Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2005, Side 22
22 MIÐVIKUDAGUR H.MAl2005
Sport DV
Drauma-
deildin fer
senn 1 gang
Eftir tæpa viku hefst íslands-
mótið í knattspymu og fagna því
flestir fótboltaáhugamenn. Und-
anfarin ár hafa verið starfræktar
draumaliðsdeildir, þar sem al-
menningur getur búið til lið úr
þeim leikmönnum sem spila í
Landsbankadeiid karla. Nú hafa
tvær stærstu draumadeildimar
sameinast, draumadeildin.is og
Draumalið Vísis.is. Umferðimar
em ekki nema átján talsins og því
nokkuð ljóst að þeir sem æda að
eiga raunhæfan möguleika á sigri
verða að vera með strax frá fyrsta
leik. Auk aðalvinnings í lok leiktíð-
arinnar verða veittir aukavinning-
ar fyrir stigahæsta lið fyrstu sex
umferðanna, svo sex næstu og að
lokum þau sex síðustu. Þvf þurfa
menn ekki að örvænta ef þeir em
seinir til. Meðal vinninga er ferð
fyrir tvo á leik á Englandi, PSP-
leikjatölva og gjafabréf frá Lands-
bankanum. Draumadeildina má
finna á Vísi.is.
Terry vill
ekki tapa
Nýkjörinn leikmaður ársins í
ensku knattspyrnunni, vamar-
maðurinn John Terry hjá Chelsea,
hefur lýst því yfir að takmark sinna
manna á næstu leiktíð verði að
fara í gegnum tímabilið án taps.
„Arsenal tókst það í fyrra, svo af
hverju ættum við ekki að
geta það líka?" sagði fyrir- »
liðinn. „Það er langt í frá ' .*• ;4
óraunhæft J
markmið * ^ .»
að fara í
gegnum tímabil
án taps. Við höfum að-
eins tapað einu sinni í
vetur og það var hræði- \ , "0^
lega svekkjandi," sagði
Terry, sem í gær fór í að-
gerð vegna tábrots og
verður því ekki meira með
Uði Chelsea í leikjunum ’ 7
sem eftir em á tímabil-
inu. Það þýðir einnig að
fVt
Terry mun missa af
æfingaleikjum ,~t
enska landsliðsins í
Bandaríkjunum í lok
mánaðarins.
Bönnuð í
Evrópu
Spretthlaupurumum Marion
Jones og Mike Montgomery frá
Bandaríkjunum, verður ekki boð-
in þátttaka á mótum í Evrópu í
sumar vegna tengsla þeirra við
lyfjafyrirtækið BALCO. Victor
Conte, stofriandi fyrirtækisins,
hefur verið sakaður um að skaffa
fþróttamönnum stera og kvaðst
opinberlega hafa látið Marion
Jones hafa stera fyrir keppni fyrir
nokkm. Forráðamenn frjáls-
íþróttahreyfingarinnar í Evrópu
segjast einfaldlega ekki treysta sér
til að takast á við þá
(3 neikvæöu umfjöll-
un sem þátttaka
íþróttamann-
anna tveggja
hefði í för
með sér og
hafa þvf
ákveðið að
bjóða
þeim ekki á
' mót í álfunni.
Jones hefur
þegar ákveðið
að höfða mál
\ gegn Conte, til
að hreinsa nafn
sitt, en hvorki
hún né
Montgomery hafa
nokkm sinni fallið á lyfja-
prófi.
Lið Snæfells í Intersportdeildinni í körfuknattleik á ekki sjö dagana sæla um þess-
ar mundir því tveir leikmenn úr röðum þess, Hlynur Bæringsson og Sigurður
Þorvaldsson, sömdu við Woonaris í Hollandi fyrr í vikunni. Ljóst er að þetta er
mikil blóðtaka fyrir lið Stykkishólmsbúa.
hrunið?
Sigurður Þorvaldsson, landsliðsmaður í körfuknattieik og leik-
maður Snæfells í Intersportdeildinni, skrifaði í gær undir samn-
ing við hollenska liðið Woonaris. Þar með eru báðir landsliðs-
menn Snæfells horfnir á braut en Hlynur Bæringsson gerði sem
kunnugt er samning við Woonaris fyrr í vikunni. „Samningurinn
lagðist það vel í mig að ég gat ekki sagt nei,“ sagði Sigurður í
samtali við DV.
Samningurinn gildir til eins árs
rétt eins og samningurinn sem
Hlynur gerði við liðið. „Þetta er
svona undirstöðusamningur; íbúð,
bíll og smá aur í vasann. Ég
3renni voða blint í sjóinn með
þetta en ætía að gera mitt besta
til að komast í byrjunarliðið.
Það er á hreinu að ég er ekki að
fara þarna út til að vera einhver
áhorfandi," sagði Sigurður ákveð-
inn.
Það hafði mikil áirrif á ákvörðun
Sigurðar að Hlynur skyldi hafa sam-
ið við liðið. „Af þeim ástæðum held
ég að það muni reynast léttara að
aðlagast aðstæðum hðsins og von-
andi getum við stutt hvom annan."
Sigurður fullyrti að sumarið yrði
nýtt til æfinga og undirbúnings fyrir
komandi tímabil í Hollandi. „Það
era ýmsir hlutir sem mig langar að
vinna í eins og t.d. að taka skot af
dripplinu svo eitthvað sé nefnt. Það
er alltaf hægt að bæta sig sem er að
sjálfsögðu planið hjá mér.“
Rétt eins og Hlynur sagði Sigurð-
ur að erfitt yrði að segja skilið við
„Ég er nýlega búinn
að fá þessar fréttir og
þetta er náttúrulega
óhemju blóðtaka."
Snæfell og Stykkishólm. „Hér hefur
verið gríðarlega gott að búa undan-
farin tvö ár og hér er haldið einstak-
lega vel utan um körfuboltann og
það sem honum fylgir. Héðan mun
ég alltaf eiga góðar minningar og vil
ég nota tækifærið og þakka öllum í
Stykkishólmi kærlega fyrir allt,“
sagði Sigurður að lokum.
Stjórn Snæfells ekki ráðalaus
„Ég er nýlega búinn að fá þessar
fréttir og þetta er náttúrulega
óhemju blóðtaka þegar tveir máttar-
stólpar liðsins, að öllum öðrum
ólöstuðum, róa á ný mið,“ sagði
Gissur Tryggvason, formaður körfu-
knattleiksdeildar Snæfells. „Hitt er
svo annað mál að við höfum sagt við
þá að við munum aldrei leggja stein
í götu þeirra. Við erum mjög stolt af
því að þeir skuh fá þetta tækifæri til
að sanna sig á erlendri grundu,"
bætti Gissur við. „Við óskum þeim
að sjálfsögðu afis hins besta og vel-
farnaðar í þessu en eftirsjáin er mik-
il. Núna fundum við um málið, tök-
um ákvarðanir og vinnum út ffá
því.“
Gissur sagði að körfuboltamenn í
Stykkishólmi byggju við toppað-
stæður. „Það hefur verið haldið vel
utan um strákana okkar og Hlynur
og Sigurður þakka árangurinn því að
þeir fengu m.a. góða tilsögn í þjálf-
uninni hér. Við efumst ekki um að
við munum sjá fleiri af okkar mönn-
um halda utan í ffamtíðinni."
Samkvæmt heimildum DV era
sterkar líkur á að Snæfell haldi Uði
sínu í núverandi mynd. Magni Haf-
steinsson, Pálmi Freyr Sigurgeirsson
og Helgi Reynir Guðmundsson hafa
allir staðfest að góðar lfkur séu á að
þeir verði áffam innan raða Snæfells
næsta vetur. „Þó að þeir Siggi og
Hlynur séu farnir era enn til staðar
góðir leikmenn innan liðsins og held
ég að það sé forgangsatriði að halda
þeim leikmönnum og reyna að bæta
einhveijum mannskap við,“ sagði
Helgi Reynir í samtali við DV.
„Þetta er auðvitað mikil blóðtaka
fyrir Snæfell og munu þessir heið-
ursmenn skilja eftir sig stór skörð í
Iiðinu sem varla er hægt að fylla í.“
18
Sigurður Þorvaldsson Brotthvarf
harts og Hlyns Bæringssonar er
mikið áfall fyrir Snæfellinga en þeir
hafa verið máttarstólpar I liðinu
undanfarin tvö ár. Var Sigurður
meðal annars valinn besti leikmaður
ársins á lokahófi KKl fyrir skemmstu.
Er SnæfellsveldiO
íslandsmeistarar FH voru ekki í miklum vandræðum með bikarmeistarana
Risinn ervaknaður
„Risinn er vaknaður!" öskraði
Heimir Guðjónsson að verðlauna-
afhendingu lokinni eftir sigur FH á
Keflavík í Meistarakeppni KSÍ á
mánudagskvöldið. Og sennilega era
það orð að sönnu. Þrátt fyrir að vera
án Dananna þriggja, sem verða ef-
laust með betri mönnum liðsins í
sumar, virkuðu Hafnfirðingar afar
sterkir og til alls líklegir í sumar.
Tommy Nielsen var ekki í vörn-
inni. Sverrir Garðarsson var einnig
flarri góðu gamni. Auðun Helgason
og Freyr Bjarnason vora miðverðir
og Davíð Þór Viðarsson og Guð-
mundur Sævarsson bakverðir. Sú
vamarappstifiing virkaði, mjög
sannfærandi þrátt fyrir að þessa tvo
fastamenn frá síðasta tímabili hafi
vantað.
Á miðjunni var Heimir eins og
gamalt gangverk sem þarf að trekkja
í gang. Hann varð þriðji í kjöri á
besta knattspymumanni ársins í
fyrra og þarf sennilega nokkra leiki
til að koma sér almennilega í gang.
Hins vegar var Ásgeir Gunnar Ás-
geirsson í hörkuformi og mun hann
sennilega láta mikið að sér kveða í
sumar. Hann var, að öðrum ólöst-
uðum, maður leiksins.
Framheijaþrennuna skipuðu Jón
Þ. Stefánsson, Atli Viðar Björnsson
og Tryggvi Guðmundsson. Með All-
an Borgvardt á hhðarlínunni lítur út
fyrir að Hafnfirðingar muni ekki
lenda í vandræðum með marka-
skoran í sumar.
Guðjón Þórðarson hefur gjör-
breytt Keflavfkurliðinu. Fimm
manna varaarlína, fjórir á miðju og
einn uppi á toppi, er vel þekkt upp-
skrift eftir Guðjón. Bakverðirnir vora
fljótir ffam, miðverðirnir fastir fyrir
en nokkuð mistækir með Gest Gylfa-
son í fararbroddi. VarnartengUiður á
miðjunni lá mjög aftarlega og Guð-
mundur Steinarsson og Ingvi Rafii
Guðmundsson vora ágætíega skap-
andi á kantinum. Ingvi Rafn var
besti maður Keflvíkinga en greini-
legt er að Guðmundur er í mun
betra formi nú en síðasta sumar.
Hörður Sveinsson var oftast fremst-
ur en lét lítið að sér kveða.
Það vakti furðu að Hólmar Öm
Rúnarsson var geymdur á bekknum
stærstan hluta leiksins. Hann kom
inn á í síðari hálfleik en hafði lítið
fram að færa. Þá var Ómar Jóhanns-
son sannfærandi í markinu. Hinum
megin á vellinum virkaði Daði Lár-
usson hins vegar mjög óstyrkur og ef
til viH verður hann veiki hlekkur ís-
landsmeistaranna í sumar.
Atii Viðar og Freyr Bjamason sáu
um markaskoranina hjá FH en bæði
mörkin komu í fyrri hálfleik. Keflvfk-
ingar vora sterkari aðilinn ff aman af
í síðari hálfleik án þess að skapa sér
teljandi hættu. Hafnfirðingar tóku
þá völdin og hefðu með réttu átt að
bæta nokkrum mörkum við.
eirikurst@dv.is