Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2005, Síða 14
74 ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 2005
Fréttir DV
Una vill
fyrsta sætið
Una María
Óskarsdóttir,
sem nýlega lét af
formennsku
Landssambands
framsóknar-
kvenna, hefur
gefið kost á sér í
fyrsta sæti fram-
boðslista Fram-
sóknarflokksins í Kópa-
vogi. Hún mun því etja
kappi við Ómar Stefáns-
son bæjarfulltrúa en hann
hefur þegar tilkynnt að
hann gefi kost á sér í sæt-
ið. Fyrsta sæti Framsókn-
arflokksins í Kópavogi var
til margra ára skipað Sig-
urði Geirdal, sem gegndi
lengi stöðu bæjarstjóra en
hann lést sem kunnugt er
fyrir tæpu ári síðan.
Dóplistamaður
dreginn fyrir
dóm
Aðalmeðferð verður í
máli Björns Tómasar Sig-
urðssonar í Héraðsdómi
Reykjavíkur i dag. Ríkis-
saksóknari höfðaði mál á
hendur honum vegna þess
að hann birti nöfn tveggja
lögreglumanna á vefsíðu
sinni dopsalar.tk. Björn
sagði lögreglumennina tvo
leka upplýsingum til
glæpamanna. „Ég stend
við það sem ég sagði í
sambandi við þetta fólk,"
sagði Björn þegar málið
var þingfest en hann vakti
landsathygli með því að
birta nafnalista á netinu
yfir tugi manna sem hann
sagði dópsala.
Höfuðleður
á hausinn
Einkahlutafélagið
Höfuðleður er farið á
hausinn. Ekkert fékkst
upp í lýstar kröfur sem
námu 20,5 milljónum
króna. Höfuðleður var
til húsa á Hverfisgötu
64a. Ekki kemur fram í
tilkynningu skiptastjóra
þrotabúsins hvaða
starfsemi félagið hafði
með höndum.
Spá fyrir
þorrablót
Þorrabiótsnefnd 2006 á
Homafirði vill að allir geti
sótt blótið sem halda á 21.
janúar 2006, líka sjómenn.
Hélt nefndin fund íýrir lukt-
um dymm og gaf að honum
loknum út sjóveðurspá fýrir
blótskvöldið. Að því er kem-
ur frá á hornafjordur.is telja
þau Jónas Friðriksson, Fjóla
Jóhannsdóttir og Signý
Knútsdóttir að sjóveðurspá
fýrir 21. janúar 2006 verði
slæm. Hljómar hún þannig
að ölduspáin sé slæm, vind-
áttir muni leggjast í
suðaustan og vestan. Útlit
sé fyrir mikla brælu og að
bátar verði bundnir við
bryggju.
Davíð Oddsson, Björn Bjarna-
son, Jóhannes í Bónus og fleiri í
óútkomnum krimma Þráins.
Væntanlegur er sjóðheitur krimmi eftir Þráinn
Bertelsson sem ber nafnið Valkyrjur.
Þráinn er á svipuðu róli og í fyrra þegar hann sendi
frá sér Dauðans óvissa tíma. Víst er að lesendur
munu kannast við bæði persónur og atburði í bók-
inni hafi þeir fylgst með þjóðmálum undanfarið
ár. Þetta er sem sagt lykilróman þó svo að Þráni
hugnist ekki það orð.
„Já, þetta verður lykilróman að því leyti til að hann
á að ganga að þessu samfélagi en ekki að einstök-
um persónum sem í því búa,“ segir Þráinn.
Hér fara nokkur brot úr bók Þráins en við því er að
búast að nokkur styr muni standa um Valkyrjur.
Víst er að margir sem við sögu koma munu verða
ósáttir við sinn hlut. Og í síðasta brotinu, sem er
skrifað fyrir margt löngu, þykjast menn sjá að Þrá-
inn er forspár.
aBiBpfc3
1
L
1
i
Magnús Minus
„Magnús var atvinnulaus mánui
„Magnús var atvinnulaus mánuðum saman eftir gjaldþrotið
þar til hann kyngdi loks stoltinu og gerðist aðstoðarverslunar-
stjóri í Hagkaupsverslun, hjá keppinautinum sem hafði
komið honum á kné.
Niðurlægingartímabilið stóð í þrjú ár. Þá
reis Magnús upp aftur. Hann leigði húsnæði,
sem var reyndar aflóga frystihús á Seltjarnar-
nesi og flutti inn vörur frá ódýrri verslanakeðju 4
í Þýskalandi sem honum hafði tekist að fá til
samstarfs. Viðskiptahugmyndin var einföld
- að bjóða lægsta vöruverð á markaðn-
um - og hún hreif. Ári síðar opnaði
hann aðra Mínus-verslun á Akur- Jam
eyri. Það voru góðir tímar og fólk
vírtist hafa endalausa peninga J^BBmBS K, M
milli handanna og þeir ________________________Bk m
hagsýnni versluðu í Mín- jóhannes íBónus Jf
us, hinir fóru í Hagkaups- Margir munu kannastvið ■
eða Nóatúnsbúðirnar." harm sem fyrirmyndpersón- II
garða í efri og neðri gom
og gaf til kynna að hon-
um væri ekki hlátur í hug.
Björn Bjarnason Ljósterað
Þráinn styðst mjög við Björn
við persónusköpun dóms-
málaráðherrans í Valkyrjum.
Þráinn Bertelsson
Hikar ekki við að nota
samtima sinn, menn og
atburði, i krimma sína.
f I - ptj >\'V
■
A
Æ
i -i '
.
—----
A
SmS^ssmmÉ:
Daníel Daðason
dómsmálaráðherra
Á hverju kvöldi áður en hann gekk til náða uppfærði ráð-
herrann bloggsíðu sína og skrifaði af mfldlli þekkingu um bæði
alþjóðamál sem hann gjörþekkti af lestri amerískra stórblaða
og einnig eitt og annað sem honum þótti ástæða til að tjá sig
um innanlands og var hvort sem er á allra vitorði.
Ennfremur naut hann þess að skrifa stuttar ritgerðir um
söguleg efni sem flestar snerust um glæpaverk og ilisku
kommúnismans, auk þess sem Daníel hafði sérstakan áhuga á
að vara við lymskulegum áróðri í Ríkisútvarpinu, en fyrir löngu
hafði hann gert sér ljóst að sú stofhun var gróðrarstía fýrir
andfélagsleg sjónarmið og áróðursmaskína laumukommún-
ista undir yfirskini frjálslyndis og víðsýnis.
Bloggsíða ráðherrans hafði þann kost með
sér að ekkert var einfaldara en að breyta
úreltum texta á Netinu, texta sem var
barn síns tíma, og uppfæra hann í ljósi
nýrra staðreynda, þannig að sagnfræð-
ingar komandi kynslóða gætu stúder-
að hið daglega blogg ráðherrans og
undrast framsýni hans, pólitískt inn-
sæi og jafnvel spádómsgáfu.
[...]
„Hér er allt með hefðbundnum
hætti,“ sagði Daníel dómsmálaráð-
herra og setti upp sitt fræga
bros sem afhjúpaði í senn
óvenju sterklega tann-
Ofgreiðslur Tryggingastofnunar
Máttu ekki seilast í bætur
Tryggingastofnun mátti ekki
draga af greiðslum til lífeyrisþega
sem stofnunin taldi hafa fengið of-
greiddar bætur á árinu 2003. Líf-
eyrisþeginn hafði fengið umtals-
vert hærri fjármagnstekjur á árinu
2003 en gert var ráð fyrir. Fólst að-
almunurinn í greiddum dráttar-
vöxtum sem greiddir voru vegna
svokallaðs „öryrkjadóms". Að frá-
dreginni staðgreiðslu skatta átti líf-
eyrisþeginn að borga 21.544 krón-
ur.
Lögmaður lífeyrisþegans sagði
dráttarvextina hafa verið algjörlega
ófyrirsjáanlega. Einnig væru þeir í
eðli sínu skaðabætur og því eðli-
legt að sá sem skaða veldur skuli
bera kostnað af því.
Úrskurðarnefnd almannatrygg-
inga segir óhjákvæmilegt að telja
dráttarvextina með tekjum lífeyris-
þegans. Hins vegar séu ekki
uppfyllt lagaskilyrði til að
hafda megi eftir upphæð sem
svarar til ofgreiðslunnar frá
seinni tíma tryggingabótum.
Stofnunin verði einfaldlega
að senda lífeyrisþeganum
kröfubréf samkvæmt al-
mennum reglum.
Niðurstaða úrskurðar-
nefndarinnar er bindandi
fyrir Tryggingastofnun og
hefur fordæmisgildi fyrir
fjölda bótaþega.
Karl Steinar Guðna-
son Forstjóri Trygginga-
stofnunar sem máttiekki
halda eftir greiðstum
vegna ofgreiddra bóta.
Treystir ekki
tölvupósti
Jónas Friðrik Guðnason, lúrð-
skáld þeirra Ríó Tríó manna, er
hættur að treysta á tölvupóst í
ljósi atburða síðustu vikna. Að
minnsta kosti ef eitthvað er að
marka vísu sem hann orti og sjá
má á heimasíðu Raufarhafnar-
hrepps. Þar yrkir hann: „Þjóðin
vill eflaust þitt og mitt / þekkja,
og vita allt um hitt, / þessi aðferð
og tíðni. Svo eitt er
ljóst: / ekki
senda mér
tölvupóst."
Það má því
búast við að
samskipti
hans við
meðlimi Ríó
Tríós fari á
næstunni fram
í gegnum
bréfaskriftir
eða sfrntöl.