Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.2005, Side 24
24 LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 2005
Helgarblað UV
Námsfús lítil hnáta
„Ég væri auðvitað til í að vera
meira með dóttur minni, henni
Kolfinnu Ýr sem er 4 ára. En þetta
er bara eins og það er. Það er alltaf
erfltt að kveðja barnið sitt á mánu-
dagsmorgni," segir Úlfar Hauksson
háskólakennari og helgarpabbi.
„Armars er þetta voða frjálslegt hjá
mér og barnsmóður minni og er
Kolfinna því stundum hjá mér í
miðri viku. Við hittumst alltaf þegar
tækifæri gefst."
Heiisar alltaf Jóni
Sigurðssyni
Þar sem Úlfar og Kolfinna hitt-
ast ekki oft reyna þau alltaf að gera
eitthvað sniðugt saman til þess að
nýta tímann. „Við lesum heilmikið
og segjum hvort öðru sögur. Hún
segir mér oft sögur af leikskólanum
og er svo sannarlega búin að kenna
mér mikið í þeim efnum,“ segir
Úlfar og hlær. „Svo förum við oft að
skoða endurnar á Tjörninni til að
gefa þeim brauðmola. Það er fastur
liður. Þegar við röltum um miðbæ-
inn heilsar Kolfinna alltaf Jóni Sig-
urðssyni. í fyrstu skildi hún ekkert
hvað þessi karl væri að gera þarna
en ég bætti úr því. Núna er hún
með þetta allt á hreinu."
„Þegar við röltum um
miðbæinn heilsar Kol-
finna alltafJóni Sig-
urðssyni. ífyrstu
skildi hún ekkert hvað
þessi karl væri að
gera þarna en ég
bætti úr því," segir
Úlfar.
Sér heiminn með
öðrum augum
Úlfar kennir stjórnmálafræði
við Háskóla íslands á veturna en á
sumrin starfar hann sem vélstjóri á
togaranum Kaldbak. „Kolfinna og
ég kíkjum oft niður á höfn til þess
að skoða skipin. Henni finnst svo
spennandi að pabbi sinn sé á sjó og
vill vita allt um skipin. Hún er rosa-
lega dugleg að læra og er líka búin
að kenna mér heilmikið. Að sjá
hvernig hún upplifir heiminn í
kringum sig minnir mig á hvernig
það var að vera lítill. Það er yndis-
legt að sjá barnið sitt vaxa og dafna
og ég myndi alls ekki vilja missa af
þessu," tekur Úlfar fram.
iris&dv.is
i'jifar Hauksson og dóttir hans Kolfinna Yr
eru góðir vinir Kenna hvort öðru ýmislegt um
llfið og tilveruna.
Glamúr á góðni leiö
Er á réttri leið
„Það hefur lengi verið draumur
minn að opna verslun og hef ég hef
lagt mikla vinnu í hana með hjálp
góðra vina. Það er því mjög skemmti-
legt að fá þekktan tískuritara í heim-
sókn og að fá svona jákvæð viðbrögð
frá henni. Ég ætla samt ekki að lesa of
mikið úr þessu en koma Susan sýndi
mér samt að ég er á réttri leið," segir
Elva.
Hannaði fyrstu flíkina
fimm ára
Það kemur kannski ekki mikið á
óvart að Elva hafi ákveðið að taka
stefiiuna á tískuheiminn því hún
hefur verið að hanna föt eins lengi og
hún man eftir sér. Hannaði hún
meðal annars jólafötin sín þegar hún
var aðeins fimm ára. „Ég gerði þetta
mjög oft. Hanna föt sem mamma
saumaði svo handa mér. Ég hélt
þessu áfram alveg þangað til ég var
farin að geta saumað sjálf. f dag má
finna fatnað eftir Elvu í versluninni en
hún hannar undir merkinu Glamúr-
design. Það er því mjög fjölbreytt úr-
val af vörum í Glamúr því ásamt eigin
hönnun selur Elva föt frá ýmsum öðr-
um hönnuðum „Ég væri alveg til í að
fara i hönnunamám einhvem daginn
en eins og stendur er ég of upptekin af
versiuninni Glamúr. Ég tími hreinlega
ekki að sleppa af henni takinu. Það er
líka fiht að kanna hvaða undirtektir ég
fæ frá fólki varðandi mína eigin
hönnun áður en ég tek stóra skrefið
og skelli mér í nám. Ekki er það held-
ur verra að fá álit frá einhverjum sem
hefur jafn mikið vit á tísku og Susan
Cemek," segir Elva.
Elvu Dögg Árnadóttur
hefur verið að hanna
föt frá fimm ára aldri
Kom það þviekki á óvart
að hún opnaði fataversl-
unina Glamúr.
„Það kom mér auðvitað verulega
á óvart að eitt af þekktustu andlitum
tískuheimsins birtist skyndilega í
versluninni minni. Það er mikill
heiður að fá umijöllun í blaði sem er
eins útbreytt og Elle Magazine. Sér-
staklega með tilliti til þess að versl-
unin er frekar ný og hefur aðeins
verið opin í eitt ár," segir Elva Dögg
Árnadóttir eigandi tískuverslunar-
innar Glamúr. „Umfjöllunin mun
víst birtast £ októberblaði banda-
ríska Elle og bíð ég bara spennt eftir
útkomunni."
Mikil viðurkenning að
fá umfjöllun
Að sögn Elvu var það Susan
Cernek sem er þekktur fréttaritari
tískublaðsins víðfræga sem tók við-
talið við Elvu. Er Susan þekkt nafn í
tískuheiminum enda er hún að jafn-
aði viðstödd á öllum helstu tískuvið-
burðum heimsins. „Hún hlýtur að
hafa vit á tísku fýrst hún hefur náð
svona langt í þessum bransa. Þetta
er því mikil viðurkenning og hrós
fyrir verslunina að hún skyldi hafa
veitt henni athygli," tekur Elva fram.
Hissa á öllu umstanginu
Susan var stödd hér á landi vegna
tískuvikunnar sem haldin var í
byrjun vors en að sögn Elvu vildi
hún einnig athuga hvort það væru
einhverjar sniðugar verslanir á land-
inu. „Hún kflcti inn og leist greini-
lega svona vel á úrvalið. Alla vega
keypti hún heilmikið af fötum hjá
mér en það er góðs vití. Ég var auð-
vitað frekar hissa á öllu umstanginu
enda ekki á hverjum degi sem eitt-
hvað þessu líkt gerist. En það má
samt vel vera að Susan muni fjalla
um einhverjar fleiri íslenskar versl-
Elva hannar fatnað
undir merkinu Glam-
úr-design. Geeti hugsað
sér að fara i hönnunar-
nám seinna meir.
. •
anir fyrst hún var að svipast um.
Annars veit ég það ekki. Hvað svo
sem því líður er ég mjög sátt við að
verslunin mín hafi verið tekin fyrir,"
tekur Elva fram. Það er erfitt að segja
til um hvort umfjöllunin muni
breyta einhverju fýrir reksturinn
sjálfan en það er aldrei að vita hvað
gerist. Að minnsta kosti er nokkuð
ljóst að hér er um mjög góða auglýs-
ingu að ræða.
í október mun birtast
grein um verslunina
Glamúr í tískublaðinu
Elle Mikil viðurkenning að
fá umfjöllun íblaðinu.
Susan Cernek er
þekkt í tískuheimin-
um Tók viðtalið við Elvu
Dögg fyrir Elle.
iris@dv.is