Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2005, Side 28

Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2005, Side 28
28 MIÐVIKUDAGUR ll.MAl2005 Hér&nú DV Gyllenhaal með kólumbískri kærustu Hinn stórgóði leikari Jake Gyllen- haal er búinn að ná sér í nýja kær- ustu. Sú heppna er nýstirnið Cata- lina Sandino Moreno, sem fór á kostum I aðalhlutverki í myndinni Maria Full of Grace, sem var nýlega sýnd hér á Alþjóðlegu kvikmynda- hátíðinni. Moreno, sem er kólumb- ísk, stóð sig svo vel í hlutverkinu að hún hlaut óskarsverðlaunatil- nefningu fyrir. Þau eru jafngömul, 24 ára, og sáust m.a. láta vel að hvort öðru á næturklúbbi í New York. Gyllenhaal hætti formlega með gömlu kærustunni, Kirsten Dunst, (fyrra en þau hafa eftir það sést nokkrum sinnum saman I góðu stuði. ðll fjölskyldan með í myndinni Kalli og súkkulaðiverksmiðjan, nýjasta mynd leikstjórans Tims Burton, er mikil fjölskyldumynd. Kona Burtons, Helena Bonham Carter, leikur eitt aðalhlutverkið og hinn bamungi sonur þeirra, Billy Ray, fékk einnig hlut- verk. Burton og Carter byijuöu saman árið 2001 þegar þau unnu saman að Apaplánetunni. Billy Ray feeddist í október 2003 og er því eins og hálfs árs gamall. „Hann fær að vera með í einni senu. Þetta er hans fyrsta og síöasta aukahlutverk. Ég þekki of marga leikara til að óska honum slfkra örlaga," sagöi Burton. Slapp við kæru Ástralski sætabrauðsdrengurinn Heath Ledger slapp frá kæru eftir að hafa ráðist á Ijósmyndara um helgina. Ledger, sem lék m.a. (The Patriot, var við tökur á nýjustu myndi sinni, Candy, og réðst á papparass á tökustaðnum. Stökk á hann aftan frá. Ledger, sem er 26 ára, var hins vegar svo séður að enginn varð vitni að árásinni og Ijósmyndarinn getur ekki kært. Ledger hefur annars verið (slúðurfréttum að undanförnu eftir að kærastan hans, Michelle Williams leikkona (Dawson's Creek, sást f víðum fötum og í óléttujóga. fslensld hópurinn sem fór til Kænugarðs í morgun gistir allur á sama hótelinu, Presi- dent Hotel Kyivsky, fjögurra stjömu hóteÚ sem var reist 1990. Hótelið er vel staðsett í miðbænum, þaðan er aðeins 5 mínútna labb í íþróttahöllina sem hýsir keppnina og stutt f alla þjónustu. Á hótelinu em tveir veitingastaðir, Slovyan- sky og Evropeysky, sem er ön- ni staöur með dúkuðum borö- um. Þar má t.d. fá sér styrju- hrogn í forrétt á það sem sam- svarar 3200 kr, lax fylltan af krabbakjöti i kampavínssósu f aðalrétt á 900 kall og í eftirrétt má t.d. fá sér ís með ávaxtasósu á 250 kall. Auk veitingastaðanna em Qöl- margir barir á hótelinu sem hægt er að slappa af á eftir erfiðan dag í sviðsljósunum. Pottþétt sólskin í dag eru Allt á síðasta snúningi en ætti að blessast Þótt (slenski hópurlnn sé nú á leiðinni út eru aðrir þegar komnir til Kænu- garðs. Borgin er hratt að umturnast f Eurovision-borg þar sem gleði og glaumur ríkir. Skipuleggjendurnir standa sveittir upp fyrir haus og segja að allt sé aiveg að verða tilbúið. (þróttahöll er ekki alveg tilbúin að utan, en hún verður með grænu yfir- bragði og eru segldúkar og lýsing not- uð til að ná fram grænni slikju. Fyrsta rennslið með staðgenglum fór fram á sviðinu sjálfu f gær og tókst vel. Voru menn á einu máli um að sviðið er stór- glæsilegt. Fjölmiðlamiðstöðin er við hliðina á íþróttahöllinni og þar er und- irbúningur á sfðustu metrunum. Þetta er stærsta fjölmiðlamiðstöð sem um getur f sögu keppninnar og munu 1500 blaðamenn hafa bar aðstöðu. Þrjú hundruð tölvur verða á svæðinu og það vekur athygli að þær eru með Linux-stýrikerfinu en ekki Windows. Stefnt er að þvf að opna miðstöðina á morgun, sem er ekki seinna vænna þvf þá fara fyrstu æfingarnar fram. Skipuleggjendurnir í Kænugarði hugsa fyr- ir öllu. Nú segjast þeir geta tryggt að verði sólskin næstu tvær vikurnar því það á að „skjóta" öll regnský sem hugsanlega yfir borginni. Tæknin fellst í því að „skjóta" á skýin með sérstökum efnum sem til samþjöppunar vatns. er vonandi að íslenski hópurinn hafi tekið sólgleraugun með sér. Jónatan liðs- stjóri Segir Laugardalinn finan i næstu keppni. Selma Spennt aðkomastút.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.