Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2005, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2005, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 11.MAI2005 Neytendur DV ÞÓR JÓHANNESSON stendur vörö um hagsmuni neytenda. Lesendur geta haft samband viö Þór á netfanginu tj@dv.is • Arkó-veiðivörur er með öndim- arvöðlur, skó og vöðlutösku á 19.900 króna tilboði. • Sjónvarpsmiðstöðin er með JVC heimabíómagnara á 39.900 krónur sem er 30.000 króna lækkun eða 43%. • Dýrabúðin Tokyo er með Nutro- þurrfóðriö fyrir hunda og ketti ásamt öðrum vörum á 30% afslætti. • Það eru maítilboð í Pennanum þar sem Dateline blek- og dufthylki í prentara eru á 20 tii 50% afslætti. • Office 1 Superstore er með Tri- umph-Adler DC 2116 stafrænu ljós- ritunarvélina sem einnig er prentari á 169.000 krónur sem er lækkun upp á 50.000 krónur. • Lystadún Marco er með 15- 30% afslátt á dýnudögum sem nú eru í gangi. Morgundögg og Kvöldroði * Morgundöggin er ljúffengt kaffi sem er létt eins og sunncmblærinn. Þetta milda kaffi kemur frá Mið-Am- eríku og er kryddað með kröftugum Kólumbíu-baunum. Einstaklega frísklegt og bragðgott kaffi í morg- unsárið. Kaffibollinn á miðvikudegi Kaffibragðið úr Kvöldroðanum er í sérstaklega góðu jafhvægi, £ hontun er miðlungs fylling með dökkum eftirkeim. Þessi tegund er gerð úr kaffi frá Mið- og Suður-Ameríku og brennd í vínbrennslu þar. Kvöldroðinn hentar því sérstak- lega vel með eftirréttum og eins til að nota í heimilis expressóvélar. Þeir sem eru að byrja að drekka kaffi ættu einnig að reyna þessa tegund. Svo er hún líka þannig að mörgum kaffiunnandanum finnst engin ástæða til að leita lengra, - enda ótrúlega gott kaffi. Erling Ólafsson skordýrafræðingur segir réttu leiðina til að koma í veg fyrir starafló að steypa hreiðrinu þegar fuglinn er farinn úr því á haustin enda sé hann friðaður á vorin og sumrin. Það gerir illt verra að loka fyrir innkomu starans að hreiðri sem er í notkun, því sé slíkt gert fer flóin út úr hreiðrinu í leit að blóð- skammti sínum ári síðar. StarahreiQrum á að steypa á haustin Stari á priki Hann er fallegur fugl en því miöur fylgir honum fíósem leggst á mannfóikiö þótt hún kjósi frekar fuglablóö. „Starinn er friðaður fugl svo það má ekki steypa hreiðrinu," segir Ólafur Sigurðsson, meindýraeyðir hjá Meindýraeyðingu heimil- anna, sem betur er þekktur sem geitungabaninn og kóngulóar- maðurinn. Erling Ólafsson skordýrafræðingur segir réttar aðferð- ir vera mikilvægastar þegar kemur að því að steypa hreiðrum. „Fyrsta árið sem stari byggir holu fyrsta lagi best að koma í veg fyrir að rfkir oftast friður, en þá er lagðixr hann komist inn í hús en ef hann er grunnur að næstu kynslóð flóa. Ef kominn inn og hreiðrið er í notkun er starinn fær að vitja síns heima aftur að ári er ekíd víst að ■* vandamál skapist sem orð s'- er á gerandi," segir Erling V Ólafsson skordýrafræðingur hjá Náttúrufræðistofnun. óiöglegt að taka það því E-í ... starinn er friðaður. r v Það er líka best að L' t f látahannalvegífriði þar til hann fer og eitt það versta Heimta blóðskammtinn „Hins vegar er vá fyrir dyrum ef hann mætir ekki aftur eða aðgangur hans er hindraður. Flæmar skríða úr púpum sfnum á hefðbundnum tíma, seint í mars og í aprfl. Þær heimta blóðskammt sinn. Ef hann fæst ekki fyrirhafnarlítið sverfur hungur að og flæmar verða að gera eitthvað í mál- inu,“ segir skordýrafræðing- urinn. Skordýrafræðing- urinn tekur fram að \w flóin geti borist auðveld- ^ lega inn í hús í feldi hunda og katta sem em á lausagangi og að með því eigi hún greiðan að- gang að mannfólkinu. Ceratophyllus gallinae Blóðsugan sem leggsthelst á hænsnfugla en dreifist með staranum hérá landi og erþví kölluö starafló. DV-mynd Vilhelm Ekki loka starann úti „Til að koma í veg fyrir þetta er f sem hægt er að gera er að loka hann úti því ef flóin er á annað borð komin inn hefur hún skilið eftir sig egg sem verða að púp- um og klekjast svo út næst vor og þá fer hún að ieita sér ætis. Það á að leyfa ___ honum að fara sjálfum og taka svo hreiðrið og eitra," bendir Er- ^ling Ólafsson á. Starinn hreiðrar um sig víða Fyrir nánari upplýsingar um vandamálin sem fylgja fíónni er vert aðbendaá grein eftir Erling Olafsson skordýrafræðing undir fyrirsögninni„Starinn og árlegt flóafár" á slóðinni www.ni.is/efst/staraflo.ohtml. Kóngulóarmaðurinn að verki Ólafur meindýraeyðir steypir hreiðri að hausti eftir að stari hef- uryfirgefið það. Rétta leiðin „Ég lenti í hreiðri sem var búið að loka fyrir undir öxl á kvisti og einn og hálfur metri í radíus út frá því var loðinn af fló. Þetta gerist vegna þess að lokað hafði verið fyr- ir að vori þegar hann var búinn að byggja hreiður. Það eina sem virkar er að hreinsa út allt hreiðrið og all- ar leifar þess að hausti, renn- bleyta hreiðurstæðið og nánasta umhverfi með eitri og loka svo rækilega fyrir svo hann komist ekki inn aftur næsta ár,“ staðfestir Ólafur meindýraeyðir. tj@dv.is Nauta prime rib gómsætt á grillið Nú ætlum við að griila Prime rib-vöðvann. Þetta er vöövi sem er einna bragðmesti vöðvinn á dýr- inu, hann þarf að vera feitur og frá- bær. Þessi vöðvi er áframhald af filleinu (hryggvöðvanum). Hann liggur undir herðablaðinu og framfilleið liggur eftir honum endilöngum. Hann þarf að úrbeina með fitunni, þ.e.a.s með ailri utaná liggjandi fitu. Sneiðarnar þurfa að vera um það bil tveir og hálfur til þrír sentí- metrar á þykkt, alls ekki þynnri, og vega um 450 til 600 grömm. Byrjið á því að láta steikumar ná stofrihita, sem tekur um það bil þtjá til íjóra klukkutíma. Hitið grillið, þið munið, í 10-15 mínútur og berið oh'u á grindina áður en grillunin hefst. Sú grillaðferð sem Ástralar og Ný-Sjálendingar kaila óbeina griil- Ómar Grétarsson I Gallerl Kjöti og grill- meistari DV kann til verka þegar kemur ái gómsætu kjöti. Grillmeistarinn og grillið un hefur verið að ná miklum vin- sældum hér á landi síðustu ár. Hún felst í því að þið setjið kjötið á sjóð- andi heitt griílið, brúnið það á báð- um hliðum, það kemur til með að loga vel í steikunum en það er allt í lagi. Þegar þið eruð sátt við iitinn eða brúnunina á steikinni er slökkt á einum brennaranum, kjötið sett yfir á þann brennara, kryddað með salti og pipar og lækkað svo til alveg niður á hinum, hvort sem þeir eru einn eða fleiri og griilinu lokað. Séu Prime rib-steikumar af réttri þykkt tekur matreiðslan 15- 20 mínútur. Séu steikumar feitar og fimofnar er gott að hafa með þessu rauðvín og ekkert annað. Gleöilegt grillsumar Árni Eyjólfsson í Ólavíu og Oliver segir lífs- spursmál að öryggið sé í lagi á bamavörum Hættuleg barnakerra ekki lengur til sölu „Það er lífsspursmál fyrir bamavöm- markaðinn að þessir hlutir séu í lagi því notendur varanna em algerir óvitar sem foreldramir þurfa að hugsa fýrir og þeir verða að geta treyst vörunni," segir Ámi Eyjólfsson, eigandi bamavömverslunar- innar Óiavíu og Olivers, þar sem Besson 207 kerran var til sölu í vetur, en sú bamakerra fékk falleinkunn í könnun dönsku neytendasamtakanna á bama- kerrum sem birt var í DV í gær. „Við erum alltaf í samráði við Um- ferðarstofu og þá aðila sem dæma um öryggi á bamavörum og ef það koma einhverjar ábendingar um einhverja vöm sem getur verið hættuleg þá tökum við tillit til þess," tekurÁmi fram. „Ég talaði við framleiðenduma úti í Danmörku og þeir segja að þessi týpa sé ekki bönnuð þar. Þeir segja líka að það sé mjög langsótt að böm geti hengt sig í þessari ól sem heldur uppi bakinu. Við sjáum hins vegar enga ástæða til að bjóða vöm sem er eitthvað spumingar- merki við og meðan að staðan er þannig á þessari kerrn þá bjóðum við hana ekki. Hún er ekki til sölu hér og hefur ekki ver- ið það lengi,“ segir Ámi Eyjólfsson um Besson 207 kerruna. Árni Eyjólfsson .Efþað koma einhverjar ábend- ingar um einhverja vöru sem getur verið hættuleg þá tökum við tillit tilþess."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.