Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2005, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2005, Blaðsíða 11
DV Fréttír FIMMTUDAGUR 12. MAÍ2005 7 7 Eimskip í höfn Simans Síminn og Eimskip hafa gert með sér samn- ing um að Síminn veiti Eimskip heildarfjarskipta- þjónustu. Innifalið í samningnum er öll fjar- skiptaþjónusta fyrir Eim- skip, meðal annars tal- símaþjónusta, farsíma- þjónusta, net- og víðnets- þjónusta auk ails kyns virðisaukandi þjónustu. Er það sögð vera trú beggja fyrirtækja að fram- undan sé farsælt samstarf sem „muni stuðla að áframhaldandi forystu þeirra á sínum sviðum“. Reykjavíkurborg þarf að styrkja sundlaugarnar í höfuðborginni með tæpum hálfum milljarði á ári til að halda verði aðgöngumiða i því horfi sem nú er, 250 krónum. Miöl í sund ætd aD kosta 444 krónup Á hverju ári setur Reykjavíkurborg tæpan hálfan milljarð í rekst- ur sundlauganna í höfuðborginni. Aðgangur að sundlaug kostar í dag 250 krónur en hann ætti með réttu að kosta 444 krónur ef styrkjanna nyti ekki við. Er þá miðað við meðaltal allra sem sundlaugarnar sækja, hvort sem um er að ræða börn, fullorðna, ellilífeyrisþega eða aðra sem njóta sérkjara. „Kosmaður við hverja laug er mismikill eftir aldri lauganna og að- sókn,“ segir Skúli Skúlason, fjármála- stjóri íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur. „Minnst er niður- greiðsla borgarinnar í Vesturbæjar- laug, eða 120 krónur á miða en mest í Breiðholtslaug, 288 krónur á hvem miða.“ Skúli segir að árlega sæld 1,8 millj- ónir gesta sundlaugamar í Reykjavík og það kosti rúmlega 800 milljónir að reka þær. Tekjur af sölu aðgöngu- miða sé um 380 milljónir króna og fyrir bragðið þurfi borgin að reiða fram vel yfir 400 milljónir króna ár- lega tii að halda sundlaugakerfinu gangandi. Þótt kosmaðurinn við hvem gest sé mestur í Breiðholtslauginni er rekstrarkosmaður Árbæjarlaugar- innar og Grafarvogslaugar meiri en þar er. Á móti kemur að aðsókn að tveimur síðamefndu laugunum er meiri og því kemur meira í kassann á móti kostnaði. Minnst er aðsóknin í Sundhöll Reykjavíkur en það helgast ekki síst af því að laugin er mikið not- uð til sundæfinga og því frátekin á með- an. Gestir í Sundhöll Reykjavíkur vom í fyrra 150 þúsund talsins og það er minnsta aðsókn sem um getur í sundlaugum höf- uðborgarinnar. Ór Breiðholtslaug Dýrasta laug borgarinnar. Fórnarlamb líkamsárásar þjáist af tvísýni Árásarmaður slapp á skilorði Jón Bjarni Bald- vinsson, tuttugu og tveggja ára Reykja- víkingur, var í gær dæmdur £ eins mán- aðar skilorðsbundið fangelsi fyrir líkams- árás. Jón Bjarni réðst að öðmm manni fyrir utan Kirkjuhúsið á Laugavegi í lok árs 2002 í kjölfar deilna sem upp komu á milli þeirra. Áverkar fórnar- lambs Jóns Bjarna hafa haft miklar og Kirkjuhúsið l/ettvangur árásarinnar alvarlegar afleiðingar fyrir hann. Maðurinn hefur þjáðst af skertri hreyfigetu á auga og tvísýni. Hann krafðist því þriggja milljón króna í skaðabætur. Læknar bám fyrir dómi að stungusár hafi verið á hægri öxl, aftan á hálsi og við hægra auga manns- ins eftir árásina. Einnig hafði skorist flipi úr hægra auga. Dómari komst að því að þeir skurðir sem fórnarlambið hlaut í átökunum lík- lega hlotist af egg- hvössum hlut. Vinur Jón Bjarna bar fyrir dómi að Jón hafi sýnt sér svokallaðan butt- erfly-hníf fyrr það kvöld sem árásin átti sér stað. En Jón Bjami neitar að hafa verið með liníf. Skaðbótakröfu fórn- arlambsins var vísað frá dómi þar sem ekki þótti fullsannað að áverkar fómarlambsins væru af völdum Jóns Bjarna. andri@dv.is Ágengt Mannlíf frá Reyni væntanlegt Kaupás guggnaði á útgáfu bókar Jónínu Mannlíf er væntanlegt innan tíð- ar og dregur Reynir Traustason rit- stjóri hvergi af sér - í tímaritinu er að finna krassandi efni. Til dæmis mikið viðtal við Jónínu Benedikts- dóttur sem opnar sig. Hún lýsir sambandi sínu við Jóhannes í Bón- us, talar reyndar vel um hann, kall- ar hann „gullmola", en segir að sig hafa verið rægða í hans eyru af framkvæmdastjóra fyrirtækisins, Tryggva Jónssyni. Hún segir af nið- uríægingunni sem fylgdi því þegar korti hennar var synjað í Bónus skömmu eftir sambandsslitin. í kjölfarið hafði samband við hana dularfullur velgjörðarmaður sem afhenti henni 150 þúsund krónur £ umslagi svo hún ætti fyrir mat. Hún segir og af því þegar Skúli Magnússon íþróttakennari afhenti henni lykla að glæsihúsi við Stiga- hlíð 40 þegar hún var á vergangi auk þess sem fram kemur að Kaupás hafi ætlað að gefa út um- deilda bók hennar um viðskiptalíf- ið - en gengu úr skaftinu. Jónína prýðir þó ekki forsíðuna heldur er þar mynd af Báru Guð- jónsdóttur fyrrverandi konu Sig- mundar Ernis Rúnarssonar og fatl- aðri dóttur þeirra. í baksýn er Sig- mundur og yfir myndinni er fyrir- sögnin: „Ekki barn að eilífu." Þjálfarar í Landsbankadeildinni eru búnir að vinna heimavinnuna sína. ERTU BUINN AÐ STILLA UPP DRAUMALIÐINU ÞÍNU Á VISIR.IS? Aukavinningur fyrir öflugasta hópleikinn Ný þjónusta fyrir Draumaliðsþjálfara: BOLTAVAKTIN - allt beint af vellinum á visir.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.