Freyr

Árgangur

Freyr - 01.02.1953, Síða 18

Freyr - 01.02.1953, Síða 18
50 FREYR Nýyrði Fræðíorð — Jafnframt og vísindin, tæknin og allt hiö nýja, sem hingað berst úr öllum áttum, nema hér land, stöndum vér íslendingar einatt lítt eða ekki við því búnir að hag- nýta þetta — meira að segja vantar oftast orð yfir það, svo að fyrst í stað verður að láta sér nægja þau heiti á hugmyndunum eða hlutunum, sem við þau tolla frá fram- andi stöðum og frá öðrum þjóðum. Löng- um hefir þó viðleitni verið hér í þá átt að gefa öllum hlutum íslenzk heiti, en þegar mikið berst að í einu, getur þetta orðið •— og hefir jafnan orðið — nokkrum eða mikl- um vanda bundið. Stundum hafa menn látið erlendu heitin fylgja og sett svo slaufu eða viðeigandi dúsu í endann og þannig gefið þeim ís- lenzkar beygingar. Þetta er í rauninni sízt að lasta, því að vel ættum við að mega una því að nota erlenda orðstofna alveg eins og aðrar þjóðir gera. Og víst er oft auðveldara að tileinka sér fræðin ef sama orð yfir sama hlut finnst í mörgum tungumálum. íslenzkan á hvort sem er uppruna sinn bæði hér og þar, meira að segja eru eigi fáir orðstofnar, og allmörg mannanöfn, runnir frá rótum suðrænna tungumála. Mætti því kinnroðalaust nota bæði latn- eska og gríska stofna fræðiorðanna, en gefa þeim svo íslenzkar beygingar. En svo virðist sem almenningi sé óljúft að auð- velda málið á þennan hátt. Menn hafa reynt að íslenzka orð eins og vitamín, hor- món, enzym — og svo mörg og mörg önnur •— enda þótt auðvelt sé að hnýta fallend- ingar við þau, og jafnvel þó að öðrum þjóð- um komi eigi annað til hugar en samlaga orð þessi tungum sínum. Á öllum sviðum hinna nýju fræða berst oss fjöldi orða, og er því eigi annað að gera en að nota erlendu orðin í einhverri mynd — eins og oftast hefir verið gert — eða þá að skapa ný. Og viðleitni til hins síðar- greinda hefir verið nokkur upp á síðkastið. Á sviði landbúnaðarins hefir sú viðleitni þó ekki verið skipulögð. Kennarar og ráðu- nautar hafa einatt notað hver sitt orð yf- ir sama hugtakið og þetta hefir gengið svo um áraraðir, stundum áratugi. Úr þessu hefir orðið nokkur ringulreið, en segja má, að það geri ekki mikið til í taili, þ. e. á með- an verið er að skapa nýjum orðum hefð. En hversu langan tíma þarf til þess að skapa nýyrðum hefð? Því getur víst enginn svar- að. Á sviði landbúnaðarfræða hefir skipulögð viðleitni ekki verið gerð til að safna nýjum og notuðum orðum, svo að kunnugt sé. Menn hafa ekki orðtekið bækur í því skyni né leitað samheita á vissum hlutum eða hugtökum. Viðleitni í þessa átt er nú að vakna. Félag íslenzkra búfrœðikandidata hefir skipað nefnd manna til þess að fjalla um þetta efni. Á sama tíma vill svo vel til, að fyrir tilstilli þess opinbera og með fram- kvæmd á vegum háskólans, er unnið að hliðstæðum hlutverkum fyrir aðrar fræði- greinar, og mætir búfræðin sumum þeirra, svo að hér getur hver stutt annan. Þess skal hér getið, að um sömu mundir og fyrsti oi-ðalistinn frá akri landbúnaðar- ins er sendur áleiðis til bænda, málfræð- inga og annarra, sem gera vildu tillögur til bóta, kemur út, á vegum háskólans, heil bók yfir nýyrði, sem dr. Sveinn Bergsveins- son, hefir safnað. Þess ber að geta hér, að nefnd þeirri, sem starfað hefir á vegum kandídatafélagsins, var kunnugt um undirbúning nefndrar bókar og hafði því próförk hennar til sam- anburðar og stuðnings um allmörg af orð- um þeim, sem á eftirfarandi lista eru greind. Um orðalista þennan er að segja, að hann er hér birtur á prenti í þeim tilgangi, að allir, sem vilja leggja málum þessum lið, vita um önnur orð yfir sömu hugtök, betri orö en hér eru greind, eða hafa nýyrði, sem

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.