Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.2005, Page 36
36 LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 2005
Helgarblað DV
Sigríður Arnardóttir, eða Sirrý eins og hún er kölluð, er mikið fyrir hollustuna og notar því ýmsar að-
ferðir til að stuðla að heilsusamlegu líferni. Segist hún oft snæða úti í garði á sumrin enda sé meira
spennandi að borða góðan mat með náttúruna sér við hlið.
Sirrý borðar oft úti í
garði á sumrin Segir hún
að það sé meira spennandi
að boða hollan mat með
náttúruna sér við hlið.
„Eldhúsið mitt er eiginlega úti í garði á
sumrin. Ég borða morgunmat úti, hádegis-
mat og stundum kvöldverð. Það er svo
gaman að þessu að ég er hálf spæld að
sumarið sé að verða búið," segir Sigríður
Amadóttir sjónvarpskona, eða Sirrý eins og
hún er gjarnan kölluð. „Garðurinn er líka
hluti af eldhúsinu mínu því þar rækta ég
rucola-salat, steinselju, basilikku og fleiri
matjurtir." Sirrý leggur mikla áherslu á
hollt mataræði og segir hún það vera hvetj-
andi að borða eitthvað ferskt og gott þegar
hún snæði úti í garði með náttúruna sér við
hlið.
Sirrý segir að það sé snið-
ugt að nýta sumrin til að
borða utandyra
Finnst henni þó leiðinlegt
hvaö sumrin eru stutt.
Blandarinn ómissandi
„Það sem ég gæti alls ekki verið án í eld-
húsinu er blandarinn minn því ég þjösnast
á honum villt og galið. Ég er ekki tækjaóð
og forðast því óþarflega flókinn tækjabún-
að því það er bara vesen. Þessi einfaldi
blandari gefur mér líka allt sem ég þarf,"
tekur Sirrý fram. „Blandarinn gerir það að
verkum að ég borða meira af ávöxtum og
grænmeti. Það er svo auðvelt að henda
saman því sem maður finnur í ísskápnum.
Það má eiginlega segja að drykkurinn mót-
ist af því sem ég finn í ávaxtaskúffunnni. Ég
blanda hráefninu saman við kfaka og hræri
saman. Þetta er fínasta máltíð. Það em allir
mjög hrifnir af þessu heima og ég þarf að
hafa mig alla við við að kaupa ávexti fyrir
þessa fjölskyldu," segir Sirrý og hlær.
Nýtir það sem náttúran býður upp
d
Það líður ekki það sumar að Sirrý fari
ekki í berjamó og þykir henni tilvalið að
skella blábeijunum út í blandarann. „Ég
verð að vísu að viðurkenna að ég er ekki
það dugleg að fara berjamó en það er samt
nauðsynfegt að fara allavega einu sinni á
hverju hausti. Ég hef tröllatrú á því að það
sem vex í umhverfi okkar sé það sem við
þurfum á að halda. Það er engin tilviljun að
bláberin koma á haustin. Við þurfum ork-
una til þess að byggja okkur upp fyrir vetur-
inn. Það er því ekki vitlaust að nýta það
sem náttúran færir okkur hverju sinni,"
segir Sirrý.
Sumarið er allt of stutt
Á sumrin grillar Sirrý töluvert í garðin-
um eins og silung og lax enda er það uppá-
haldsmaturinn hennar. Það fer að vísu
mikið eftir árstíðum hvaða mat hún borðar
mest af. „Á veturna borðum við maðurinn
minn til dæmis mikið af ítölskum mat. Það
er því frekar árstíðabundið hvað verður fyr-
ir valinu. En það er mín skoðun að sumrin
eigi að nýta til að snæða úti í kvöldsólinni.
Það er bara verst hvað sumarið er stutt því
ég myndi vilja borða úti í garði allan ársins
hring. Ég get bara ekki ímyndað mér að ég
muni sitja í makindum úti í garði í skafli og
hríð," segir Sirrý og skellir upp úr.
olandarinn er vinsælasta
tækið í elhúsinu Sirrýhrærir
saman ávaxta-og grænmetis-
drykki fyriralla fjölsylduna.
Fjölskylda Sirrýjar borðar
mikið af ávöxtum Sirrý
þarfþviaö hafa sig alla við
viö að kaupa ávexti fyrir
heimilið.
25-70% afsláttur