Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2005, Blaðsíða 40
T1 /* ^ í í ÍÍT> J í (3 J Við tökum við
fréttaskotum allan sólarhringinn. Fyrirhvert fréttaskot sem
birtist, eða er notað íDV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta
fréttaskotið íhverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar
^nafnleyndar er gætt. sjsj fj sj Q r) Q
SKAFTAHLÍÐ24,10SREYKJAVÍK [ STOFNAÐ 1910] SÍMISS05000 5 690710 'íiTlT?
Hérog nú með
nýju sniði
lunaritið Hér & nú fylgir
ókeypis með til áskrifenda DV alla
fimmtudaga.
Skoðuð eru
húsin sem
Nylonstúlkumar
búa í, en allar
búa þær hjá
mömmu nema
ein. Viðtal við
Lindu Pé sem
segir hundana
ekki afbrýðissama út í litla bamið.
Inga Lind er á leið í ísland í dag en
þar ræður besta vinkona hennar,
Svanhildur Hólm, rikjum. Það er
búið að setja lúxusvilluna sem
Jónína Ben hefur búið ókeypis í á
sölu. Hér & nú er nú með nýju
sniði og er í raun þijú blöð í einu:
Stjörnufréttir, lífsstfll og fréttir af
alvörufólki. Tímaritið Hér & nú
kostar 395 krónur í lausasölu.
Girl power!
Þorgerður Katrín VHdl halda
upp á afmælið sttt í frlðl
„Þetta var mjög skemmtileg. Fjölskyldan,
vinir og ættingjar fögnuðu með mér á þess-
um tímamótum," segir Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir menntamálaráðherra
sem varð fertug á dögunum og hélt
upp á afmælið í glæsilegri reið-
skemmu sinni í Hafnarfirði. Um 500
manns sóttu veisluna sem Þorgerð-
ur segir að muni seint renna sér úr
minni.
„Það voru allir glaðir á góðri
stund. Karlakórinn Þrestir kom og
gaf mér í afmælisgjöf fallegan
söng. Þeir eru einn allra besti
karlakór landsins og ég
hef alltaf gaman af karla-
kórsröddum og söng.
Svo voru ræðuhöld og
síðan slógu nokkrir
meðlimir í Sálinni í
gegn þegar þeir spil-
uðu fyrir okkur.“
Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir
menntamálaráð-
herra Hélt upp á af-
mælið sitt um helgina.
Þorgerður segir veislugesti fólk sem hafi
fylgt henni í gegnum lífið. „Þarna voru
gamlir félagar úr handboltanum í
gamla daga, samstarfsmenn og
æskuvinir. Ég hélt aldrei upp á
tvítugs- eða þrítugsafmælið og
var búin að lofa sjálfri mér að
halda upp á þessi tímamót."
í Séð og heyrt sem kom
út í gær var Þorgerður
gagnrýnd fyrir að hafa ekki
hleypt ljósmyndara blaðs-
ins inn í afmælið. Þorgerður
segist hafa tekið þá ákvörð-
un að fá ekki ljósmyndara í
veisluna, hvorki frá Séð og
heyrt né Morgunblaðinu.
„Stundum vill maður bara
halda hlutunum prívat.
Það er leiðinlegt ef fjöl-
miðlar reiðast við það.“
Hesthús Þorgerðar Um
500 manns mættu til veisl-
unnar i einu gisesiiegasta
hesthúsi landsins.
Stelpurnar unnu Strákana
„Ég er bara ofboðs-
lega ánægð með þess-
ar góðu viðtökur,"
segir Brynhildur Guð-
jónsdóttir, ein af
Stelpunum sem eru
tvímælaiaust sigur-
* vegarar í nýrri fjöl-
miðlakönnun Gallups.
Koma nýjar inn og ná.
22 prósenta áhorfi sem
gerir þær að þriðja vinsælasta dag-
skrárlið Stöðvar 2, á eftir fréttum og
Það var lagið.
„Okkur hefur stundum verið legið
á hálsi fyrir að vera pínudónalegar en
ég varpa því aftur út í samfélagið,"
segir Brynhildur um viðbrögð sem
hún hefur fengið við
þáttunum.
„Mérheyristbara
flestir vera mjög
ánægðir," bætir Ilm-
ur Krisjánsdóttir fé-
lagi Brynhildar í
þáttunum við.
Það vekur athygli
að Stelpumar taka Strákana al-
veg í bakaríið í könnuninni. Eru
með sex prósentum meira áhorf en
þeir. Þær stöllur Brynhildur og Ilmur
gera þó lítið úr því. „Fyrir mér hefur
það enga sérstaka meiningu því þetta
eru alls ekki sams konar þættir," segir
Brynhildur og Ilmur tekur í sama
streng.
bakaríið i nýrri fjöl-
miðlakönnun Gallups.
■ Fyrst tökum við
Moskvu, svo London
„Við erum að fara á sunnudag-
inn. Leikmyndin er komin niður í
kassa og túrinn fer að hefjast. Það er
uppselt á allar sýningar," segir Ólaf-
' ur Egill Egilsson leikari. Vesturport
frumsýnir verkið Woyzeck í Barbic-
an-leikhúsinu í London eftir tæpa
viku.
„Þetta verða alls tólf sýningar.
Samþjappað á skömmum tíma. Það
er meiri keyrsla á þeim þarna úti í
London," segir Ólafur en ekki minni
keyrsla hefur verið á Vesturporti að
undanförnu. í síðustu viku vann
hópurinn fyrstu verðlaun fyrir Brim
á leiklistarhátíð í Moskvu. Höfðu þar
betur en sýningar frá bestu leikhús-
um Moskvu og fjölda annarra landa.
„Það er alltaf gaman að fá verðlaun.
Við ætlum líka að sýna Brim hér
heima í nóvember."
Vesturport hefur að undanförnu
prufukeyrt Woyzeck í Borgarleik-
húsinu. Eins og kunnugt er frum-
samdi hinn heimsfrægi Nick Cave
tónlistina í verkinu fyrir hópinn.
„Cave ætíar að koma á frumsýning-
una í London. Ég held meira að
segja að hann ætli að reyna að koma
hingað þegar við komum aftur til ís-
lands með sýninguna. Hann man
víst lítið eftir síðustu heimsókn og
kann vel við land og þjóð."
GB FERÐIR icelandair fS
Bókanir og nánari upplýsingar á www.gbferdir.is og í síma 534 5000
>