Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.2005, Blaðsíða 11
DV Fréttir
FÖSTUDAGUR 24. JÚNÍ2005 11
Barist í boccia
Hópar aldraðra sýndu
bæði leikfimi og dansa á
sérstökum íþrótta- og leik-
degi Félags áhugafólks um
um íþróttir aldraðra - FÁÍA.
Atriðin þóttu sérlega fjöl-
breytt og falleg. Þessi hátíð-
ardagur var haldinn í Aust-
urbergi, en á sama tíma fór
fram afmælismót í boccia í
aðalsal Laugardalshallar.
Sigurvegari í boccia-mót-
inu varð Reykjanesbær,
Norðurbrún hafnaði í öðru
sæti og Seltjarnames rak
lestina í þriðja sæti. Greint
er frá í fréttabréfi FÁÍA.
Gömlu húsin
rifin
Ólafur F.
Magnússon,
borgarfulltrúi
Frjálslynda
flokksins, lýsir
undrun sinni
yfir að allir
fulltrúar R-list-
ans í borgar-
stjórn greiði atkvæði með
tillögu sem feli í sér að fjög-
ur 19. aldar hús og fimm
hús frá fýrri hluta 20. aldar
verði að öllum líkindum rif-
in. Á borgarstjórnarfundin-
um á þriðjudag var sam-
þykkt með átta atkvæðum
gegn einu að vísa málinu til
skipulagsráðs. Ólafur vill
ekki að málið fari til ráðsins
því enginn vilji sé í ráðinu
til þess að þyrma húsun-
um.
Galdrar í
fimm ár
í gær voru liðin fimm ár
frá því að fyrsti áfangi
Galdrasýningarinnar á
Ströndum var opnaður á
Hólmavík. Á þeim
tíma hafa yfir 30
þúsund manns
heimsótt sýning-
una, sem er mun
meira en gert var
ráð fyrir í upphafi.
Þetta sumar fer líka
vel af stað en um
40 prósenta aukning er
aðsókn frá sama tíma í
fyrra. Síðar í sumar mun
annar áfangi sýningarinn-
ar, Kotbýli kuklarans, verða
opnaður í Bjarnarfirði.
Týndi töskum
Siv Friðleifsdóttir um-
hverfisráðherra komst í
hann krappan á Flugstöð
Leifs Eiríkssonar í gær þeg-
ar hún flaug heim eftir
annasama fundi í Evrópu-
ráðinu í Strassburg. Á
heimasíðu sinni segist hún
hafa lent í Keflavík rétt fýrir
klukkan fjögur eftir milli-
flug frá París. Þegar heim
var komið skiluðu töskurn-
ar sér hins vegar ekki og er
Siv því án ferðataska í
augnablikinu. „Vonandi
koma þær bráðlega í leit-
irnar," segir Siv sem fékk
þó pönnukökur hjá móður
sinni um kvöldið.
Tímaritið Frjáls verslun býður heilsiðuviðtöl við starfsfólk fyrirtækja ef keypt er
heilsíðuauglýsing i blaðinu. Jón G. Hauksson, ritstjóri Frjálsrar verslunar, segir að
viðtölin séu ekki til sölu, heldur fái viðskiptavinurinn viðtal í kaupbæti við auglýs-
inguna. Haraldur Flosi Tryggvason hjá Exton-Kastljósi segir þessi viðtöl dulbúnar
auglýsingar.
Viðtai í
kostar 21
Tímaritið Fijáls verslun hefur orðið uppvíst að því að bjóða við-
töl í blaðinu föl til kaups. Jón G. Hauksson, ritstjóri Frjálsrar
verslunar, segir að viðtöl séu ekki til sölu hjá blaðinu heldur séu
þau boðin viðskiptavinum í kaupbæti fyrir að auglýsa. Komst
þetta í hámæli eftir að nokkrum athafnakonum var boðið að
koma í viðtal gegn því að kaupa auglýsingar í blaðinu.
verslun
Tímaritið býður viðskiptavinum
upp á heilsíðuviðtal gegn því að
keypt sé heilsíðuauglýsing. Heil-
síðuauglýsing í Frjálsri verslun kost-
ar 219.900 krónur með virðisauka-
skatti.
15 til 20 keypt viðtöl
í 1. tölublaði þessa árs af Frjálsri
verslun er sérrit þar sem fjallað er
um ráðstefnur og fundahald. í þessu
fýlgiriti eru á bilinu 15-20 heilsíðu-
viðtöl við fólk frá ýmsum fyrirtækj-
um. Þessi viðtöl eru ekki merkt sér-
staklega, en gegnt viðtali á opnu er
heilsíðuauglýsing frá viðkomandi
fýrirtæki. Þessa tegund auglýsinga-
viðtala er að finna í nánast öllum ný-
legum tölublöðum af tímaritinu sem
flett er upp í. Athygli vekur að þessi
viðtöl voru ekki kynnt sem auglýsing
heldur eingöngu sem hluti af efni
blaðsins.
Auglýstu og fengu viðtal
Dómhildur Amdís Sigfúsdóttir,
forstöðumaður tilraunaeldhúss
Osta- og smjörsölunnar er ein þeirra
sem komið hefur fram í heilsíðuvið-
tali hjá Frjálsri verslun. Hún segir að
forsendan fýrir viðtalinu hafi verið
að kaupa heilsíðuauglýsingu.
Haraldur Flosi Tryggvason, fram-
kvæmdastjóri Exton-Kastljóss ehf.
kemur fram í
tölublaði og Dómhildur. Hann tekur
í sama streng og segir að þarna sé
um dulbúnar auglýsingar að ræða.
„Það var að vísu búið að semja um
þetta rétt áður en ég tók til starfa hjá
Exton, en ég samþykkti þessa aug-
lýsingu og ákvað að taka þátt í
þessu. Að sjálfsögðu er þetta auglýs-
ingamennska,“ segir Haraldur Flosi.
Seljum ekki viðtöl
„Þessu er hagað þannig að við
bjóðum einungis í aukablöðunum
heilsíðuauglýsingu og viðskiptavin-
urinn á þess kost að fá heilsíðuviðtal
í kaupbæti í sömu opnu,“ segir Jón
G. Hauksson, ristjóri Frjálsrar versl-
unar. Aðspurður hvort
ekki beri að gera grein fýrir
eðli viðtalsins sem
kynningar segir
Jón að í fram-
haldi af
umræðu
„Þessu er hagað
þannig að við bjóðum
heilsíðuauglýsingu og
viðskiptavinurínn á
þess kost að fá heil-
síðuviðtal í kaup-
bæti."
síðustu daga hafi verið tekin ákvörð-
un um að merkja þessi viðtöl sér-
staklega sem kynningarefni.
„Við höfum litið svo á að þetta
væri galopið sem greinilegt gagnvart
lesendum. Auglýsingin er öðru meg-
in á opnunni og viðtalið hinum
megin þannig að tengslin ættu í
sjálfu sér ekki að vefjast fyrir nein-
um,“ bætir Jón við. Hann segir enn-
fremur að viðtöl í blaðinu séu ekki
seld, heldur sé boðið upp á þau sem
kaupbæti við
keyptar auglýs-
ingar.
sigtrygg-
ur@dv.is
Dóplistamaðurinn Björn Tómas Sigurðs-
son dreginn fyrir dóm
Stendur við orð sín um
leka lögreglumenn
Bjöm Tómas Sigurðsson,
baráttumaður gegn fíkniefn-
um og tengdu böli, fer fýrir
Héraðsdóm Reykjavíkur í
dag vegna þess að hann birti
nöfn tveggja lögreglumanna
á vefsíðu sinni dopsalar.tk.
Bjöm sagði lögreglumenn-
ina tvo leka upplýsingum til
glæpamanna.
Meiðyrðamálið gegn
Bimi verður tekið fyrir
klukkan 11.50 og hyggst
Bjöm mæta á staðinn. „Ég
stend við það sem ég sagði í
sambandi við þetta fólk. Ég stend við
allt á síðunni," segir Bjöm, sem vakti
landsathygli með því að birta nafna-
lista á netinu yfir tugi manna sem
BjörnTómas
Býr i Krummahólum og
stýrir samtökum gegn
ofbeldi og fíkniefnum.
DV-mynd Valli
hann sagði dópsala.
Bjöm segist hafa fleiri en
eina heimild fyrir því að
umræddir lögreglumenn
hafi lekið upplýsingum.
Hins vegar geti hann aðeins
nefnt eina heimild; mann-
inn sem rændi syni hans og
var dæmdur fyrir líflátshót-
anir í garð Björns. „Málið
er að þegar maðurinn sem
lét ræna stráknum var að
hóta okkur lífláti sagði ég
að ég myndi láta lögregl-
una hirða hann. Þá nafn-
greindi hann þessa tvo lögreglumenn
og sagði að þeir myndu láta hann vita
áður en hann yrði böggaður. Þetta
VOm hans orð.“ jontrausti@dv.is
Opin kerfi biðja Iceland Express afsökunar
Ógeðfellt viðskiptasiðferði
„Við sættum okkur alls ekki við
þær aðferðir sem hann notaði í þessu
sambandi," segir Birgir Jónsson,
framkvæmdarstjóri Iceland Express.
DV greindi í gær frá deilum sem
rjttu upp milli Iceland Express og
a Gunnarssonar, skipuleggjanda
svifdrekamótsins Celtic Cup. Ámi
sakaði flugfélagið um að eyðileggja
mótið þegar það neitaði að flytja átta
svifdreka fýrir velska svifdrekamenn
sem æduðu að keppa á mótinu.
Ámi vinnur hjá Opnum kerfum og
í örvæntingu reyndi hann að notfæra
sér aðstöðu sína til að þvinga Iceland
Express til að flytja svifdrekana.
„Hann hótaði okkur að bæði Opin
kerfi og Kögun myndu ekki ferðast
með okkur í framtíðinni ef við sæjum
ekki um að koma svifdrekunum til
landsins," segir Bjami. „Ég skrifaði
framkvæmdastjóra Opinna kerfa og
fékk afsökunarbeiðni frá þeim fyrir
>rnl GunnarsKH., „„.puieiaoandl svlfdrckamóulna Celtlc Cup. seglr að Oi
Iceland Kxpress hafl nœr cyöllagt mðtlð af þvt að þaö vlldi ekkl flytja átU.
svlfdrekaflugmenn tU lalanda. Blrglr Jónaaon. framkvœmdaatWrl IðlagBlna,
Átökvegnasvif-
dreka Nú hefur kom-
... , 'ð / Ijós að Árni revndi
að ná sínu fram með
viðkomandi hótunum.
starfsmanns." --------------------
í afsökunarbeiðninni segir að
það sé óásættanlegt að starfsmenn
skuli beita fýrirtækinu fýrir sig í við-
skiptum VÍð aðra. johann@dv.is