Freyr - 01.02.1953, Blaðsíða 2
Svogerslev vagnsláttuvél
Ein vél af þessari gerð var keypt til
landsins í samráði við herra skólastj.
Guðmund Jónsson, Hvanneyri, og var
vélin reynd þar seint á síðastliðnu
sumri. Telur skólastjórinn, að þessi
gerð vagnsláttuvéla sé óumdeilanlega
sú heppilegasta, sem til landsins hefir
flutzt.
Þess skal getið, að á Hvanneyri
liafa, auk Svogerslev vélarinnar,
verið reyndar tvær aðrar gerðir
vagnsláttuvéla, önnur ensk og hin
þýzk, sem vér einnig önnuðumst
innflutning á. Svogerslev
vagnsláttuvélin er með
fimm feta sláttuvélagreiðu,
og er sláttuvélin á gúmmí-
hjóluin.
Aliar nánari upplýsingar um
vél þessa verða fúslega veitt-
A komandi sumri munum vér
væntanlega geta útvegað frá
Svogerslev Maskinfabrik, í
Danmörku, nýja gerð vagn-
sláttuvélar af mjög hentugri
gerð, og sem binda má miklar
vonir við fyrir íslenzkan bú-
rekstur. Vél þessi er sérstak-
lega heppileg í sambandi við
votheysgerð.
Vélin er tengd við aflúttak
dráttarvélarinnar. Hún slær
grasið og lileður því jafnóðum
upp í vagn, sem einnig er dreg-
inn af dráttarvélinni, og er að-
ferð þessi því allt í senn, ein-
föld, ódýr og fljótvirk. — Vænt-
anlegt verð vélarinnar er ca kr.
15.000.00. — Þeiin, sem þess
óska, munum vér væntanlega
einnig geta útvegað heppilega
hevvagna.
Heildverxlnnin HEKLA li.f.
Hverfisg’ötu 10», Kevlijavík — Sími 1275 «g 1270