Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2005, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2005, Blaðsíða 19
DV Sport FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 2005 19 Queiros vill Helguera Carlos Queiroz, aðstoðarþjálf- ari Manchester United, vill ólmur fá Ivan Helguera, leikmann Real Madrid, til félagsins. Framtíð Helguera hefur verið í lausu lofti að undan- förnu en samningur / - hans við Real Ma- þekki vel til Helguera þar setn' hann þjálfaði hann þegar hann var við stjómvölinn hjá Real Ma- drid fýrir þremur árum. „Helgu- era er frábær leikmaður sem gæti spilað með hvaða liði sem er. Hann er fyrst og fremst vamar- sinnaður miðjumaður en hefur verið látinn spila sem vamarmað- ur undanfarin ár. Ég get vel séð Helguera fyrir mér hjá Manchest- er United." Ákeby hættur hjáAGF Svíinn Sören Akeby er hættur að stýra liði AGF f dönsku úrvals- deildinni en hann hefur þjálfað liðið undanfarin ár. Lítið hefur gengið hjá AGF það sem af er tímabOi og er liðið nú f ijórða neðsta sæti úrvalsdeildarinnar en markmiðið var að vera í efri hluta deildarinnar. Akeby mun að öll- um líkindum taka við liði Malmö FF í sænsku úrvalsdeildinni en hann er einn af virtustu þjálfiirum Svíþjóðar. Akeby var kjörinn þjálf- ari ársins í Svíþjóð árið 2000 þeg- ar hann stýrði liði Djurgárden til sigurs í sænsku deildinni. Lið Gumma Steph tapaði Guðmundur Stephensen, og félagar í borðtennisliðinu Malmö FF f Svíþjóð, töpuðu illa fyrir grönnum sínum í Gröstorp, 5-2, fyrir nokkrum dögum. Guðmund- ur lék tvo leiki í þessari viöureign. Vann þann fyrri 3-1 og en tapaði seinni viðureigninni með sama mun. Guðmundur hefúr verið yf- irburðarborðtennisspilari á ís- landi síðan hann var ungur árum og hefur staðið sig vel með félagi sínu Svíþjóð síðan hann gerðist atvinnumaður. Guðmundur er sem stendur í sæti númer 213 á heimslistanum í borðtennis. Kfn- verjinn Wang Liqin er í efsta sæti en Þjóðverinn Timo Boll er annar. Cisse osattur Djbril Cissé, framheiji Liver- pool og franska lándsliðsins, er ósáttur við hversu lítið hann fær að spila sem framheiji hjá Liver- pool en Rafael Benitez hefúr aðal- lega notað hann á hægri vængn- um. „Ég er ekki tilbúinn til þess að sitja á bekknum í langan tíma. Ég skil ekki hvers vegna ég hef ekki fengið meiri tækifæri því mér finnst ég eiga þaö skilið. Ég hef lagt gríðarlega mikið á mig til þess að geta spilað fótbolta á nýjan leik eftir að hafa jmtm. fótbrotnað, \ ég kominn í mjöggott V form. Enég ™ ædaekkiað Æ-f H gefastupp. r' 'ý Vonandi fæ \ (3$^ égtæki-^f \ v færií r —> y 4 næstu ___ leikjum." 1 Kristján Örn Sigurðsson. landsliðsmaður og leikmaður Brann í norska boltanum er á ný kominn í neðsta sæti í einkunnargjöf norska blaðsins Verdens Gang eftir að hafa fengið 2 í einkunn af 10 í sigurlerk Brann á Viking á mánudagskvöld. Það er afar fáheyrt að leikmaður í norsku úrvalsdeildinni fái tvo í einkunn af tíu mögulegum frá blaðamönnum Verdens Gang, hvað þá í sigurleik. Hins vegar tókst Verdens Gang að klína skammarlegum tvisti á Akureyringinn Kristján Örn Sig- urðsson þrátt fyrir að hann hafi staðið allan tímann í vörn Brann sem vann frækinn sigur á Allan Borgvardt og félögum í Viking. Þar með er Kristján örn á nýju kominn í neðsta sæti í einkunnargjöf Verdens Gang með 3,78 í meðaleinkunn. DV lá forvitni á að vita hvort um einelti gegn Kristjáni væri um að ræða eða hvort þeir hefðu eitthvað fyrir sér. Fyrst var hringt í blaðamann frá Verdens Gang og hann spurður hvort Kristján örn Sigruðsson væri virkilega lélegasti leikmaðurinn í norsku úrvalsdeildinni? „Hmmm Kristjan Sigurdsson, jaaa Sigurdsson í Brann" sagði blaðamaður Verdens Gang og hló. „Mér finnst Kristján alls ekki al- slæmur leikmaður. En hann á hins vegar í miklum erfiðleikum með sendingarnar," sagði norski blaða- maðurinn og tcilaði eins og Nor- menn væru ekki þekktir fyrir neitt annað en Sambabolta. Hræðilegar sendingar „Maður á mann er Kristján sterk- ur og hann má eiga það að hann er fljótur að hlaupa og er líkamlega hraustur. Menn sjá þetta ekki því sendingageta hans er svo hræðileg. Það gengur ekki að vera með slíkan mann í hægri bakvarðarstöðunni, því miður. En ég heyrði að hann hafi spila sem miðvörður hjá íslenska landsliðinu og gert það vel“ sagði Norðamaðurinn og reyndi að sleikja íslenska kollega sinn upp sem var heitt í hamsi. Gengur illa að finna samherja Eftir stutt spjall við blaðamann Verdens Gang var ákveðið að heyra í Tore Nilsen, íþróttafréttastjóra hjá BT staðarblaðinu í Bergen. Kristján á mjög erfitt í hægri bakvarðarstöð- unni og hefúr gengið illa að finna samherja. „Fyrsti valkosturinn í hægri bak- varðarstöðuna er meiddur og því þarf einhver að vera þar. Per- sónulega finnst mér Kristján góður sem miðvörður. En Krisján er ekki sá eini sem hefur valdið vonbrigðum. Stefhan var sett á meistaratitilinn og við vorum í góðum málum í öðru sæti þegar sumarfríið byrjaði en eft- ir það hefur leikur liðsins hrun- ið>“sagði Nilsen. Hjá staðarblaðinu er Kristján örn næstneðstur í ein- kunnargjöf þeirra. Ólafur kemst ekki í liðið Aðspurður út í hinn íslending- inn í liði Brann sagði Nilsen: „Hann er meiddur en verður kom- inn til baka innan tíðar en hann mun ekkert komast í liðið þegar hann verður heill því Paul Scharner hefur verið settur í miðvörðinn í hans stað og spilað frábærlega. Scharner verður líklega seldur í vetur og talað er um Birmingham vilja kaupa hann. Schamer og Rogn- vald Soma sjá um miðvarðar- stöðurnar og því ekkert pláss fyrir Ólaf Örn í liðið strax." hjorvm@dv.is hræðileg. Það geng- ur ekki að vera með slíkan mann í hægri bak- varðar- stöðunni, þvímiður." Eyfirðingurinn lagður I einelti? Kristján Örn á ekki sjö dagana sæla í Noregi enda virðast þarlendir íþróttafréttamenn vera i herðferð gegn honum. AFP Forseti ítalska knattspyrnusambandsins vill lækka miðaverð Er alltof dýrt á völlinn á Ítalíu? Forseti ítalska knattspymusam- bandsins hefur biðlað til félaga í ítölsku A-deildinni um að lækka miðaverð á leiki til að vinna gegn minni aðsókn á leikina. Forsétinn, Franco Carraro að nafni, hefur áhyggjur af stöðunni en undanfarin ár hefur aðsókn á leikina verið mjög góð. Það hefur hinsvegar orðið breyt- ing á þessu síðustu misserin og stóm liðunum hefur gengið illa að fylla vellina hjá sér að undanfömu. Aðsókn hefur dottið niður um 20% síðan á síðasta tímabili, í stað- inn fyrir 26.135 áhorfendur að með- altali í fyrra þá hafa aðeins 21.280 áhorfendur komið að meðaltali á leik í fyrstu sex umferðum tímabils- Það sem fyllti eflaust mælinn hjá Carraro var að um síðustu helgi komu aðeins 33.772 manns á toppslag Juventus og Intem- azionale á Stadio delle Alpi. Völlurinn tekur 68.000 manns þannig að aðeins helmingur sætarýmisins var nýttur. Carrraro telur aðalá- stæðuna liggja í of háu miða- verði. „Við þurfum að __________> stjórna betur miða- verði eftir eftisp- urn og hvetja fólkið með því til að mæta. Það em ekki allir leikir jafn eftir- sóttir og fólk er tilbúið að greiða hærra fyrir stórleikina. Það á hinsvegar ekki við leiki eins og milli Juventus og Siena, eða Juventus og Chievo. Þrátt fyr- ir þetta er fólk að borga sama miðaverð á þessa leiki,“ sagði Carraro í viðtali við ítalska sportblaðið Gazzetta dello Sport. Það er ljóst að það er ekk- ert dýrara á leiki á Ítalíu en á öðmm stöðum og til dæmis er mun dýr- ara á leiki í ensku úrvalsdeildinni. Meðalmiðaverð í ódýmstu sætin em 17 evmr eða rúmar 1200 ís- lenskar krónur. - óój Kaká og Vieira Þaö kostar sitt að sjá stjörnurnar í ítalska boitanum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.