Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.2005, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.2005, Qupperneq 6
6 FÖSTUDAGUR 24. JÚNÍ2005 Fréttir DV Seldu dóp í barnahverfi Hörður Már Lúthersson, 26 ára Reykvíkingur og Alex- andra Rut Daníelsdóttir, tví- tug Reykjavíkurmær, hafa verið ákærð fyrir stórfelld fíkniefhalagabrot. Lögreglan í Reykjavík gerði húsleit hjá þeim á Jörfabakka 12 þann 23. nóvember á síðasta ári. Við húsleitina fundust rúm 40 grömm af amfetamíni, 250 grömm af hassi, 15 grömm af marijúana og ein kannabisplanta. Einnig fundust rúm 3 grömm af marijúana við húsleit í febr- úar. Málið gegn parinu var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Vilja ffkni- efnapar burt f Bakkahverfi í Breið- holti er mikið af fjölskyldu- fólki og eru íbúar blokkar- innar við Jörfabakka ugg- andi vegna fíkniefnaparsins Harðar Más og Alexöndru. Þeir sem vel til þekkja við Jörfabakka segja mikinn umgang gesta hafa fylgt parinu og að fíkniefnadeild lögreglunnar hafi verið tíð- ur gestur í stigaganginum aUt frá því í júní í fyrra. Mikil ógn hefur stafað af parinu og segir einn íbú- anna liggja á því að losna við þau úr blokkinni barn- anna vegna. Það hefur ít- rekað verið reynt en án ár- angurs. Nýja Hringbrautin? Sverrir Örn Jónsson, tökumaöur á sjónvarpsstööinni Sirkus. „Mér finnst hún mjög fín. Ég held bara jöfnum hraöa á Polo-inum mínum þó það bætist viö akgreinar. Það væri aö vísu betra að vera án Ijósanna. En ég sakna ekki þeirrar gömlu." Hann segir / Hún segir „ Veistu, ég er ekki búin að mynda mérskoöun á henni ennþá. Var að koma úr sveit- inni og hefekki keyrt aðalveg- inn, bara siaufuna. Þetta ernú ekkert rosalega flott. Það var umferðarhnútur þegar ég fór þarna framhjá í dag." Lovfsa Ósk Gunnarsdóttir dansari. Greiðslustofa lífeyrissjóða óskar nú eftir því að öryrkjar sendi inn þær skattskýrsl- ur sem gerðar voru næstu þrjú árin fyrir orkutapið. Valgeir Borgþór er 100% ör- yrki eftir slys sem hann varð fyrir 1988 á leið sinni til vinnu. Hann segir aðgerðir þær sem Greiðslustofa lífeyrissjóða stendur nú fyrir verða til þess að greiðslur til hans falli niður. Valgeir Borgþór 100% öryrki óttast að missa allar sínar greiðslur vegna þess- ara aðgerða. sjoða skeltir örvrkja „Með þessum breytingum er verið að ræna lifíbrauði fjölskyldu minnar,“ segir öryrkinn Valgeir Borgþör sem hræðist harkalegar aðgerðir Greiðslustofu lífeyrissjóða. öllum öryrkjum hefur verið sent bréf með beiðni um að þeir skili skattframtölum sínum frá því þremur árum fyrir orkutap annars missi þeir bæturnar. Erfitt getur reynst fyrir örykja eins og Valgeir Borgþór að nálgast gögnin sem beðið er um. Dæmi eru um að gömul skattframtöl séu komin á Þjóðskjalasafnið. Valgeir Borgþór segir að í sínu tilviki hafi hann fengið bætur í formi sjúkra- dagpeninga þrjú fyrstu árin eftir að hann lenti í alvarlegu bflslysi því hann var ekki dæmdur öryrki fyrr en þá. Þeir peningar hafi ekki verið taldir fram og því geti hann ekki skilað framtali fyrir þessi ár. „Það er eins og ég hafi ekki haft neinar tekjur, því þau miða við þau ár sem ég var að jafna mig,“ segir Valgeir sem á því von á að missa örorkulífeyrinn. Óskýr svör Matthildur Hermannsdóttir starfsmaður Greiðslustofunnar segir að reynt verði að horfa á hvert tilfelli fyrir sig. „örorkulífeyr- ir er til þess að mæta tekjutapi sem öryrkinn verður fyrir vegna ör- orkunnar. Til þess að við vitum hvort um tekjutap sé að ræða verð- um við að kanna hverjar tekjur ör- orkuþegans voru fyrir orkutapið. Við erum bara að fara í heildarat- hugun hjá öllum örorkulífeyris- þegum hjá okkur. Lífeyrissjóðirnir eru eign ailra sem í hann greiða og við viljum bara gulltryggja að rétt sé greitt út í ör- orkulífeyri," segir Matthildur. Erfiðar að- gerðir SB Mörgum ör- «<‘V yrkjum þykir hart vegið að sér, en dæmi eru um að skatt- krf ■ skýrslur þeirra „Með þessum breytingum er veríð að ræna lifi- brauði fjölskyldu minnar séu komnar á Þjóðskjala- safnið. Að auki verða ein- staklingar sem ekki unnu launaða vinnu, eins og húsmæður, illa fyrir barðinu á aðgerðum Greiðslustofu og útlit er fyrir að þær missi þær litlu greiðslur sem þær hafa fengið. Anna Kristín Jakobsdóttir, að- Með bestu kveðjum Ufeyrisgreiöslur munu falla niöur berist fram- tölekkifyrir 15 .júlí. standandi ör- yrkja, segir afar undarlegt að leita þurfi jafn ítar- legra upplýsinga um hagi þeirra sem minnst hafa. Hún segir þessar aðgerðir koma sér “ mjög illa fyrir móður sína sem aðeins hefur feng- ið um það bil 5000 krónur greiddar úr sjóðnum á mánuði, og líklegt sé að þessi greiðsla falli niður eftir þessar aðgerðir Greiðslu- stofu lífeyrissjóða. karen@dv.is Barátta Árnýjar Evu og Kristins Finnboga heldur áfram. Bðrnin tvð enn á Dalvík Börn þeirra Árnýjar Evu Davíðs- dóttur og Kristins Finnboga Krist- jánssonar, sem voru tekin af þeim þann 23. maí síðastliðinn og send í fóstur til Dalvíkur, eru enn á Dalvík. Árný Eva og Kristinn Finnbogi höfðu vonast eftir því að geta séð meira af börnum sínum en Fjölskyldudeild Akureyrar heldur börnunum tveim- ur á Dalvík. Ámý Eva, sem hefur ekki enn fengið að gefa mánaðargamalli yngri dóttur sinni brjóst, sagði í samtali við DV í gær að þetta væru henni mikil vonbrigði. „Ég hef eiginlega gefist upp á því að vinna með yfir- völdum. Okkur var lofað því að börnin kæmu til Akureyrar til að við gætum fengið að hitta þau oftar. Það stendur hins vegar ekkert sem þetta fólk segir. Nú eru börnin á Dalvflc og við megum hitta þau einu sinni í viku,“ sagði Árný Eva gráti nær við DV í gær. Börnin tvö Eru enn á Dalvfk og fá ekki að hitta foreldra sfna nema einu sinni f viku. ý, ■ " • >>.2& Itarlegt við- tal við Árnýju Evu og Kristin Finnboga í verður helgarblaði DV á morgun. Myndin er tekin af fréttavef RÚV Hópslagsmál á Akureyri Sláandi myndir birtust af hópslagsmálunum á Akureyri sem blossuðu upp síðustu helgi í fréttatíma Rúv í gærkvöldi. Mynd- bandið tók vegfarandi. Á því sést hvernig tugir ungmenna ganga í skrokk á hvort öðru; sparkað er í liggjandi menn, hnefahögg látin fljúga og í miðjum hildarleiknum reynir fáliðað lögreglulið að stilla til friðar. Myndirnar hafa vakið óhug. Akureyringar eru slegnir. Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri segir slagsmál sem þessi mikið áhyggjuefiii. Stutt er síðan Akur- eyringar gáfu ofbeldi rauða spjaldið í mótmælum á sama torgi og slegist var á síðustu helgi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.