarboð í hádegishléinu eða taki þátt í unglingastarfi. Honda áfrýjar ekki Forráðamenn bílaframleið- andans Honda, sem eiga helm- ingshlut í BAR-Honda liðinu í Formúlu 1, hafa tilkynnt að þeir muni ekki áfrýja dómi Alþjóða- kappaksturssambandsins sem liðið fékk á dögunum. Honda gefur þessa yfirlýsingu út í kjöl- far þess að talsmenn BAR- Honda-liðsins í formúlunni hótuðu að áfrýja tveggja keppna banni sem liðið fékk fyrir skömmu, þegar í ljós kom að bfll Jensons Button reyndist of léttur eftir keppnina. „Okkur þótti bannið aUt of þungt og það er grátlegt að þurfa að sitja hjá eftir að við vorum að verða komnir með bílinn í góðan gír, en við munum una þessu banni. Annað væri bara til að skemma fyrir öUum,“ sagði talsmaður Honda. Hreyfing er, nauðsynleg fyrir salartefrið „Ég mæU hiklaust með því að fólk fari og hreyfi sig því líkamsrækt er ekki einungis góð fyrir líkamann heldur getur hún gert kraftaverk fyrir andlegu líðanina líka," segir Bernard Gerritsma, deUdarstjóri á geðdeUd Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri. Bernard segir hreyfingu hafa mjög góð áhrif á líðan skjól- stæðinga sinna en fólk sem ekki er haldið geðsjúkdómum geti einnig fengið mikið út úr hreyfingu. Lyfjamenning á íslandi „Hér á geðdeildinni höfum við verið með prógramm í Vaxtarrækt- „ inni sem byggist á hreyfingu, slökun og teygjum auk þess sem við reyn- um að fara reglulega út að ganga með sjúklinga okkar. Við reynum að hjálpa fólki við að breyta um lífsstíl og bjóðum upp á áframhaldandi líkamsrækt eftir útskrift. Þeir sem eru langt niðri og þjást jafnvel af þunglyndi ættu einnig að vera dug- legir að hreyfa sig þó það geti verið erfitt að koma sér af stað," segir Bernard en bætir við að það sé ekki lögð mest áhersla á hreyfingu og lík- amsrækt í meðferðum á geðdeild- inni heldur sé hreyfing notuð með öðru. Hann segist ekki geta svárað því af hverju hreyfingin geri sálartetrinu svo gott, því verði læknar að svara, en reynsla hans sýni að efriaskiptin sem verða við hreyfingu hafi afar góð áhrif á andlegu líðanina. Hann segir einnig að að hans mati sé nauðsynlegt að reyna að draga úr fyfjameðferðum hér á landi. „Lyfin eiga stóran þátt í menningunni hér á íslandi en það er nauðsynlegt að reyna aðrar aðgerðir til að ná bata. Að mínu mati gerir hreyfing og lík- amsrækt tvímælalaust gott og það á við um alla,“ segir Bernard en vill Bernard Gerritsma „Þeirsem eru langt mðri og þjástjafnvel afþunglyndi ættu einnig að vera duglegir að hreyfa sig þó að það geti verið erfittað koma sérafstað" segirBernard. DV-mynd thorri@extra.is. ekki segja til um hvar við íslendingar erum staddir miðað við aðrar Evr- ópuþjóðir. Aukin fræðsla mikilvæg „Ég get vel ímyndað mér að auka hreyfingu hjá sjúklingum mínum en þar sem meðferðirnar eru svo stutt- ar gefst oft ekki tími til þess. Því er mjög mikilvægt að auka fræðslu svo fólki sé kennt að finna jafiivægi á milli hreyfingar og slökunar því slökun er alveg jafn mikilvæg, ásamt réttu mataræði, til að öðlast betra líf." indiana@dv.is „Lyfín eiga stóran • þútt í menningunni hér á fsiandi en þaÖ er nauðsyniegt að reyna aðrar aðgerðir tíi að nábata

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.