Freyr

Volume

Freyr - 15.06.1948, Page 23

Freyr - 15.06.1948, Page 23
FREYR 203 H úsmæðraþáttur Dagar húsflugunnar taldir. Sumarið er komið, gróandi byrjaður og til margs er að hlakka í sambandi við það — eftir langan vetur. En sumrinu fylgja einnig nokkur óþægindi og eitt af því ó- þægilegasta eru áreiðanlega húsflugurnar. Ekki einungis oþægilegar, heldur geta þær líka verið beinlínis hættu- fegar, borið með sér skaðlega sýkla, fyrir utan allan anann sóðaskap, sem þeim kann að fylgja. Pluga kemur utan frá haugstæðinu — eða frá enn verri stað — flýgur beint inn að matborðinu og setzt t,ar að krásunum, flýgur svo burt og lætur eftir sig ýmis óhreinindi, sem að vísu eru varla sjáanleg nema Undir stækkunargleri, eða smásjá. Fátt er ógeðslegra en að koma að matborði, þar sem flugnasægur er setztur að á undan gestunum, eða eldhús og búr með veggi sem eru svartir af flugum. Plugurnar hafa líka verið til mikilla óþæginda í gripa- húsum, ekki síst í fjósum, ég hefi séð slíka staði hér Svarta af flugum. Viðkoman er óskapleg hjá flugun- um og séu skilyrðin hentug, getur þróunin orðið mjög hröð. í heitum löndum er talið að ein fluga geti eignast 0 Þúsund milljónir afkvæma á einu ári! Hér hafa húsmæður lengi staðið varnarlitlar gegn Ougnaplágunni, fljótvirk meðöl voru varla til gegn henni. Hreinlæti þarf auðvitað fyrst og fremst, og mikið matti draga úr plágunni með því að slá flugurnar með sarnanlögðu pappírsblaði, eða öðru álíka hentugu, eftir að þær voru setztar að á veggjunum á kvöldin. Þá voru flugnaveiðarar, límbornir strimlar líka til bóta — en heldur ógeðslegir í íbúðum. Svo komu „Flit“sprautur, sem auðvelduðu baráttuna mikið. Var sprautað með þeim olíukenndum vökva og mátti með því móti drepa allar flugur innanhúss. En nú er óskameðalið í baráttunni gegn húsflugunni fundið og það gengur alstaðar undir nafninu D. D. T. — sem er skammstöfun á efnasambandi með svo löngu og erfiðu nafni. að það verður tæplega fram borið. Það er með öllu skaðlaust mönnum og húsdýrum, en fyrir skorkvikindi er það svo eitrað, að ef þau aðeins • snerta það, liggja þau steindauð eftir litla stund. D. D. T. fæst bæði sem duft og sem lögur. Leginum má sprauta á gluggarúður og karma —■ og hver fluga sem þar setzt í Iangan tíma á eftir, er dauðadæmd. Hafi menn duftið, má taka svo mikið sem legið getur á hnífsoddi og leggja á tvo þrjá staði í glugga, flugurnar komast fljótt í snertingu við það — og hrynja niður. Eldhús- búr- og fjósveggi ætti auðvitað að sprauta með D. D. T. til að losna við flugurnar þaðan. Þetta er svo áhrifamikið meðal gegn húsflugunni og hverskonar öðrum óþrifaskorkvikindum, að það á að notast á hverju heimili. Þegar svona gott meðal er til, er það rétt nefndur sóðaskapur að losa sig ekki við hin hvimleiðu skorkvikindi ómenningarinnar. — í byrjun ársins 1944 brauzt út mikill taugaveikis- faraldur í Neapel. Hjá fólkinu þar, sem þá bjó við ömurleik styrjaldarinnar, gat þetta haft skelfilegar af- leiðingar —- ekki einungis á Italíu, heldur líka víða um Evrópu. Þar varð að útrýma smitbera taugaveik- innar, lúsinni. Flugvélar voru sendar á vettvang hlaðn- ar D. D. T. Fólk var stöðvað á götunum og D. D. T. dufti úðað yfir það, og einkum við hálsmál, ermar og buxnaskálmar. D. D. T. vökva var sprautað á klæðnað hermanna og alstaðar sem þurfa þótti. Arangurinn varð betri en vísindamennirnir og læknarnir bjuggust við; á hálfum mánuði var algerlega tekið fyrir útbreiðslu veik- innar. —- Um þetta áhrifamikla meðal gegn flugum og öðr um skordýrum varðar hverja einustu íslenzka húsmóð- ur. Hreinlæti er eitt fyrsta skilyrði sem uppfylla þarf, ef við viljum heita menningarþjóð. D. D. T. er þýð- ingarmikið hjálparmeðal í þeirri viðleitni. Ragnar Ásgeirsson.

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.