Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq

Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.2005, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.2005, Qupperneq 8
8 LAUGARDACUR 3. SEPTEMBER 2005 Fréttir 0V Pálmi Stefánsson Skipstjóri | Páls á Bakka. Biðlar tilþjóf- anna um að skila tölvunni, enda nýtist gögnin engum nema sjómönnum á svæðinu. Hátt fasteignaverð á höfuðborgarsvæðinu hefur orðið til þess að margar fjölskyldur af höfuðborgarsvæðinu hafa flutt i friðinn úti á landi. DV ræddi við fólk sem unir sér vel á Suðurlandi. Þar er stöðug fólksfjölgun. „Eftir að ég flutti skildi ég ekkert íþví afhverju ég hafði ekki gert það löngu fyrr." Vegöxl gaf sig Lögreglan í Borgarnesi fékk tilkynningu um að vörubifreið hefði oltið á malarvegi í Leirár- og Mela- sveit í gær. Átti óhappið sér stað í kringum hádegisbil- ið. Ástæður veltunnar eru þær að vegöxl malarvegs sem vörubifreiðin ók á gaf sig undan þunga hennar. ökumaður vörubifreiðar- innar var einn í bílnum og slapp ómeiddur. Lögreglan telur það hafa verið honum til happs að hann var í bíl- belti. Einhveijar skemmdir urðu á bifreiðinni. Guðmundur með hluta fjölskyldunnar Guðmund- ur er einn þeirra sem fann friðinn á landsbyggðinni. Þriú innbrot í •i' ik viKunm í umdæmi lögreglunnar á Álftanesi, í Garðabæ og Hafnarfirði hafa 30 öku- menn verið kærðir vegna hraðaksturs í vikunni. öku- maður sem missti vald á bifreið sinni, og ók á hús við Reykjavíkurveg í Hafti- arfirði var fluttur á slysa- deild til skoðunar. Hann er grunaður um ölvun við akstur. Önnur umferðaró- höpp voru slysalaus en verulegt eignartjón varð í nokkrum þeirra. Þá var til- kynnt um þijú innbrot í vikunni, brotist var inn í vinnuskúr í Hafnarfirði og annan í Garðabæ. Þá var skiptimynt stolið úr fyrir- tæki við Lyngás. Vilia fram- haldsskóla í Borgarbyggð Á fundi bæjarráðs Borg- arbyggðar í fyrradag var samþykkt til- laga um að skipa vinnu- hóp sem á að undirbúa stofnun framhalds- skóla í Borg- arnesi. Á fundinn mætti Run- ólfur Ágústsson, rektor Við- skiptaháskólans á Bifröst, Ágúst Sigurðsson, rektor Landbúnaðarháskóla ís- lands og Hörður Helgason, skólameistari Fjölbrauta- skóla Vesturlands. f vinnu- hópnum munu eiga sæti fulltrúar frá áðurnefndum skólum auk fulltrúa frá Borgarbyggð. Landsbyggðarflótti er ákveðið vandamál. En til er hin hliðin, fólk sem flýr höfuðborgarsvæðið vegna okurs á fasteignamarkaði og finnur friðinn í sveitarfélögum í nágrenni þess. Eftir að fasteignaverð á höfuð- borgarsvæðinu rauk upp úr öllu valdi í byrjun árs hefur búferlaflutn- ingur fólks frá höfuðborginni út á landsbyggðina aukist talsvert. Fjöldi fólks hefur ekki fjárhagslegt bol- magn til að kaupa einbýli, hæð eða raðhús á því háa verði sem er á fast- eignamarkaði á höfuðborgarsvæð- inu og fer því út fyrir borgarmörkin í fasteignaleit. Þeir sem ekki leita langt yfir skammt hafa komist að því að sveitarfélög á Suðurlandi og Reykjanesi eru góður kostur því þar er hægt að fá fínasta einbýlishús með garði og bflskúr á sama verði og litla íbúð í Reykjavík. Viðmælendur DV eru hæstánægðir með þessa ákvörðun og sumir hveijir sækja enn vinnu í Reykjavík. Eðlilegt fasteignaverð Guðbjörg Heimisdóttir, fast- eignasali á Suðurlandi, segir íbúa- ijölda hafa hækkað talsvert í Þor- lákshöfn á síðustu misserum og hún viti jafnframt um fólk sem kýs að búa þar og sækja vinnu í Reykjavík. „Húsnæðisverð er mun lægra hér en í Reykjavík og ég veit um fjölda fólks sem hefur selt íbúð sína í Reykjavík og keypt einbýlishús hér. Það er hvergi fækkun í íbúafjölda á Suður- landi, aðeins aukning," segir Guð- björg og bætir við að það sé einkum barnafólki sem finnist búseta á Suð- urlandi fýsilegur kostur. „Einsetinn grunnskóli hefur mikið að segja auk þess sem fólki finnst freistandi að ala upp barn úti á landi frekar en á höfuðborgarsvæðinu,‘' segir Guð- björg. Gamall draumur rætist „Ég sótti mikið í sveit sem krakki og heftir alltaf langað til að flytja í minna byggðarlag úti á landi,“ segir Þóra Sólveig Guðmundsdóttir, sem flutti til Þorlákshafnar í byrjun árs. Hún segir hátt íbúðaverð meginá- stæðu þess að hún hafi loks látið gamlan draum rætast, en Þóra sótti um tíma vinnu til Reykjavíkur, en fékk svo vinnu við hæfi í Þorláks- höfn. Hún segist vita um marga sem keyri daglega á milli svo og fólk sem hefur í hyggju að flytja frá Reykjavík á næstunni. Keyrir á milli Guðmundur Svavarsson og fjöl- skylda fluttu um miðjan janúar til Stokkseyrar, en Guðmundur sækir daglega vinnu til Reykjavíkur. „Við erum þrír sem keyrum saman á morgnana og erum um hálftíma hvora leið,“ segir Guðmundur og er mjög sáttur við það fyrirkomulag. „Við bjuggum í fjögurra herbergja ] Einbýlishús A verði íbúð í | blokkaríbúðar. bænum og langaði að stækka við okkur. Við sáum ekki fram á að geta keypt á því verði sem nú er í gangi á höfiiðborg- arsvæðinu en vildum heldur ekki fara of langt frá bænum, meðal ann- ars vegna vinnu." Stokkseyri sé því góður kostur, en Guðmundur segir frábært að ala upp börn á Stokkseyri og því fylgi miídð öryggi. „Eftir að ég flutti sldldi ég ekkert í því af hverju ég hafði ekki gert það löngu fyrr.“ Við stutta eftirgrennslan á fast- eignamarkaðnum sést að hægt er að fá einbýlishús í Þorlákshöfn fyrir rúmlega fimmtán milljónir sem er minna en borga þarf fyrir blokkarí- búð í Breiðholti. svavar@dv.is Tölvu stolið úr bátnum Páli á Bakka en nýr skjár látinn vera Skipstjóri biðlar til þjófs að skila bátstölvu Lögreglan í Bolungarvík fékk til- kynningu í gærmorgun um að óprúttnir aðilar hefðu farið inn í Pál á Bakka, bát sem gerður er út frá Bolungarvík og stolið þaðan þriggja ára gamalli tölvu. Talið er að innbrotið hafi átt sér stað milli átta og tíu um morguninn. „Á tölv- unni voru upplýsingar sem nýtast engum nema okkur sjómönnum," segir Pálmi Stefánsson skipstjóri Páls á Bakka og efast um að hér hafi sjómaður verið á ferð. Hann segir þó heppilegt að einhver gagnanna Hvað liggur á? hafi verið afrituð á diska en furðar sig á því að einungis tölvunni hafi verið stolið. „Meira að segja skjár- inn er nýrri en tölvan og hann var látinn vera," segir hann. Pálmi segir þetta hafa gerst á afar óheppi- legum tíma og skilur ekki hvað við- komandi aðilar hafi að gera með tölvuna sem var eins konar heili skipsins. „Þetta er mjög óþægilegt fyrir okkur. Það sem verst er að nú þarf maður að fara að hugsa aftur. Tölvan gerði það fyrir mann en mun væntanlega ekki gera það í bráð." Pálmi biðlar til þjófanna um að skila tölvunni. Málið er í rannsókn lögreglu og eru þeir sem geta gefið upplýsingar um mannaferðir við bátinn eða málið beðnir um að hafa samband við lögregluna í Bol- ungarvík. gudmundur@dv.is „Það liggur á að skipta um vatn í heita pottinum/'segir Gunnleifur Kjartansson, fyrrverandi aðstoðaryfirlögregluþjónn.„Ég er að tæma pottinn og svo þarfég að fylla hann aftur. Nú liggur mér ekki lengur áað komast í vinnuna þar sem ég er hættur. Ég er ekkert fúll yfír að vera hættur og hefur aldrei liðið betur. Á eftir ætla ég að fara I bæinn og finna einhvern góð- an veitingastað og bjóða konunni út að borða íkvöld Páll á Bakka Brotist var inn Iskipið igær- morgun og gamalli tölvu stolið.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.