Símablaðið - 01.01.1935, Blaðsíða 16
o
S í M A fí L A Ð 1 Ð
SunaMa^já 20 jcúuou.
Á þessu herrans ári varð Símablaðið
tvítugt. Fyrsta blað þess kom út í apríl
1915 eða á fyrsta starfsári F. f. S.
Mér þykir þvi sæma, að gefnu leyfi
ritstjórnarinnar, að rifja upp sögu
blaðsins i fáum dráttum, einmitt nú,
þegar gangan hefst inn á þriðja ára-
tuginn og það þvi fremur, sem vitað
er af öllum, er gaum liafa gefið blað-
inu, að þar bafa frumkvæði hafist
að ýmsum framfara- og hagsbóta-
málum símastéttarinnar.
Það mun vera reynsla margra, er
stofnað bafa til útgáfu blaða eða tíma-
rita, að byrjunin sé erfið og' hafa ýmsir
mátt leggja árar í bát, áður en tvítug-
asta útgáfuafmælið hefir runnið upp.
Vitanlcgt má því vera, að oft hefir
harðnað á dalnum bjá Símablaðinu
þessi tuttugu ár. Fámennri og fá-
tækri stétt ætlaði að verða það ofur-
efli, að standast útgáfukostnað blaðs-
ins. Enda fór svo, að tvivegis strandaði
útgáfan af fjárhagsörðugleikum, í fyrra
skiftið árið 1920 en í síðara skiftið 1927
og lá þá við borð, að blaðið risi ekki
úr rústum framar. En von bráðar tóksl
þó Félagi íslenskra símamanna, er bing-
að tii hafði borið ábyrgð útgáfunnar,
að semja við tvo félagsmenn að taka
að sér blaðið upp á eigin ábyrgð. Þess-
ir menn voru þeir Daniel Jóhanns-
son, símritari, og Andrés Þormar, að-
algjaldkeri. Sá siðarnefndi liefir ávalt
síðan liaft ritsjórn blaðsins með bönd-
um, ýmist einn eða með öðrum manni.
Hefir hann rækt það starf með sæmd,
enda verið brautryðjandi i félagsmál-
En þið getið reitt ykkur á það, fé-
lagar, að þessi sundrungarviðleitni
ber á \dyr hjá ykkur fyr eða síðar,
og hún kemur til ykkar í því formi,
að vekja hjá ykkur óánægju út af
því, sem enn hefir ekki náðst, — út
af ýmsum smámunum, sem snerta ein-
staklinga, eða einstakar deildir, — og
hún reynir að koma því inn hjá ykk-
ur, að alt, sem áorkað hefir verið, sé
lítils eða einskis virði, samanborið við
það, sem ekki hefir náðst.
Hún reynir að koma því inn hjá
ykkur, að alstaðar sé beitt rangsleitni,
og gengið á hlut einstaklinganna. Hún
egnir starfsdeild upp á móti starfs-
deild.
Eftir því, hvort við tökum á móti
þessari sendingu sem menn, eða sem
böðlar okkar eigin félags, fer um
framtíð þess, — og undir því er líka
mikið komið um framtíð þessarar
stofnunar. j
Næstu 20 áir eiga að þjappa okkur
saman í enn samrýmdari og styrkari
hóp, — og við skulum vona, að saga
þeirra verði ekki sams konar saga
sundrungar og tinnbyrðis baráttu, og
hent hefir félög starfssystkina okkar
annars staðar.
Með þá meginhugsun í stafni, skul-
um við vinna að heill og hag félags
okkar næstu 20 ár. Þá kröfu skulum
við gera hvert til annars.