Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.2005, Blaðsíða 14
74 LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 2005
Fréttir DV
Sorg og byssur
íraskur shíta-múslimi
kveikir hér á kertum og
syrgir þá sem létust í troðn-
ingnum í Bagdad á mið-
vikudaginn. Ástandið er
hins vegar eldfimt og á bak-
við hann skýtur hermaður
viðvörunarskotum. Litlu
munaði í gær að shítum og
súnní-múslimum lenti
saman og þurftu herinn og
lögreglan að ganga á milli.
Fellibylur í
Kína
Tæplega sex hundruð
þúsund manns voru færðir
frá borginni Fozhou í Kína
áður en fellibylurinn Talim
skall á henni í fyrradag.
Bylurinn kom til Kína frá
Taiwan þar sem tveir létust
vegna hans og tugir slösuð-
ust.
Húsin rýmd
í París
Lögreglan beitti valdi í
París í gær þegar 150 inn-
flytjendum var hent út úr
tveimur húsum í 19. hverfl.
Tveir eldsvoðar urðu ný-
lega í svipuðum húsum.
Eldgömlum með engum
brunavörnum. Yflrvöld í
París hafa því ákveðið að
taka sig á í þessum málum
og tæma hættulegar bygg-
ingar, sem húsnæðislausir
hafa hreiðrað sig um í.
Engin læknis-
hjálp Borgarar
reyna að koma
særðum félaga
sínum undir
læknishendur.
Ekkertskárra
bauðst en að
drösla honum I
ónýtum Isskáp á
milli staða.
Ekkert lát er á óhugnarlegum fréttum sem berast frá hörmungasvæðinu í Banda-
ríkjunum. Konum er nauðgað og menn myrtir. Lögreglan missir tökin og ógnar
friðsömum ferðamönnum. Eldar brenna. Líkin eru alls staðar og fylkisstjóri Lou-
isiana talar um ágæti hermanna sem kunna að drepa.
gSBJSSii^gggjRs#®!1
7\
H dte~. -
. fj
Bush ráðalaus Sumirtelja
oð ástandið í Bandaríkjunum
eigi eftir að eiga sinn hlut í
þvi aðþetta tímabil verði
það síðasta hjá George W.
Bush Bandaríkjaforseta.
■ ~ '
Svo virðist sem ástandið í New Orleans versni með hverjum deg-
inum sem líður. Enda eru tugir þúsunda búnir að búa í rústun-
um í fimm daga með lítið vatn og nánast engan mat.
Borgarstjóri New Orleans, Ray
Nagin, var reiður þegar hann talaði
við fréttamenn í gær. „Hvar er öll
hjálpin? Fólk er að deyja í hrönnum
héma,“ sagði hann. Yfirmaður
björgunaraðgerðanna í New
Orleans var einnig reiður í gær og
sagði að hjálparstarfið væri Banda-
ríkjunum til skammar.
Tíu þúsund látnir
Nú þegar fimm dagar em
liðnir frá því að fellibylurinn
fór yfir er ekki enn vitað
hversu margir hafa látist.
öldungardeildarþingmaður
frá Louisiana, David Vitter,
sagði í gær að tala látinna
væri rúm tíu þúsund í Louisi-
ana-fylki. Enn em um tíu
þúsund manns fastir í
íþróttahöllinni í New Orleans
en þó tókst að bjarga
nokkmm þúsundum þaðan í
gær. Við ráðstefnuhöllina em
einnig um 20 þúsund manns.
Þar er ástandið einnig hrika-
legt. „Það er fólk af elliheimil-
um hérna sem var rifið upp
fyrir fimm dögum. Við
horfum upp á þetta fólk deyja
smám saman," sagði Matt
Frei, fréttamaður BBC, £ gær.
„Þessir hermenn kunna
að skjóta og drepa og
það er einmitt það sem
égbýstvið."
Fylkisstjórinn vill drepa
Björgunarsveitir og lögreglu-
menn em einnig orðin örvæntinga-
full. Japanskir, evrópskir og banda-
rískir ferðamenn lýstu því fyrir
fréttamönnum í gær hvernig lög-
reglumenn skutu í áttina að þeim
þegar þeir reyndu að komast burt úr
borginni. Nokkur hundruð ferða-
manna var á hóteli í borginni, sem
var tæmt í morgunsárið og þeim
skipað að bíða á gangstéttinni fyrir
utan. Þegar ferðamennirnir reyndu
síðan að ná sér í far með rútum sem
vom þar nálægt skaut lögreglan að
þeim og ógnaði. Þá gætir einnig
verulegrar tortryggni meðal svartra
íbúa borgarinnar gagnvart lögregl-
unni, sem er að mestum hluta hvít.
Kathleen Blanco fylkisstjóri
skýrði í gær frá komu um fimm
hundmð sérsveitarmanna til borg-
arinnar. „Þeir em vanir átökum.
Með hlaðnar M-16 byssur. Þessir
hermenn kunna að skjóta og drepa
Gamlir í hættu Alicia Schuiz
er 94 ára gömui. Hún hafði
engan betristað tilað hviia á
en farangurskerru fyrir framan
hótel i New Orleans á meðan
hún beið eftir að séryrði bjarg-
að burt frá New Orieans.
og það er einmitt það sem ég býst
við,“ sagði hún.
Bush þorði ekki til New Or-
leans
Enn á eftir að bjarga um 300 þús-
und mánns frá hörmungarsvæðun-
um. Trukkar em byrjaðir að færa
birgðir til svæðisins. Sömuleiðis
flugvélar. Bush Bandaríkjaforseti fór
í skoðunarferð um svæðið í gær en
hætti sér ekki nálægt New Orleans.
Hann viðurkenndi að viðbrögð yfir-
valda væm „ekki ásættanleg".
haiidor@dv.is
Hryðjuverkamaður í London skýrir málstað sinn á myndbandi
Fjölskyldufaðir sem vann með fötluðum
Gauloisesfrá
Frakklandi
Frakkar urðu ævareiðir
þegar sígarettuframleiðandi
Gauloises,
Altadis, til-
kynnti fyrir
skömmu að
hætta ætti
framleiðslu
sígarettanna í
Frakklandi.
Spánverjar
keyptusig
nýlega inn í
fyrirtækið og
ákveðið var
að flytja ffamleiðslu hinna
frægu, dökku sígaretta til
Spánar eftir aldaianga fram-
leiðslu í Lille. Þetta finnst
Frökkum hneisa.
„Ég hef, likt og þúsundir annarra,
yfirgefið allt sem ég trúði á. Það sem
drífur mig áfram er ekki að finna í
þessum efnislega heimi. Trú mín er
íslam," sagði Mohammad Sidique
Khan, sem stóð að sjálfs-
morðsárásinni á Edgware-lestar-
stöðinni í Lundúnum 7. júlí. Al-
Jazeera fréttastöðin birti myndband
af honum að útskýra gjörðir sínar í
fyrradag. Þar talaði einnig hægri
hönd Osama Bin Laden hjá al-Qa-
eda, Ayman al-Zawahiri, og lýsti
hann yfir ábyrgð á sprengingunum.
„Hetjur dagsins í dag eru sjeik
Osama bin Laden, Ayman al-Zawa-
hiri, Abu Musab Zarqawi og þeir
bræður og systur sem berjast," sagði
JQian. „Píslarvotturinn Mohammad
Sidique. Einn riddaranna úr hinum
blessuðu árásum á Lundúnir," stóð
á spólunni sem barst Al-Jazeera.
Khan bjó nálægt Leeds í Norður-
Ayman al-Zawahiri Næstráðandi ial-Qa-
eda. Það hlakkaði í honum þegar hann lýsti
yfír ábyrgð á sprengingunum i Lundúnir.
Englandi. Var kennari sem vann
með fötluðum og ungum innflytj-
endabörnum. Hann var einnig giftur
og átti unga dóttur. Fjölskylda hans
hefur sent fjölskyldum þeirra 55 sem
Mohammad Sidique Vargifturog átti
unga dóttur. Fjölskylda hans segir hann
heilaþveginn.
létust í árás hans og félaga hans
samúðarkveðjur. Sagði að hann væri
heilaþveginn og þetta sýndi ekki
hans sanna eðli.
Hótaði
sjálfsmorði
Belgísk móðir klifraði upp á
svalir í réttarsal í Namur í Belgíu
í gær og hótaði að fremja sjálfs-
morð. Konan er móðir hinnar
16 ára gömlu Tiffany Warnotte
sem hvarf í ágúst í fyrra. Tiffany
fannst í Frakklandi í gær. Þegar
Tiffany neitaði síðan að hitta
móður sína í gær greip hún til
þessa ráðs.