Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.2005, Page 27
DV Helgarblað
LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 2005 27
Fatastíll fólks er til allrar hamingju fjölbreytilegur. Oftar en ekki má því sjá ólíkar týpur spígspora um
bæinn enda eru tískustraumar margir og misjafnir. Það er því forvitnilegt að fá að vita hvað sex
tískudrottningar hafa að segja um sinn eigin stíl. Allar hafa þær ólíkan smekk og fylgja sínum eigin
hugmyndum um tísku.
Það er eiginlega ekkert ákveðið sem einkennir
fatasmekk Sóleyjar Kaidal háskólanema. Segist hún
blanda öllu saman til að sjá hver útkoman verður. „Ég
versla frekar lítið. Það er aðallega þegar ég fer til út-
landa að ég tek út kaupæðið sem ég er búin að byrgja
inni hér heima. Enda miklu meira úrval úti.“
Röndótta vestið af pabba flott
Er Sóley líka dugleg við að nýta það sem til er og seg-
ir það mun meiri kúnst að finna eitthvað nothæft í kjall-
aranum en að eyða morðfjár í nýjustu tísku. „Það er
ekkert mál að vera alltaf flottur ef maður kaupir alltaf
það nýjasta. Ég er bara ekki tilbúin að eyða öllum mín-
um peningum í lufsur á okurverði. Þess vegna nota ég
mikið af gömlum fötum af mömmu og systur minni. Ég
fann meira að segja gamalt röndótt vesti af pabba um
daginn og kemur það bara ágætlega út. Ætli ég noti það
ekki næstu vikurnar þangað til ég fæ leið á því,“ segir
Sóley og hlær.
Fötin fara eftir skapinu
„Þegar að þvf kemur að ég
kaupi föt finnst mér rosalega
gaman að kaupa mér kjóla.
Það er bara verst hvað ég er
mikil kuldaskræfa og á því erfitt
með að vera mikið í kjólum á
veturna," tekur Sóley fram.
Vinkonur hennar halda því
statt og stöðugt firam að
hún eigi yfirdrifið nóg af
fötum en Sóley er ekki
alltaf á sama máli.
„Stundum hugsa ég með
mér að nú sé þetta orðið
gott því fataskápurinn er
löngu orðinn fullur. En
aðra daga finn ég ekkert
sem mig langar að vera í.
Ég býst við að þetta fari
mikið eftir því hvernig
skapi ég er í hverju sinni,"
segir Sóley.
Hópþrýstingurinn
virkað einu sinni
„Eina skiptið sem ég hef
fallið fyrir hópþrýstingi var
þegar ég var 14 ára. Þá tók ég
upp á því að kaupa alveg
hryllilega Ijóta Buffalo-skó af
því að allir voru í þeim," rifjar
Sóley upp. „Mér fannst ein-
hverra hluta vegna að ég yrði að
vera með. Það skrýtna var samt
að mér fannst þeir ljótir frá fyrsta
degi. Ég skil ekki hvað kom yfir
mig. Tók ég þá ákvörðun að elta
ekki fjöldann heldur klæðast bara
því sem mér finnst flott.“
Sóley klæöist oft
notuðum fötum
Finnur flott föt I
gömlum hirslum.
,Ætli minn stíll sé ekki frekar einfaldur, kiassískur en
flottur. Ég vil láta fötin njóta sín frekar en að hlaða á
þau einhverju glingri," segir Ardís Ólöf Víkingsdóttir
söngkona. „Hversdagslega geng ég mikið í gallabuxum
og er þá í einhverju skemmtilegum við, eins og bol eða
peysu. Það frábæra við gallabuxur er nefnilega að það
þarf ekki meira en nýjan hálsklút eða topp og þá er stíll-
inn orðinn allt annar. Ef ég vil vera í fi'nni kantinum kíki
ég við í Karen Millen enda má þar finna ógrynni af fal-
legum toppum. Þá er maður orðinn nógu fínn til að láta
sjá sig í veislu."
Rauða flauelsdragtin í uppáhaldi
„Ég er líka rosalega mikil jakkakona. Ég á fullt af
jökkum enda er rosalega gott að eiga eitthvað til skipt-
anna. Ég á líka nokkrar dragtir en ég nota jakkana sem
þeim fylgja oft staka með gallabuxum. Ég á til dæmis
rauða flauelsdragt og held ég mikið upp
á hana. Hún er mjög spes og klæðist
ég henni við sérstök tilefhi," tekur
Ardís fram.
Gæði betri en magn
Þegar Ardís velur sér föt reynir
hún að velja eitthvað sem fer henni
firekar en að vera of fljót á sér
og kaupa eitthvað beint af
gínunni. „Mér finnst skipta
miklu máli að sniðið sé
gott. Ef mikið er lagt upp
úr sniðinu er flfldn
kannski dýrari. En þar
sem ég kaupi sjaldan föt
leyfi ég mér að eyða
smá þegar ég finn eitt-
hvað sem mér finnst
virkilega fallegt," segir
Ardís.
Bleiki liturinn
allsráðandi
„Ég verð að viður-
kenna að ég er mjög
veik fýrir bleikum föt-
um enda er bleikur
uppáhaldsliturinn minn.
Ég get ekki verið mikið í
svörtu því þá finnst mér ég
vera of drungaleg," útskýrir
Ardís. „Vegna þessa á ég
mikið af bleikum fötum.
Bleika boli, peysur og fleira.
Mínir helstu veikleikar
varðandi föt eru að ég held
kjólar. Ég má til dæmis
ekki sjá flottan kjól því ég
bara verð að kaupa hann
og auðvitað á ég því þrjá
kjóla í bleikum lit. Annað
væri nú ekki hægt," segir
Ardís og hlær.
Ardís er mikið fyrir
dragtarjakka
Bleiki liturinn er
vinsælastur.
„Þægileg föt eru mitt uppáhald. Ég er til dæmis mik-
ið fyrir bómullarboli. Ekkert spandex fyrir mig, takk,"
segir Guðrún Heiður ísaksdóttir, bassaleikari í
Mammút. „Það má segja að ég kaupi mest af mínum
fötum í Illgresi og Kolaportinu en ég hef samt mest
gaman af því að róta í gömlum hirslum til að sjá hvort
ég finni ekki eitthvað spennandi. Ég geng því í svolítið
óvenjulegum fötum. En það fer samt allt eftir því
hvernig skapi ég er í því stundum vill maður bara
hverfa í fjöldann og þá er ekki sniðugt að stinga of mik-
ið í stúf."
Guðrún klæðist þvf
sem er þægilegast
Hún er ekki spennt fyrir
efnislitlum fötum.
Leiðinlegt að vera klædd eins og allir hinir
Þegar Guðrún er stödd erlendis skellir hún sér á
götumarkaðina því þar má oftar en ekki finna eitthvað
sérstætt. „Það er mikilvægt í mínum huga að vera ekki
klædd eins og allir hinir. Það er
langskemmtilegast að eiga
einhverja flík sem þú veist að
enginn annar á. Þá getur
maður labbað rólegur niður
Laugaveginn án þess að eiga
það á hættu að mæta einhverj
um sem er nákvæmlega
eins klæddur og maður
sjálfur," útskýrir Guð-
rún.
Efnislítil föt eru
ósmekkleg
„Ef það er eitthvað
sem ég gæti aldrei
hugsað mér að ganga í
þá eru það efnislítil
föt. Að vísu getur ver-
ið flott að sjá konu í
efnislitlum kjól ef
hún gerir það á rétt-
an máta, við réttar
aðstæður. En yfir-
leitt er þetta besta
leiðin til að vera
ósmekklegur. Ég
get ekki ímyndað
mér að ég muni
nokkurn tímann
kflcja á bæjarröltið
flegnum bol og allt of
stuttu pilsi," segir Guð
rún og skellir upp úr.
iris@dv.is