Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2005, Síða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2005, Síða 40
T* J* í í* CJl)jí 0 é Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Fyrir hvert fréttaskot sem birtist, eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið íhverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar ^wfnleyndar er gætt. S1 Q Q Q Q SKAFTAHLÍÐ24, 705REYKJAVÍK [STOFNAÐ1910] SÍMI5505000 5 690710 111117 tr* • Atvinnumaður- inn Þórður Guð- jónsson, sem spilar með enska 1. deild- arliðinu Stoke í fót- boltanum, hefur það gott í einbýlis- húsi föður síns, Guðjóns Þórðar- sonar, í Stoke. Guðjón keypti húsið á meðan hann var knatt- spyrnustjóri hjá Stoke og hefur ekki viljað selja það enda ailtaf að bíða eftir tilboði frá ensku fé- lagi. Á meðan Þórður hefur komið sér vel fyrir í húsi föður síns býr Guðjón, sem stýrir nú Keflvíkingum í Landsbanka- deildinni í fótbolta, ásamt konu sinni og tveimur börnum í blokkaríbúð í Vesturbænum... En hvað með Two Tricky? Nylon Ýmislegt bendir til þess að ídeigiunni sé útgáfusamningur viðhinavirtu Virgin-útgáfu. Einar Bárðarson til dtlanda Virgin skoðar Nylon-stúlkur Nylon-flokkurinn, Einar Bárðar og nánasta samstarfsfólk þeirra fögn- uðu afmæli Nylon-flokksins á föstu- dagskvöldið í fylgd með fulltrúum frá bresku Virgin-útgáfunni. Á sérlegum afmælistónleikum sungu Nylon- stúlkur á ensku. Þau sáust svo seinna úti á lífinu; fyrst á Apótekinu, þá á Rex og loks á Thorvaldsen Bar. Samkvæmt heimildum DV fór fyr- ir breska hópnum Jamie Nelson, sem stýrt hefur útgáfumálum hjá Pofydor í eigu Virgin-útgáfunnar, sem er ein sú þekktasta í heimi. Allt þetta gefur til kynna að nú séu að takast samn- ingar með Nylon og Virgin sem má heita risaskref fyrir stúlknasveitina sem stefnt hefur að því leynt og ljóst að komast til frægðar og frama í út- löndum. Einar Bárðarson var þögull sem gröfin þegar DV hafði samband við hann og vill ekkert láta hafa eftir sér. En hann neitar því ekki að við- ræður við Virgin séu vel á veg kornn- I flnar Bárðarson Orðrómur erþess efnis að hann hyggist stofna útgáfufélag á Bretlandseyjum. Til að setja þetta í samhengi er Nelsori þessi mikill áhrifamaður í tónlistargeiranum á heimsvísu. Hann hefur meðal annars haft undir handjaðri sínum Tinu Tumer, Kylie Minouge og ungstimið Jamelíu sem átti eitt vinsælasta lag síðasta sumars, Superstar. Nýlega tók Jamie Nelson við stjórn útgáfunnar Innocent sem er í eigu Virgin og EMI en það er einmitt Innocent sem gefið hefur út Atomic Kitten. Nokkuð er um liðið frá því að DV greindi frá því að Nylon-stúlkur væm komnar með breskan umboðsmann - Martin O’Shea - og virðist vinna hans nú vera að skila sér og glittir í heims- frægðina sem aldrei fyrr. Einnig hefur það heyrst að Einar leggi nú á ráðin um að stofria eigin útgáfufélag í Bretlandi. Margur myndi telja það á brattann að sækja en vitað er að Einar Bárðarson lætur sér ekki allt fyrir brjósti brenna. Einar vill heldur ekki tjá sig um þennan orðróm. Samdi eigin stuðn- ingsyfirlýsingu Ágúst Ólafur Ágústsson, þing- maður Samfylkingar, samdi sjálfur stuðningsyfirlýsingu til embættis varaformanns flokksins, sem ungir jafnaðarmenn á Suðurlandi sendu frá sér í gær. Viðhengi með ályktun- inni leiðir sannleikann í ljós um hvemig ályktunin varð til. „Hér kemur þetta. Þú reynir að fá þetta samþykkt sem fyrst og sendir síðan á fjölmiðla [...] Takk kærlega fyrir þetta. Ágúst," segir varafor- mannsefnið í bréfi sínu til Más Ing- ólfs Mássonar, formanns ungra jafn- aðarmanna á Suðurlandi. Ályktunin er mikill lofsöngur þar sem meðal annars stendur að störf Ágústs á Alþingi hafi vakið athygli, „en hann hefur talað fyrir fjölmörg- um .og ólíkum málum og sýnt þannig að hann býr yfir mikilli breidd". Ágúst Ólafur Ágústsson, þing- maður Samfylkingarinnar Notar óhefðbundnar leiðir í baráttu sinni fyrir varaformannsembættinu. Már Ingólfur neitar því að Ágúst hafi komið nálægt ályktuninni. „Nei, við sömdum hana sjálf á stjórnar- fundi í hádeginu," sagði Már í gær- kvöldi og sömu sögu sagði Ágúst Ólafur, allt þar til tölvupóstur hans var lesinn upp í símanum. „Já, sko. Ég fékk ályktunina til aflestrar seinnipartinn í dag og sendi hana aftur til baka,“ bætti Ágúst þá við. Opruh-þátturinn í kvðld Fáir ef nokkrir þættir hafa vakið viðhka athygh og verið jafii umdeild- ir ósýndir og sjónvarpsþáttur sem verður á dagskrá Stöðvar 2 í kvöld. Hér er vitanlega um að ræða þátt Opruh Winfrey sem að þessu sinni fer um heiminn og skoðar hvernig konur víðs vegar um heiminn hafa það. Hlutur íslenskra kvenna er þar meiri en annarra en þrátt fyrir það telja þær íslensku konur sem fram komu sig hafa verið „klipptar" meira en góðu hófi gegnir. Framganga Þór- unnar Lárusdóttur og einkum Svan- hildar Hólm í þættinum hefur valdið miklu fjaðrafoki. einkum þegar spurðist að bandarískar húsmæður væru hneykslaðar á því hversu frjáls- Svanhildur og Oprah Það varmikið undir þegar spjallþáttadrottningin islenska hitti spjallþáttadrottningu Bandarikjanna. lyndar íslenskar konur væru. Nú get- ur hver vegið það og metið fyrir sig hvort Svanhildur hafi verið landi og þjóð - og íslensku konunni - til skammar eða ekki. \7TJ TTTT QT^THT A V l JLi 1 U OIVJ VJL /V VERÖNDINA? www Dalbraut 3, 105 Reykjavík * Nártari upplýsingar í síma 567-7773 og 893-6337 um kvöld og helgar i 486 ;M fe . jS A. Jfc.JL'é:? J Jt jatrl $ % b ’JSL jíÁ, r

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.