Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2005, Side 9
Básúnublásarinn, útsetjarinn,
upptökustjórinn og síðast en ekki síst
„Jagúarinn" Samúel J. Samúelsson
elskar lambakjöt en hafði þó aldrei
dottið íhugsá möguleiki að kljúfa lærið
„í herðar niður". Honum finnst það
frábær nýjung enda hentar það hans
fjölskyldustærð mjögvel.
1 tsk rósmarín
1/2 bolli ólífuolía
safi úr hálfri sítrónu
salt ogpipar
Lnnaskcfió (<inbí|l<cfi
(Lambalærið er sagað ítvennt langsum eftir beininu.)
Kryddblanda
1/2 tsk óreganó
1/2 tsk salvía
1/2 tskpaprikuduft
ltsksítrónupipar
ltsktimjan
1 lítil dós hrært ósætt skyr
2 hvítlauksgeirar, pressaðir
1/2 agúrka, rifin á grófu rifjárni
10 fersk mintublöð, smátt söxuð
1/2 tsksalt
Stráið salti yfir rifnar agúrkurnar og látið standa í 3-4 mínútur, kreistið
rifnu agúrkurnar lítillega og hrærið saman við skyrið ásamt hvítlauk og mintu.
Látið sósuna standa í u.þ.b. klst. áður en hún er borin fram.
Biðjið kjötkaupmanninn að skera lambalærið langsum. Blandið öllu þurrkryddinu
saman í skál, setjið ólífuolíuna og sítrónusafann saman við og hrærið. Nuddið
blöndunni vel á lambalærið og látið það bíða í 1-2 klst. Setjið á grillið í u.þ.b. 9-10
mínútur á hvorri hlið, snúið því samt nokkrum sinnum svo það brenni ekki.
Bragðbætið með salti ogpipar. 1/2 lambalæri ertilvalið fyrir 2—3 ímat og einnig
er mjög þægilegt að grilla lærið á þennan hátt þó svo að það séu fleiri í mat, það
sparar tíma og gefur meiri skorpu.
Ám/aApet — /etáifrAétúifr
Uppáhald fslensku þjóðarinnar
Fjöldi uppskrifta á www.lambakjot.is