Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2005, Blaðsíða 39

Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2005, Blaðsíða 39
BV Síðasten ekkisíst FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 2005 39 I Ásgeir Eiríksson IMælirmeðStrætó. h k ýi3* Nýtt leiðakerfi Strætós hefur fengið ágætan aðlögunartíma undir háværum óánægjuröddum úr ýmsum áttum. Hæst lætur þó Uklega í eldri borgurum því þeirra á meðal er fólk sem hefur not- að strætó síðan hann fór fyrst að ganga um götur borgarinnar og hafa þeir því ágætan samanburð. í gær var loks komið á fundi með Félagi eldri borgara og forsvarsmönnum Strætós í glæsilegum húsakynnum félagsins í Stangarhyl. Ásgeir Eiríksson framkvæmdastjóri og Björk Vilhelmsdóttir stjómarmeðlimur voru mætt til þess að verja kerfið og tókst það með ágætum. Þau sögðu að sam- /" kvæmt nýja kerfinu þurfi fólk að verja / minni tíma í strætó en áður og að kerfið eigi að vera auðveldara í fram- tíðarmótun en gamla kerfið. Þau vildu auk þess meina að margir væm ánægðir með nýja leiðarkerfið þótt þær raddir væm ekki eins háværar. Þó að útskýringar Bjarkar og Ás- l geirs hafi verið vel metnar af eldri V----- borgurum tókst þeim ekki að þagga Eidri borgarar Hlýða á varnarorð forsvarsmanna Strætós. niður óánægjuraddimar með öllu því við tóku per- sónulegar og vel rökstuddar ábendingar um hverfi sem em útundan og svo skort á skiptistöðvum til að hlýja sér á köldum vetrardögum. 7 *» Brostu. Það verður hlýtt í dag og á morgun. Almennilegt. Lægðirnar láta þó eitthvað að sér kveða enda sjá þær um að halda hlýindum að landinu. Norðanmenn gætu þurft að rífa upp regnhlíf því smá- úrkomu er að vænta þar í kvöld. Látið ekki lægðirnar gera ykkur gramt í geði. Haldið áfram að brosa. ‘4 7 ** fcbt (Cb\ ) * * \ ' 'f .. í q\ ; ■ o O cA 1Ó‘ 8* 3?? 7^ f*fc> 7^^ jé é 3 ^ 6^ g 4 4 ' Kaupmannahöfn 17 París 22 Alicante 24 Ósló 15 Berlin 21 Mílanó 19 Stokkhólmur 20 Frankfurt 19 New York 24 Helsinki 13 Madrid 24 San Francisco 23 London 20 Barcelona 20 Orlando/Flórída 31 Sandkorn Sólmundur Hólm • Verðbréfaguttamir í KB banka hafa nóg af peningum á milli handanna. Margir þeirra vita ekki aura sinna tal og gera ým- islegt til að Iosa sig við þá byrði sem peningar em. Nokkrir þeirra komu saman á dögunum til að horfa á knattspymuleik og veðjuðu um úr- slitin. Ólíkt meðalmanninum sem myndi veðja upp á bjórkippu eða felgulykil, þá veðjuðu þessir vel stæðu pésar um heilu bjórbrettin. Þótti það mildð aðhlátursefni að sig- urvegarinn gat með engu móti kom- ið bjómum í tíu milljóna króna jepp- ann sinn... a* Trúbadorinn Siggi Bjöms er nú staddur hér á landi til að kynna nýjasta geisla- diskinn sinn, Stories. Af því tilefhi mun hann halda útgáfu- tónleika í hlöðunni í Hvammsvík í Hval- firði ásamt hljóm- sveit. Það sem færri vita er að kontra- bassaleikari hljóm- sveitar Sigga Bjöms er öndvegismaður- inn Einar Valur Ein- arsson. Það sem enn færri vita er að Einar er bróðir Idol- Stjömunnar Hildar Völu og þykir hann hafa álíka góð tök á kontranum og systir hans hefur á raddböndun- • ígærkomútnýtt tölublað af Mannh'fi. Prýðisblað þar á ferð. Það sem vakti þó hvað mesta athygli í blaðinu var mynd af stjömublaðamann- inurn Reyni Trausta- sjni sem fylgdi með leiðara blaðsins. A myndinni sést að Reynir hefur breytt algerlega um útÚt og er farinn að klæða sig eins og tvítugur há- skólastrákur. Converse-skómir og gæjalegu gallabuxumar endurspegla hve Traustasonurinn er ungur í anda þegar öllu er á botninn hvolft... • Á laugardaginn verður haldið partí á vegum RÚV til að kveðja fréttaþulinn geðþekka Loga Berg- mann Eiðsson sem fór yfir til 365 - ljós- vakamiðla á dögun- um. Eflaust verður mikið um dýrðir á þessu lokahófi enda Logi vinamargur innan stofnunarinn- ar. Líklegt þykir að listamenn innan Rúv muni ekki láta sitt eftir liggja og koma fram í þessu hófi. Hefur því verið fleygt að borgarstjóraefnið Gfsli Marteinn Baldursson muni bregða sér í gervi Korkólfs Kaup- sýslumanns til að heiðra vin sinn og félaga... • Helgi Þór Arason söngvari er magnaður fýr. Hann er nú farinn að blogga og lætur gamminn geisa tæpitungulaust. í nýjasta pistli sínum gagnrýnir hann oh'u- félögin hér á landi fýrir okur. Það er frá- bært. Það sem skýtur þó eilítið skökku við er sú staðreynd að Helgi leikur í auglýs- ingum fyrir Orku-bensínstöðvamar þar sem hann segir meðal annars: „Það var lagið. Þetta kallar maður sko bónus“... í r■ ■ r-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.