Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.2005, Side 34
34 LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 2005
Helgarblað DV
eg iaroa mig á daginn nota
ég oftast liti sem eru sem eðli-
legastir Þaö er frekar að ég leiki
mér meö sterkari liti þegar kvölda
tekur," segir Tinna Marlna.
s/ity/'fíoiuitiit/tct
Kanebo-meik
„Þetta er
besta meik sem
ég hef prófað
og ég er búin
að prófa heil-
an helling.
Ég er sér-
staklega hrifin af meikinu því það
er mjög fljótlegt og auðvelt að nota
það.“
Augnskuggi frá No7
„Ég á þennan
augnskugga í
ljósbrúnum lit
sem er mjög
eðlilegur. Ég er
ekki mikið fyrir
áberandi förðun
að degi til. Það er
þá helst þegar
myrkrið skellur á að ég er
djarfari í litavali."
Hypnose frá Lancöme
„Maskarinn frá Lancöme er
óneitanlega sá besti sem ég hef
pófað, ekki spurning."
Varablýantur frá No7
„Enn og aftur verður ljós-
brúni liturin fyrir valinu eins og
með augnskuggann. Ég er mik-
ið fyrir brúnu litina og sér-
staklega til að
nota sem dag-
förðun."
Augabrúnalitur
frá The BodyShop
„Augabrúnimar draga
fram augun. Það er því
alltaf gaman að skerpa þær
aðeins og dekkja ef maður
vill vera svolítið ffnn."
Tinna Marína var eins og margir muna f tfu manna úrslitum i fyrstu umferð
Idol Stjörnuleitar. Stóð hún sig þar með prýði og fetaði sín fyrstu spor í tón-
listarbransanum eftir keppnina. Þó svo að ekki hafi heyrst til Tinnu I nokkurn
tlma hefur hún ekki sagt skilið við tónlistina. Stefnir hún á að hefja upp raust
sfna á ný f vetur með hljómsveit sér til aðstoðar og verður spennandi að sjá
hvað gerist i þeim efnum. „Ég hef ekki verið mjög dugleg við að syngja f sum-
ar þvi ég hef staðið í flutningum. Ég og maðurinn minn erum að byggja okk-
ur hús svo það hefur verið nóg að gera. Ég hlakka samt til að einbeita mér að
músíkinni {haust enda þykir mér fátt skemmtilegra," segir Tinna.
Athafnakonan
Margrét Arnadóttir er einn af þekktustu
hönnuðum landsins en hún hefur framleitt fatnað undir
merkinu M-Design um árabil. Hefur hún hannað allt sitt líf
og er búin að starfa í þessum geira í tæpa hálfa öld. Er ís-
lenska ullin gull í hennar augun sem býður upp á óendanlega
möguleika og framleiðir hún því eingöngu fatnað úr ull. Segir
hún að ekkert annað hafi komið til greina sem ævistarf enda
er hönnun líf hennar og yndi.
msitHQt,
■<
£ 'mmm
Margrét Arnadóttir
heillaðist af ís-
lensku ullinni Hefur
hún hannað vörur úr
henni um árabilsem
eru alltafjafn vinsælar.
i
„Það þýðir ekkert að
slaka á. Efég tek ein-
hvern tímann upp á
því að hætta, þá er ég
fyrst orðin gömuL
fffllft,I» WP'JJL. 1 *»"’
!■ ■tr—’TJg— m
m I
íisSK
ífáS&mexisMVimaxt- e- -
^CÁfAXS;
„Ég er búin að starfa í þessum
bransa f 45 ár en ég hef samt verið að
hanna allt mitt líf. Frá því að ég var
lítil stelpa," segir Margrét Ámadótt-
ir, hönnuður og eigandi M-Design
fatalínunnar. „Stundum segi ég að
hugmyndin sé tíu prósent en að
nenna því að framkvæma hana sé
níutíu prósent. Sem betur fer hef ég
það mikinn áhuga á hönnun að ég
hef þolinmæði til að framkvæma
þær hugmyndir sem ég fæ.“
Gat ekki hætt í ullinni
Þegar Margrét var ung fór ekki á
milli mála hvar áhuginn lá og þegar
bræður hennar sáu hvað í henni bjó
aðstoðuðu þeir hana við að setja á
fót fyrirtæki. „Fyrirtækið hét Sport-
ver og ég framleiddi íþróttafatnað og
tískuvörur. Ég var með 35 manns í
vinnu og við vorum að sauma bún-
inga á heilu fótboltaliðin og meira
til," rifjar Margrét upp.
Þegar viðskiptin voru komin vel á
veg fór Margrét að taka
eftir ullinni og uppgvötvaði þá að
hægt væri að nýta hana á mun frum-
legri hátt en tíðkast hafði. „Ég fór að
sjá ullina í nýju ljósi og sá ekkert
annað en kindur," segir Margrét og
hlær. „Þær voru svo fallegar og heill-
uðu mig gjörsamlega. Þá var ekki
aftur snúið og hef ég hannað fatnað
úr ull alla tíð síðan."
Óhefðbundin hönnun
„Það er auðvitað mikil sam-
keppni á hönnunarmarkaðnum hér
á Islandi enda er hann mjög lítill en
ég hef samt verið heppin. Ég hef líka
verið að gera eitthvað sem er ólíkt
hefðbundinni hönnun," útskýrir
Margrét. Maður veltir gjarnan fýrir
sér hvort það sé ekki stundum erfitt
að vera frumlegur eftir 45 ár og hvort
hún fái þá stundum innblástur ann-
ars staðar frá. „Ég hef aldrei apað
eftir öðrum en ég hef samt orðið vör
við að fólk hefur líkt eftir minni
hönnun. En það verður samt aldrei
eins ef það er ekki gert úr
ull. Fatnaðurinn breytist algjörlega
þegar ullin er notuð. En svo getur
líka vel verið að einhver hönnun sé
lík minni þó það sé ekki endilega eft-
irlíking."
Aldurinn skiptir engu
í dag má finna vörur Margrétar í
öllum helstu minjagripaverslunum
landsins og er áhuginn fyrir gömlu
góðu ullinni alltaf jafn mikill. „Ég hef
verið mjög heppin að gefast kostur á
að starfa við þetta enda er hönnun
líf mitt og yndi. Þetta er það sem mig
hefur alltaf langað að gera," tekur
Margrét fram en hún verður 77 ára
gömul á árinu og er alltaf jafn hress.
„Það þýðir ekkert að slaka á. Ef ég
tek einhvem tímann upp á því að
hætta, þá er ég fyrst orðin gömul,"
segir Margrét og skellir upp úr. „Satt
að segja finn ég ekkert íýrir aldrin-
um í minni vinnu. Ætli það sé ekki
vegna þess að mér finnst þetta
svona skemmtilegt."
iris@dv.is
ÁSTIN ER FITANDI
Nýjar rannsóknir hafa sýnt
fram á að þegar þegar fólk hefur
nýtt samband aukast líkurnar á að
- það bæti á sig nokkrum kílóum.
Til dæmis er fýrsta ár hjónabands
sérstaklega hættulegur tími. Þegar
við höfum fundið okkar maka
minnkar hvötin til að halda sér í
góðu formi. Þessi sífellda pressa
stefnumótamarkaðsins að líta vel
út öllum stundum til að standast
samkeppnina er ekki lengur til
staðar.
Það er þó ýmislegt annað
sem hefur áhrif á þyngdina
þegar fólk er í sambandi. Það
er t.d. algengt að fólk breyti
venjum sínum. Þeir sem eru
á lausu hegða sér á ákveðinn
hátt og hafa ýmsar venjur
varðandi mataræði og annað.
Þegar ástin knýr dyra er
hætta á að þessar venjur
breytist. Það er að sjálfsögðu
gott að ástin lætur okkur
líða vel, sama af hvaða
stærð eða gerð við erum.
En það er aldrei gott að
gefa heilsusamlegt líf-
erni upp á bátinn. Til
dæmis getur róman-
tískur kvöldverður ver-
ið fitandi. Vegleg máltíð
seint að kvöldi með
vínglasi og sykruðum
eftirrétti er ekki beint
megrandi. Vel heppn-
að kvöld á milli elsk-
enda gæti að sjálf-
sögðu endað með smá
bólæfingum. En það er samt ekki
nóg til að brenna kaloríubomb-
unni sem var innbyrt fýrr um
kvöldið. Rólegu helgarnar þegar
sofið er fram eftir í fangi elskhug-
ans í stað þess að skella sér út að
skokka er heldur ekki besta leiðin
til að halda sér f formi. Það eru
samt sem áður ýmsar aðferðir til
að halda viðhalda heilsusamlegu
líferni. Til dæmis er sniðugt að fá
makann til að taka þátt í heilsu-
átaki. Kannanir hafa sýnt fram á
að pör sem þjálfa sig saman ná
mun betri árangri en þeir sem æfa
án félaga.