Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2005, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2005, Blaðsíða 12
72 FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 2005 Fréttir DV Brotist inn í Bíóhljóð Innbrot var framið á Hverfisgötunni. Bíræfnir þjófar brutust inn í fyrir- tækið Bíóhljóð sem er í eigu Kjartans Kjartanssonar hljóðmanns. Tölv- um og öðrum verð- mætum var stolið. Kjartan segist Ktið vilja tjá sig um inn- brotið. Hann hafi áhyggjur af því að þjófarnir gætu lát- ið aftur tú sín taka. Lögregl- an í Reykjavík vinnur að rannsókn málsins. Sektardómar fyrir fíkni- efnavörslu Tveir ungir menn vom í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær dæmdir fyrir lítilsháttar fíkniefnabrot. Annar þeirra, Asgeir Heiðar Stefánsson, fékk 120 þúsund króna sekt fyrir að hafa verið með tæp fimm grömm af amfetamíni í sinni vörslu sínum. Hann var þar að auki sviptur öku- réttindum fyrir að hafa ekið á 146 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði var 90. Hinn, Stefán Þór Bjarnason, var dæmdur til 70 þúsund króna sektar fyrir að hafa í vörslu sinni tæpt gramm af amfetamíni og þrjár e-pillur. Dómur í Næs- landsmáli I Héraðsdómi Reykjavík- ur í dag verður kveðinn upp dómur í máli Hótel Keflavíkur gegn aðstand- endum kvikmyndarinnar Næsland. Vill Steinþór Jónsson hótelstjóri að kvik- myndagerðarmennimir greiði eina af þremur gistinóttum sem þeir pönt- uðu sumarið 2004 en af- bókuðu á síðustu stundu. „Við teljum það vera eðli- lega kröfu, enda lentum við í vandræðum því við höfð- um vísað fólki frá,“ sagði Steinþór hótelstjóri við DV í október í fyrra. Flestir sem reykja vilja hætta. Könnun á verði nikótínlyfja í apótekum á höfuð- borgarsvæðinu sýnir að Laugarnesapótek er ódýrast í 25 af 30 tilfellum miðað við venjulegt listaverð. — Laugarnesapotek Erfiðleikar þess að hætta að reykjfi ern margvíslegir. MargirJeita I að öðrum nikótíngjöfum eins og tyggigúmmíi eða plástrum. DV fór á stúfana og kynnti sér nikótínmarkaðinn í apótekunum. Hvar er ódýrast að kaupa sér frí frá sígarettunum? Við gerðum verðkönnun á helstu tegundum nikótínlyfja hjá apótek- um á höfuðborgarsvæðinu. Mörg apótek em nú hlutar af keðjum sem hafa sama verð svo aðeiris eitt apó- tek í hverri keðju er nefnt í könnun- inni, en ekki bámst fullnægjandi upplýsingar frá sumum apótekum. Skipholtsapdtek, sem er hluti af Lyf og heilsu-keðjunni, er tímabundið með 20% afslátt af öllum nikótírjlyfj - um. haralilur@dv.is ' Að hætta...aftur ý Eitt það erfiðasta við að hætta er að byrja ekki aftur. Líkur benda til að þú „hættir" nokkmm sinnum áður en það tekst loksins. Með tyggjói, plástmm, innsogslyíjum og nefúðum er hægt að slá á löngunina, en hafa skal hugfast að þessi lyf innihalda nikótín sem er ávanabindandi og skyldi þannig um- gangast með varúð. Líkur á að reykinga- bindindi haldist aukast allt að tvöfalt séu nikótínlyf notuð samkvæmt rannsóknum. VERÐKÖNNUN DV A NIKÓTÍNLYFJUM Nicotinell tyggjó 24 stk 2 mg Nicotinell tyggjó 84 stk 2 mg Nicotinell tyggjó 204 stk 2mg Nicotinell tyggjó 24 stk 4 mg Nicotinell tyggjó 84 stk 4 mg Nicotinell tyggjó 204 stk 4 mg Rima- apótek 520 1673 3583 735 2360 5090 Apótekarinn 545 1790 3749 817 2445 4995 Lyija 543 1789 3746 837 2461 4915 Lyfog heilsa 516 1758 3599 783 2374 4697 Laugames- apótek 525 1550 3100 750 2200 4455 Árbæjar- apótek 533 1715 3674 753 2420 5219 Selt í matvöruverslunum erlendis - ekki hérna Matvömverslanir víðs vegar um heiminn mega selja nikótínlyf. Samkvæmt upplýsingum Heilbrigð- isráðuneytisins þarf lagabreytingu til að leyfa slíkum verslunum að selja nikótínlyf, enda sé slíkt flokkað með lausasölulyfjum. Það er þannig auðveldara að nálgast tóbak en tyggjó sem inniheldur nikótín. Nicotinell munnsogst. 36 stk Img 881 875 919 920 860 904 Nicotinell munnsogst 96 stk Img 1898 2138 2097 2039 1750 2003 Nicotinell munnsogst 204 stk 1 mg Ekki til 3710 3688 3394 2900 Ekki til Nicotinell munnsogst 36 stk 2mg 1148 1255 1499 1163 995 1142 Nicotinell munnsogst 96 stk 2mg 2644 Ekki til 2837 2821 2200 Ekki til Nicotinell munnsogst 204 stk 2mg Ekki til Ekki til Ekki til 3599 Ekki til Ekki til / Nicotinell plástur 7mg 7stk Ekki til 1945 1928 1791 1750 Ekki til r ‘ Nicotinell plástur 7mg 21 stk Ekki til Ekki tii Ekki til 5110 4490 5289 f, Nicotinell plástur 14 mg 7stk 2087 2183 2280 2068 1890 2140 Nicotinell plástur 14mg 21 stk 5896 6194 Ekki til 5708 4990 6045 Nicotineil plástur 21 mg 7 stk 2367 2586 2562 2381 1990 2427 Nicotinell plástur 21 mg 21 stk 6632 7135 7202 6572 5650 6800 Nicorette tyggjó 30 stk 2mg 700 849 889 809 695 717 Nicorette tyggjó 105stk 2mg 2108 2374 2395 2201 1990 2161 Nicorette tyggjó 210 stk 2mg 3786 3930 3936 3724 3250 3882 Nicorette tyggjó 30 stk 4mg 931 1159 1099 1078 899 955 Nicorette tyggjó 105stk 4mg 2917 3144 3298 2978 2399 2991 Nicorette tyggjó 210 stk 4mg 5180 5399 5474 5054 4490 5310 Nicorette plástur 14 stk 3952 4218 4318 3916 3490 4052 Nlcorette töflur 2mg 30stk 827 945 978 899 850 848 Nicorette töflur 2mg 105 stk 2089 2693 2685 2480 2150 2547 Nicorette innsogslyf lOmg 18stk 1330 1519 1527 1439 1250 1364 Nicorette innsogslyf lOmg 42stk 2755 2988 2898 2698 2450 2825 Nicorette nefúöi lOml 2638 2599 2998 2774 2295 2705 „Hornafjöröur rokkar þessa dagana," segir Gísli Vil- hjálmsson, hótelstjóri á Hótel Höfn I Hornafirði.„Þetta er sam- ..................... Landsíminn verk- ’ efni okkar og skemmtiféiags- ins þar sem heimafólk syngur rokklög allt frá Bítlunum til Ninu Hagen. Það ergífuleg stemning á staðnum og fyrsta sýningin er þann fimmtánda þessa mánaðarog það er strax orðið uppselt á fyrstu fjórar sýningarnar. Sýningin kallast„Rokk 150 ár"og verða sýningar til 5 nóvember." Víkingasveitin kölluð til vegna geðveiks manns Hótaði að skjóta nágranna sína „Þetta er dapurt mál," segir Gylfi Sigurðsson í Lögreglunni í Hafnar- firði. Að kvöldi þriðjudagsins var Vík- ingsveit lögreglunnar kölluð til vegna hótana manns í Álfaskeiði í Hafnarfirði. Víkingasveitarmenn undir vopnum vom kallaðir til og yf- irbuguðu manninn. Gylfi Sigurðs- son hjá Lögreglunni í Hafnarfirði segir unnið að því að koma mannin- um á viðeigandi stofnun. „Hann þóttist hafa byssu," segir Gylfi. „Þetta er dapurt mál sem teng- ist veikindum þessa einstaklings. Víkingasveitin var kölluð til enda maðurinn talinn ógn þar sem hann sagðist hafa skotvopn undir hönd- um. Það verður að gæta fyllstu var- úðar í slíkum tilvikum." Gylfi segir engan hafa meiðst í aðgerðinni þó að hálfgert umsáturs- ástand hafi myndast. Víkingasveitin að störfum Yfirbugaöi andlega vanheilan mann IHafnarfiröi. .jfk' - : Eimskíp í Noregi Eimskip hefur keypt öll hluta- bréf í norska flutningafyrirtæk- inu CTG. Fyrir átti Eimskip 51 prósent í norska félaginu. For- svarsmenn Eimskips telja að með kaupum fyrirtækisins náist mikil samlegðaráhrif og að þau styrki stöðu Eimskips enn frekar í flutningum og geymslu á frystum og kældum sjávarafurðum. Kaupin eru liður í stefnu Eim- skips að verða leiðandi í ffysti- flutningaþjónustu á Norður-Atl- antshafi. Virði CTG er áætlað um einn milljarður króna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.