Freyr

Árgangur

Freyr - 15.06.1948, Síða 22

Freyr - 15.06.1948, Síða 22
202 FREYR Það verður að teljast bæði þarft og gott, að verkefni þetta er tekið til meðferðar hér á landi, og má hiklaust gera ráð fyrir, að það hljóti bæði fylgi og áhuga ungling- anna ef rétt er á málum haldið. G. Spurningar og svör Spurning 13. Fást núna gamlir árgangar af Búnaðarritinu og þá hverjir, og hvað kosta þeir? B. B. Svar: At' Búnaðarritinu fást: 1., 3.—14., 35.—44. og 48,—60. árg. Samtals er þetta selt á kr. 45,00, auk burðargjalds. Spurning 14. Eru líkur til, að rafgirðingar fáist í r'or? Má nota þær við straum frá 6 volta rafgeymi? Hvað kostar girð- ingin án rafgeymis? J. Kr. Svar: Samband íslenzkra samvinnufélaga mun geta fullnægt pöntunum þeim, sem bændur leg'gja inn hjá kaupfélög- unum, svo framt gjaldeyrisleyfi fást. Venjulegan 6 volta rafgeymi má nota en annars fylgir tækinu rafhlaða á- samt 50 einangrunarhnöppum og hliðgormi og jarð- spjóti. Straumstillar fást einnig til þess að setja í samband við venjulegan ljósastraum. Eru þeir viðurkenndir af rafmagnseftirliti þeirra landa, sem framleiða slíka hluti til rafgirðinga. Venjulegur straumstillir, með rafhlöðu og öðru, er fylgir, mun nú kosta rúmlega 200 krónur. Laus rafhlaða kostar um 30 krónur. Spurning 15. Lifa tré, birki og reynir, við færslu, ef þau eru 8—10 ára gömul? Hvaða aðferð er hentust við færslu? Mega trén bíða eilthvað frá því þau eru tekin upp og þar til þau eru sett niður aftur? Svar: Það er vandalaust að flytja tré á þessum aldri, en gróð- ursetning þarf helzt að fara fram strax. Hvernig að þessu er farið, verður ekki sagt í stuttu máli, en í bók Hákonar Bjarnasonar, skógræktarstjóra: Leiðbeiningar í trjárækt, sem fæst hjá bóksölum og kostar aðeins kr. 3,50, er greinilega sagt hvernig bezt er að haga athöfnum við flutning og gróðursetningu trjáa. Spurning 16: Eyðir útlendi áburðurinn ánamaðkinum úr túnun- um? J. B. Svar: Niðurstöður rannsókna eða aðrar upplýsingar um þau efni eru ekki kunnar þeim, er bezt skyn bera á jarð- rækt hérlendis. Fullyrðingar einstaklinga um þau efni virðast úr lausu lofti gripnar. Spurning 17: Eyðir áburðurinn smáranum úr túnunum? J. B. Svar: Jurtanæringarefnin, fosfórsýra og kali, eru smáranum nauðsynleg og þó að þessi efni séu borin á, sem „útlend- ur áburður“, er það aðeins til bóta og aldrei til saka. Oðru máli er að gegna með köfnunarefnisáburð. Niður- stöður tilrauna hafa sýnt, að köfnunarefnisáburður (saltpétur) er óþarfur eða jafnvel skaðlegur á smára- ekrur. Það vill svo vel til, að á rótum smárans geta lifað gerlar (bakteríur) ,sem vinna köfnunarefni úr loftinu, en sambönd þau, sem gerlarnir mynda, getur smárinn svo notað til þess að byggja jurtavefi. Um þessi efni vísast nánar til ritsins: „Belgjurtir" eftir Olaf Jónsson. tilrauna- stjóra á Akureyri. Spurning 18: Er hægt að fá smárafræ keypt sérstaklega, og ef svo er, hvar þá? J. B. Svar: Freyr hefir leitað upplýsinga um hvort smárafræ muni fáanlegt en árangurinn hefir orðið neikvæður, og mun því ekki á öðru völ en að bíða til næsta árs.

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.