Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.2005, Blaðsíða 55
Menning J3V
*
LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 2005 54
Þröng sýn vinnur til verðlauna í Karlovy Vary og Noregi
llraunamynd gengnr vel
íslenska tilraunahreyfimyndin
Þröng sýn var frumsýnd á Kvik-
myndahátíðinni í vor og hefur verið
á ferð milli hátíða síðan. Hún fékk
um síðustu helgi fyrstu verðlaun í
flokknum Ný form á aiþjóðlegu
stúdentakvikmyndahátfðinni í
Karlovy Vary í Tékklandi sem haldin
er af Kvikmynda- og sjónvarpsskóla
Leiklistarskólans í Prag en hann er
einn elsti kvikmyndaskóli í Evrópu,
stofnaður 1947 og er hátíðin tengd
hinni þekktu kvikmyndahátíð í
Karlovy Vary.
Myndin fékk þessa umsögn:
„Tæknilega framúrskarandi og falleg
en umfram allt ótrúlega þroskað og
næmt kvikmyndaverk frá svo ung-
um manni. Þetta er leikstjóri til að
fylgjast með í framtíðinni."
Þröng sýn var líka í keppni á Nor-
rænni kvikmyndahátíð ungmenna
sem haldin var í Tromsö fyrr í sumar
og hlaut þar verðlaun fyrir bestu
kvikmyndatónlistina.
Þröng sýn er 20 mínútur á lengd
og segir sögu af ungum manni sem
hefur áhyggjur af samskiptum fólks
og stöðu mannsins í nútíma þjóðfé-
lagi. Hann ákveður að framkvæma
tilraun og fylgjast með viðbrögðum
fólks. í gegnum hana hittir Aron
áhugaverða menn.
Þröng sýn er tilraunamynd:
myndin var fyrst tekin upp á staf-
rænt video og síðan prentuð út
ramma fyrir ramma og almenningi
boðið að draga upp sína mynd eftir
þeim. Yfir 1.350 manns tóku þátt og
drógu í gegn sínar myndir sem síðan
voru skannaðar og notaðar við kvik-
un myndarinnar. Bakgrunnar og
önnur hreyfimyndagerð var unnin
af hópi ungra listamanna í Reykjavík
undir stjórn þeirra Guðmundar Arn-
ar Guðmundssonar og Þórgnýs
Thoroddsen sem eru í senn leik-
stjórar og framleiðendur Þröngrar
sýnar. Myndin er þeirra fyrsta
hreyfimynd. Tónlist myndarinnar
og hljóðvinnsla myndarinnar var í
höndum Guðmundar Steins Gunn-
arssonar, Hallvarðs Ásgeirsonar og
Páls ívans Pálssonar.
Meðframleiðandi myndarinnar
er CAOZ hf. og myndin var fram-
leidd með stuðningi frá Kvikmynda-
miðstöð íslands, Reykjavíkurborg og
átaksins Ungt fólk í Evrópu.
Dansverk Helenu Jónsdóttur í Eistlandi
Kvikmyndað í fangelsi
Helena Jónsdóttir, danshöf-
undur og leikstjóri, uppgötvaði
videóið fyrir fáeinum árum og
varð ástfangin af þessum miðli.
Hún hefur sett saman tvær mynd-
ir ásamt samstarfsmönnum og
hafa þær farið víða. Næsta verk
hennar í dansi og mynd er unnið
fyrir eistneska ríkissjónvarpið ETV
og verður myndin, sem hlotið hef-
ur heitið Another, forsýnd á
Ultima Film Festival í Ósló þann 2.
október, en frumsýnd í Eistlandi í
lok október.
í myndinni dansar Helena ann-
að aðalhlutverkið við tónlist eftir
Skúla Sverrisson, SKE, Hildi
Guðnadóttur og Birki Gíslason,
sem annast jafnframt hljóðmynd-
ar- og hljóðblöndun. Grafi'sk
vinnsla er í höndum hins kunna
hönnuðar Ámunda Sigurðssonar.
Myndin var tekin upp í al-
ræmdasta fangelsi í Eistíandi og
fjallar meðal annars um fanga og
fangaverði af gagnstæðu kyni sem
hafa þar orðið uppvísir að ýmsu á
liðnum árum.
Kynningarútgáfa myndarinnar
hefur þegar tryggt sölu hennar til
stærstu sjónvarpsstöðva í Svíþjóð,
Noregi, Danmörku, Finnlandi og
Slóveníu. Þá sýnir evrópska sjón-
varpsstöðin Arte myndina á nýju
ári, en Arte er meðframleiðandi
ásamt Mypocket Productions ehf.,
fyrirtækis Helenu og Þorvaldar
Þorsteinssonar.
Hefur Helenu verið boðið að
vinna fimm myndir í viðbót eftir
eigin handriti i samstarfi við eist-
neska sjónvarpið. Hefst sú vinna
upp úr áramótum.
afsl.
ra _
Svæðaskipt heilsudýna
Rafmagsrúm
80x200 verð frá 59,900-
160x200 verðfrá 119,800-
Tilboð W
160x200 verð£2^900- tilboö 49,740-
180x200 verð 99,906- tilboð 59,940-
Hægindastólar með
bylgjunuddi og hita fyrir
mjóbak
Verð frá31,900-
www
rumgott.is
EB