Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq

Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.2005, Qupperneq 44

Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.2005, Qupperneq 44
44 LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 2005 Sport DV læja, núna er enski boltinn kominn í smápásu og landsleik- irnir taka við. Þá getur maður skellt sér á Laugardagsvöllinn og hvíslað: „ísland (klapp klapp klapp) ísland (klapp klapp klápp)“. Síðan eru allir að velta því fyrir sér af hveiju náist ekki almennileg stemmning á lands- leikjum. Eru menn eitthvað þroskaheftir? Það hljóta allir að sjá það sem ekki eru með frómas í hausnum að ástæðan er einfald- lega sú að það er ekki seldur bjór á landsleikjum hérna. Vagínuland! Þetta pæjumótshugarfar er alveg að gera mig geðveikan. Egg- haus Magnússon þarf að fara að láta vaxa á sig pung. Þegar menn fara á völlinn þá vilja þeir fá sér einn kaldan með leiknum, það er bara ekkert flóknara en það. Getið þið nefnt mér eitt annað land en þetta sker sem við búum á sem bannar bjór á landsleikjum? Fyrir utan Afghanistan, því að þar er áfengi bannað bara almennt. Nei, þið getið það ekki því að af öllum þeim 205 löndum sem eru á styrk- leikalista FIFA þá er ísland eina landið sem leyfir ekki bjór á leikj- um. Hvernig væri þá bara að fara að selja dömubindi eða legganga- hreinsi í staðinn? Bjór á leikjum! Og síðan eru leikir í Landsbankadeildinni alltaf hafðir á sunnudögum og mánudögum svo að menn geti alveg örugglega ekki fengið sér einn kaldan. Er það mér að kenna að það er búið að þurrka Eggert Magnússon? Þarf það að bitna á mér og öllum þeim sem hafa gaman af fótbolta hérna á klakanum? Menn myndu kannski þora að segja eitthvað á leikjum ef þeir væm búnir með einn eða tvo öllara. Ég er ekkert að tala um að menn fari að drulla það mikið á sig að þeir drepist uppí stúku og fari að tappa af inná sal- ernum. Það vita það allir að menn em háværari eftir nokkra ískalda bjóra. Nennir einhver að stafa það fyrir kexkóngnum?! Hvernig væri að losa aðeins um bindishnútinn Eggert og opna augun? Það er 2005, ekki 1968! Sjáið bara Hafnar- fjaröar-Mafíuna, stuðningsmenn FH, þeir hafa hægt sér á þessa reglu og em hauslausir á öllum leikjum, enda lang- bestu stuðnings- mennimir! Egghaus Magg! Opnaðu aug- un! Kapísh? Nancy búin að fá nóg af Svíanum Sefur ekki oftar hjá mér ítalski lögfræðingurinn Nancy Dell'Olio er búin að fá nóg af kvensama Svíanum, Sven- Göran Eriksson, og ætlar sér að „dömpa" honum áður en hann dömpar henni. Nancy heldur að Svenni ætli að sparka henni eftir HM næsta sumar og er hún því víst byrjuð að pakka. Svenni reyndi að skríða upp í hjá lausláta ritaranum Fariu Alam á dögunum og það var síðasta hálmstráið hjá Nancy sem hefur beðið Svenna um að giftast sér fjórum sinnum en Svenni hefur alltaf neitað. Nancy hefur sýnt Svíanum einstaka þolinmæði og skilning enda hefur sá sænski verið með buxurnar á hælunum í öðm hverju horni síðustu mánuði en þrátt fyrir allan þennan skilning vill Svenni ekki giftast henni. Það eina sem hefur stöðvað hana frá því að yfirgefa Svenna eru peningar enda dælir hann í hana gjöfum og hún fær þar að auki 30 þúsund pund á mánuði tÚ að leika sér með. iimmæii \ v'kunnari „Ég er búinn að taka mynd af sjónvarpinu þar sem nafnið mitt er fyrir ofan nafn Thierry Henry á lista marka- hæstu manna í ensku úrvalseildinni. Myndin er „screensaver" á tölvunni minni." Þetta sagði fyrrum múrarinn Geoff Horsfield, leikmaöur WBA. Himininn er blár, vatnið er blautt og Chelsea vinnur. Styles hélt áfram að leggja Spurs í einelti og þorði ekki að reka Essien útaf. „Kannski hefði annar dómari bara gefið Mido gult," sagði Jol - ekki Styles. Duff skoraði með hendinni. Virkilegur klassi yfir meistumnum í byrjun tímabilsins, finnst ykkur ekki? Það er ekki hægt annað en að elska Pearce. Meira að segja Andy Cole blómstrar hjá honum. Perr- inn brosti út að eyrum þegar Pompey komst yfir, en City var fljótt að fræsa það af honum - Vá, hvað Portsmouth er í duftinu! Baros segir að leikstíll O'Leary henti sér betur og það þarf engan Einstein til að sjá að maður skorar ef maður fer yfir miðju. Heskey setti tvö og leit vel út, en hann skorar ekki í næstu 17 leikjum. Það er loforð. Hvað er málið með Horsfield? Og ég hélt að Kevin Campell hefði verið útbmnninn árið 1996!!! Af hverju er Mick McCarthy alltaf að hlæja? Jú, af því hann ætlar að NJÓTA tímabilsins. Úff! Markið hjá Nolan var ljótasta mark ársins - en hey, þetta var Bolton. Meira að segja Storka- hreiðrið skoraði. Það er ekki nema von að McClaren tali um að taka við landsliðinu. Þú veist að liðið þitt er í duftinu ef Chris Perry skorar á þig. Rooney var eins og tjúnaður Volvo Lapplander á móti Newcastle og Boumsong á eftir að finna^t hangandi í gálga á næstu döguin. Velkominn aftur, Owen. Hvað ætli hann hafi hugsað þegar hann sá móttökurnar á St James' Park? Ég er farinn eins og... Líf- trygging Boumsong. Enski boltinn út, landsleikir inn skyggnist á bakvið tjoldin í enska boltanum lEI-Hadji Diouf Styður glæpagengi Senegalski raðhrækillinn El-Hadji Diouf gerði allt vitlaust á dögunum þegar hann birtist í bol sem eingöngu aðilar sem tilheyra glæpagengjum klæðast. Bolurinn er í hermannalitum með mynd af byssu framan á. Til að gera illt verra mætti Diouf á völlinn í bolnum og áhorfendur trúðu vart sínum eigin augum. Ekki vilja allir dæma Diouf harkalega fyrir athæfið enda hefur hann ekki virst vera mjög gáfaður greyið og vilja sumir meina að hann sé hreinlega svo heimskur að hann hafi ekki fattað hvað hann var að gera. Diouf er annars helst þekktur fyrir að hrækja á andstæðinga sinna en hrákarnir hans voru orðnir verulegt vandamál í fyrra. El-Hadji Diouf Kann að halda uppi stemningu. Norður-írsku landsliðsmennirnir Jeff Whitley og Phil Mulryne hafa báðir verið sendir heim frá landsliðinu eftir að þeir fóru á heljarinnar fyllerí á meðan félagar þeirra svitnuðu á æfingu. ^ Andy Cole er nískupiikl Þótt framheijinn Andy Cole sé millj ónamæringur þá hagar hann sér enn eins og hann eigi ekki bót fyrir boruna á sér. Cole stökk út í bæ um daginn þegar hann heyrði um fisk á niðurgreiddu verði. Hann var ekki sá eini sem heyrði þá auglýsinguþvíum 300 manns mættu á svæðið. Aumingja Cole kom aðeins of otínt því fiskurinn var uppseldur þegarþaðkom loks að honum í röðinni. Hann varð því að gera sér að góðu að greiða fullt *2£jf' verð fyrir ýsuflakið. Þeir félagar eru þekktir vandræðaseggir og Whitley var á sínum tíma rekinn frá Man. City vegna agavandamála. Mulryne var eitt sinn á mála hjá Man. Utd en þótti ekki hafa það sem til þurfti og hefur nákvæmlega ekkert unnið sér til frægðar síðan. Þeir félagar byrjuðu að „búsa" á flugvellinum í Cardiff á þriðjudag þegar fluginu þeirra til Belfast var seinkað. „Sláum þessu bara upp kæruleysi," á Mulryne að hafa sagt við Whitley. Þegar þeir lentu í Belfast var þegar ein æfing búin. í stað þess að koma sér fyrir á hótelinu köstuðu þeir töskunum á rúmið, skelltu sér í bæinn og héldu áfram að djúsa og djamma enda var dagurinn rétt að byrja. Þar af leiðandi misstu þeir af fundi um kvöldið en þeir skiluðu sér ekki upp á hótel fyrr en klukkan 4 um nóttina - sótölvaðir. Þeir voru reknir úr hópnum strax morguninn eftir. „Menn verða að virða agareglur og við getum ekki leyft mönnum að komast upp með svona hegðun," sagði Sanchez landsliðsþjálfari. „Það er er svekkjandi að missa þá úr hópnum en það eru takmörk fyrir því hvað menn geta leyft sér." Þeir félagar sendu Sanchez SMS daginn eftir þar sem þeir báðust afsökunar á hegðun sinni. Sanchez las SMSið síðan upp fyrir hópinn í heild sinni. -« Bellamy kærður Verktaki nokkur hefur kært sóknarmanninn skapheita, Craig Bellamy, þar sem hann segir Bellamy hafa svikið samninga. Bellamy fékk verktakann til þess að breyta viliunni sinni svo hún myndi líkjast húsinu sem var svo áberandi í A1 Pacino-myndinni Scarface sem er uppáhaldsmynd Bellamys. Verktakinn segist hafa samið við Bellamy um að gera húsið upp fyrir 300 þúsund pund en heldur því fram að stjaman hafi snuðað hann Um 100 þúsund og aðeins greitt 200 þúsund pund. BOLTINN EFTIRVINNU Lawrie Sanchez, landsliðsþjálfari Norður-írlands, er ekki öfundsverður af hlutverki sínu enda virðast leikmenn hans vera agalausir með öllu. Slepptu ælingu íórn á fyllerí *
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.