Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2005, Page 20

Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2005, Page 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 2005 Sport DV Þórdís byrjuð að æfa Þórdís Brynjólfsdóttir, hand- knattleikskona með FH úr Hafna- firði, er farin að æfa á ný með fé- laginu eftir bameignarfrí. FH-ing- ar búast við því að þessi 25 ára gamli leik- stjómandi byrji að leika að nýju með liðinu eftir áramót. Þá vonast Hafh- firðingar til að línumaður frá ‘m f Ukraínu komitil liðsins og verði með því 13 fljót- lega en FH-inga vantar gögn frá henni til að koma málinu í gegnum Útlendinga- stofnun að sögn Amar Magnús- sonar, formanns handknattleiks- deildar. Hún þykir mjög öflugur línumaður sem myndi styrkja lið- ið mikið. Þá er Jolanta Slapiídene sem varið hefúr mark FH undan- farin ár líklega á leiðinni til að verja markið hjá Hafnfirðingum. Mexíkóar meistarar Mexfkóar urðu í gærmorgun heimsmeistarar í knattspymu liða skipuðum leikmönnum 17 ára og yngri, þegar þeir lögðu Brasilíu- menn 3-0 í úrslitaleik á heims- meistaramótinu í Perú. Sigur Mexíkós kom flestum í opna skjöldu því unglingamir frá Bras- ilíu höfðu leikið mjög vel það sem af var móti. Mexíkóarnir mættu hins vegar mjög vel stemmdir og léku mjög fast sem léttleikandi Brasih'umenn áttu ekkert svar við. Hollendingar hrepptu bronsiö eftir 2-1 sigur á Tyrklandi. FH-ingar í briinkumeð ferð íslandsmeistarar FH vom glæsilegir á lokahófi Knattspyrnu- sambands íslands sem haldið var á Broadway á laugardagskvöld. FH-ingamir mættu hest-tannaðír til leiks en þeir fóm í brúnkumeð- ferð á laugardeginum. Þeir Tryggvi Guðmundsson og Auðun Helgason vom klókir og mættu báðir í hvítum jakkafötum og náðu þar með að undirstrika vel hversu fallega brúnir þeir væm. Sagan segir að þeir félagar hafi keypt fötin í Azserbaídsjan nú í sumar þegar Hafiifirðingarnir töpuðu 0-2 fyrir Nefchi í und- ankeppni Meistaradeildar Evr- ópu. Ungur Spánverji í Oxfordskíri á Englandi fær opinská bréf í hverri viku frá kven- kyns aðdáendum nafna síns, ökuþórsins Fernandos Alonso hjá Renault í Formúlu 1 kappakstrinum. Spánverjinn Fernando Alonso á sér marga eldheita kvenkyns að- dáendur og ekki hafa vinsældir hans dvínað í kjölfar þess að hann varð á dögunum yngsti maðurinn í sögunni til að tryggja sér heimsmeistaratitil ökumanna í Formúlu 1. Alnafni hans í Ox- ford á Englandi lifir ekki jafnmiklu glanslífi, en hann hefur und- anfarið fengið að upplifa hvernig er að vera heimsmeistari, því inn um lúgu hans hefur streymt aðdáendapóstur frá ungum meyjum sem tjá honum ást sína. „Ein þeirra kallaði sig Claire og sagði mér að hún starfaði hjá enska knattspyrnusamband- inu, hún var mjög spennt fyrir að hitta mig. Önnur sendi mér myndir afsér í mjög efnislitl- um klæðnaði og vildi fá mig í tesopa og með því" dömum sem hafa sent honum bréf, hafa nefni- lega ekki haft fyrir því að klæða sig mjög vel fyrir mynda- tökuna. „Ein þeirra kallaði sig Claire og sagði mér að hún starfaði hjá enska knattspyrnusambandinu, hún var mjög spennt fyrir að hitta mig. önnur sendi mér myndir , tvC af sér mjög efn- islitlum Fonguleg fljóð Oxfordskíris-Alonso leiðist ekki að opna bréfin sem ætluð eru nafna hans. „Ég gerði mér nú grein fyrir því um leið og ég opnaði fyrsta bréfið að það gat ekki verið að það væri tfl mín,“ sagði Fernando Alonso, 27 ára gamall starfsmaður hjá útgáfufyrir- tæki í Oxford. Hann er að vísu Spán- verji, en það er um það bil það eina sem er líkt með þeim nöfnum. Á meðan hinn nýkrýndi heimsmeist- ari baðar sig í sviðsljósinu, rakar inn þremur milljónum punda á ári í laun og ekur um á 300 klló- metra hraða í bíl sínum, ferðast nafni hans í Oxford um á reið- hjóli og hefur skitin fimmtán þúsund pund í árslaun. Te og með því „Fyrsta bréfið var frá stúlku sem heitir Astra og var frá Hollandi. Hún sagði mér að hringja í sig og sagðist elska mig,“ sagði Alonso. „Þessi bréf eru venjulega frá stelp- um sem vilja kynnast mér og þær segja mér allar að ég sé frábær bflstjóri, sem er dá- lítið fyndið, því ég á ekki einu sinni bíl,“ sagði Ox- ford-Alonso og segir sum bréfanna vera að- eins fyrir fullorðna. Nokkrar af hinum frökku klæðnaði og vildi fá mig í tesopa og með því.“ Bílprófslaus bósi „Fyrrverandi kærastan mín, sem er japönsk og heitir Eriko, sagðist ekld skilja hvers vegna í ósköpunum þessar stelpur væru að senda mér allan þennan póst, en mér er svo sem alveg sama. Þar sem nafni minn verður bara frægari og frægari, geri ég fastlega ráð fyrir því að þessar bréfa- sendingar eigi bara eftir að aukast," sagði hann. Oxford- Alonso segist ekki ætla að svara bréf- unum til nafna síns. „Svo virðist sem fólk haldi að ökuþórinn Alonso búi í Oxford og mér finnst það dálítið skn'tið, en það er svo sem í lagi." Hann hefur búið í Oxford í tvö ár og kom þang- að í þeim tflgangi að læra ensku. Hann hefur enn ekki komið því í verk að taka bíl- prófið, en hver veit nema hann slái til í fram- haldinu. baldur@dv.is George Best glímir við áfengissýkina og liggur fárveikur á sjúkrahúsi Best er við dauðans dyr vegna óreglu .Norðurírska knattspyrnugoð- sögnin George Best, sem á árum áður lék með Manchester United, liggur nú þungt haldinn á sjúkra- húsi vegna sýkingar. Roger Willi- ams, prófessor á Cromwell-sjúkra- húsinu í London, sagði ástand Bests vera alvarlegt en sagði hann þó sýna hægan bata. „Best bregst ágætlega við lyfjagjöfinni en verður þó áfram á gjörgæslu þar sem ástand hans er ennþá alvarlegt." Sonur Bests, Calum, var bjart- sýnn þegar blaðamenn ræddu við hann í gær. „Ég trúi því að faðir minn muni ná sér að fiillu. Hann er á batavegi en þarf örugglega að vera á sjúkrahúsi nokkuð lengi. Hann hefur lengi verið með verk í lifrinni en læknar trúa því að hann muni jafna sig af þessari alvar legu sýkingu." George Best hefur lengi glímt við áfeng- issýki og farið í marg- ar meðferðir, en hann hætti að leika knatt spyrnu aðeins 26 ára gamall vegna hennar. Hann fór í aðgerð árið 2002 þar sem skipt var um lifur og var ráðlagt eftir það að hætta að drekka áfengi. Drakk og drakk Best fór ekki að þeim ráð- leggingum og drakk ótæpi- lega næstu tvö ár á eftir. Árið 2004 fór hann svo í > meðferð það sem hann talaði um að hann George Best Best sést hér veifa til áhorfenda á leik Everton og Portsmouth íensku úrvalsdeildinni. væri nú búinn að snúa baki við óreglunni. Á fyrri hluta þessa árs sleit kona hans sambandi við hann vegna mikillar drykkju og í framhald- inu lenti Best í enn meiri vand- ræðum. Á síðustu mánuðum hefur ástand Bests verið sérstaklega al- varlegt og eftir mikla óreglu fékk hann sýkinguna sem haldið hefur honum í rúminu sfðustu daga. Ljóst er að Best verður að hætta að drekka áfengi ef ekki á illa að fara og sagði sonur hans að hann væri meðvitaður um það. „Faðir minn er veikur og hefur verið í áratugi. Við stöndum með honum og vonum það besta."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.